Arna Rún framlengir við Fjölni

Mynd: Toggi Media

Körfuknattleikskonan Arna Rún Eyþórsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni til tveggja ára.

Arna Rún er ein af efnilegustu ungu leikmönnum félagsins og hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar látið að sér kveða með meistaraflokki. Hún hefur jafnframt verið hluti af yngri landsliðum Íslands og öðlast þar mikilvæga reynslu.

Það eru mikil gleðitíðindi fyrir Fjölni að Arna Rún ætli að halda áfram að taka sín næstu skref í Grafarvoginum. Fram undan eru spennandi verkefni með ungu liði Fjölnis og verður gaman að fylgjast með henni halda áfram að þróast og taka að sér stærra hlutverk á næstu árum.

Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar framlengingunni. „Það er mjög ánægjulegt að Arna Rún hafi framlengt við félagið til tveggja ára. Hún er ung og metnaðarfullur leikmaður sem hefur þegar sýnt að hún getur látið að sér kveða með meistaraflokki. Það skiptir okkur miklu máli að halda áfram að byggja liðið upp í kringum okkar ungu leikmenn og við hlökkum til að fylgjast með Örnu taka næstu skref með Fjölni.“

Arna Rún er ánægð með að halda áfram í Fjölnisbúningnum, „Það er frábært að fá að spila áfram með Fjölni og vera hluti af þessum hópi. Ég er spennt fyrir komandi tímabili!“

Við óskum Örnu Rún til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að fylgjast með henni í gulu næstu tvö árin.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »