Flosrún Vaka gerir nýjan samning

Flosrún Vaka gerir nýjan samning
Flosrún Vaka Jóhannesdóttir hefur gert nýjan samning við Íshokkídeild Fjölnis. Hún á að baki langan og glæsilegan feril í íslensku íshokkíi og sterk tengsl við Björninn, sem síðar varð hluti af íshokkístarfi Fjölnis.
Flosrún hóf íshokkíferil sinn aðeins 13 ára gömul með Birninum og varð fljótt einn af lykilleikmönnum félagsins. Jafnframt varð hún ein af brautryðjendum kvennaíshokkís á Íslandi og lék um árabil stórt hlutverk með íslenska kvennalandsliðinu.
Ferillinn leiddi Flosrúnu einnig út fyrir landsteinana. Hún lék meðal annars með Herlev Hornets í Danmörku, þar sem hún varð tvöfaldur Danmerkurmeistari og var meðal stigahæstu leikmanna liðsins og deildarinnar. Eftir heimkomuna lék hún á ný með Birninum og varð fyrirliði liðsins.
Síðar hélt Flosrún til Noregs þar sem hún lék og þjálfaði hjá Sparta Warriors og lék síðan með Vålerenga í Osló. Þar æfði hún og keppti með nokkrum af sterkustu íshokkíkonum Noregs.
Flosrún hefur verið valin íshokkíkona ársins á Íslandi bæði 2008 og 2016.
„Saga Flosrúnar er um leið mikilvægur hluti af sögu Bjarnarins og þeirri sterku arfleifð sem íshokkíið hjá Fjölni byggir á í dag. Ferill hennar er frábært dæmi um hvert metnaður, elja og ást á íþróttinni geta leitt og um leið innblástur fyrir nýjar kynslóðir íshokkístúlkna sem stíga sín fyrstu skref á ísnum í Egilshöll í dag,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis sem er með henni á myndinni.

Aðrar fréttir af deildinni
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning
20/10/2026






