Center Hotels og knattspyrnudeild Fjölnis gera tveggja ára samstarfssamning

Knattspyrnudeild Fjölnis og Center Hotels hafa undirritað tveggja ára samstarfssamning. Center Hotels verður einn af aðalstyrktaraðilum deildarinnar og mun merki fyrirtækisins prýða búninga liða félagsins.
Samstarfið hefur sérstaka þýðingu vegna langra og sterkra tengsla fjölskyldunnar á bak við Center Hotels við Fjölni. Sara Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Center Hotels, er fyrrverandi leikmaður kvennaliðs félagsins og átti frumkvæði að því að koma kvennastarfi deildarinnar af stað. Á unglingsárum safnaði hún undirskriftum til að stúlkur fengju að hefja knattspyrnuæfingar hjá félaginu.
Foreldrar Söru, Kristófer Oliversson og Svanfríður Jónsdóttir, hafa einnig komið að stjórnarstörfum hjá félaginu og verið öflugir bakhjarlar í foreldrastarfinu um árabil. Tengslin halda áfram í gegnum yngri kynslóðir fjölskyldunnar sem æfa nú með Fjölni.
„Þetta er rosalega spennandi fyrir okkur fjölskylduna. Við eigum langa og góða sögu innan Fjölnis og það er afar ánægjulegt að tengjast félaginu með þessum hætti. Fjölnir hefur verið stór hluti af lífi okkar og nú æfa afkomendur fjölskyldunnar með félaginu. Það er því sérstaklega gaman að geta stutt við starfið í gegnum Center Hotels og tekið þátt í áframhaldandi uppbyggingu,“ segir Sara Kristófersdóttir.
Birgir Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, tekur undir með Söru og fagnar samstarfinu. „Center Hotels er frábært fyrirtæki og samstarfið fangar vel það sem við erum að vinna að: að fá til liðs við okkur öfluga bakhjarla sem sjá ávinning af samstarfi við félag eins og Fjölni. Í þessu tilviki er samstarfið enn ánægjulegra vegna þess að fjölskyldan á svo langa sögu innan félagsins og hefur lagt mikið af mörkum til starfsins. Sú saga heldur áfram, bæði með afkomendum fjölskyldunnar á æfingasvæðinu og Center Hotels sem öflugum bakhjarli næstu tvö árin,“ segir Birgir.
Knattspyrnudeild Fjölnis býður Center Hotels hjartanlega velkomið í hóp aðalstyrktaraðila og hlakkar til samstarfsins.
Aðrar fréttir af deildinni
Jóhannes Karl Bárðarson til Fjölnis!
08/11/2026
Ýmir Hjálmsson Semur við Fjölni!
07/11/2026
Almar Máni Þórisson aftur heim í Fjölni!
06/11/2026









