Grant Thornton og knattspyrnudeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning

Knattspyrnudeild Fjölnis og Grant Thornton hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning þar sem Grant Thornton verður einn af aðalstyrktaraðilum deildarinnar.

Samstarfið markar ánægjuleg tímamót fyrir knattspyrnudeildina og undirstrikar þann kraft og metnað sem einkennir starfið hjá Fjölni. Grant Thornton mun verða sýnilegt á búningum deildarinnar á samningstímanum og þannig fylgja iðkendum, þjálfurum og félaginu öllu inn í spennandi verkefni næstu ára. Samstarfið er mikilvægt innlegg í áframhaldandi uppbyggingu knattspyrnustarfsins í Grafarvogi, þar sem áhersla er lögð á faglegt starf, sterka umgjörð og jákvætt umhverfi fyrir iðkendur á öllum aldri.

„Við erum afar ánægð með að fá Grant Thornton inn sem einn af okkar aðalstyrktaraðilum til næstu þriggja ára. Það skiptir knattspyrnudeild Fjölnis miklu máli að eiga öfluga samstarfsaðila sem hafa trú á starfinu okkar og þeirri uppbyggingu sem hér á sér stað. Þetta er farsælt samstarf fyrir báða aðila og við hlökkum til að þróa það áfram á komandi árum,“ segir Birgir Birgisson fyrir hönd knattspyrnudeildar Fjölnis.

Davíð Arnar Einarsson hjá Grant Thornton tekur í sama streng: „Við erum stolt og ánægð að fá að taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem á sér stað hjá Fjölni. Knattspyrnudeild Fjölnis sinnir mikilvægu starfi fyrir börn, ungmenni og samfélagið í Grafarvogi og við hlökkum til að vera hluti af þeirri vegferð næstu árin.“

Hjá knattspyrnudeild Fjölnis er mikil ánægja með samninginn, enda styrkir hann rekstrargrundvöll deildarinnar og gefur aukið svigrúm til að halda áfram að efla umgjörðina í kringum iðkendur, þjálfara og lið félagsins.

Knattspyrnudeild Fjölnis býður Grant Thornton hjartanlega velkomið í hóp öflugra samstarfsaðila deildarinnar og hlakkar til farsæls samstarfs næstu þrjú árin.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »