Halldór Boði og Oliver Máni fulltrúar Fjölnis í æfingahóp U15 karlalandsliðs Íslands

Tveir fulltrúar Fjölnis í fyrsta landsliðshópi U15 karla!
Við erum afar stolt af þeim Halldóri Boða Jónssyni og Oliver Mána Bergdal Pálssyni, sem hafa verið valdir af Ómari Inga Guðmundssyni, landsliðsþjálfara U15 karla, í fyrsta landsliðshóp árgangs 2012 í knattspyrnu.
Strákarnir taka þátt í úrtaksæfingum KSÍ dagana 25.–26. júní á Avisvellinum í Laugardal, en hópurinn er valinn í kjölfar Hæfileikamóts KSÍ og N1.
Frábær viðurkenning á dugnaði þeirra og því góða starfi sem unnið er innan yngri flokka Fjölnis. Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim áfram.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026








