Efnilegir Fjölnisstrákar gera sinn fyrsta samning við félagið

Efnilegir Fjölnisstrákar gera sinn fyrsta samning við félagið.
Þeir Brynjar Elí Jóhannsson, Elvar Ingi Pétursson, Frosti Hjaltason, Kjartan Jökull B. Magnússon og Steinar Kári Halldórsson allir fæddir árið 2010 hafa skrifað undir samning við knattspyrnudeild Fjölnis. Strákarnir eru allir uppaldir Fjölnismenn og hafa gengið í gegnum yngri flokka félagsins, en þeir hafa verið í lykilhlutverki hjá 3. flokk karla á liðnu tímabili auk þess að spila einnig hlutverk með 2. flokk karla.
Við hjá Fjölni erum virkilega ánægð með að hafa skrifað undir samning við strákana sem eiga vonandi eftir að setja sinn svip á félagið á komandi árum.
Til hamingju með fyrsta samninginn strákar, framtíðin er björt!
Aðrar fréttir af deildinni
Jóhannes Karl Bárðarson til Fjölnis!
08/11/2026
Ýmir Hjálmsson Semur við Fjölni!
07/11/2026
Almar Máni Þórisson aftur heim í Fjölni!
06/11/2026








