Ívar Ingimarsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur ráðið Ívar Ingimarsson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla.
Ívar er frábær viðbót við þjálfarateymi liðsins og er það mikið ánægjuefni fyrir félagið að fá hann til liðs við okkur. Ívar á glæsilegan feril að baki. Hann lék 29 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og átti farsælan atvinnumannaferil í Englandi með félögum á borð við Brentford, Wolverhampton Wanderers, Brighton, Reading og Ipswich Town. Mestum árangri náði hann með Reading, þar sem hann var lykilmaður í sögulegu liði félagsins sem vann ensku B-deildina tímabilið 2005–2006 og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Þá var hann þjálfari hjá meistaraflokki kvenna hjá KR á árunum 2024–2025 og þjálfari 2. flokks hjá HK frá 2025-2026.
Birgir Örn Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar ráðningunni:
„Það er mikill fengur fyrir Fjölni að fá Ívar inn í okkar starf. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu úr atvinnumennsku og landsliðinu, en ekki síður sterkum karakter og góðum skilningi á því hvað þarf til að byggja upp leikmenn. Ráðningin fellur mjög vel að þeirri stefnu okkar að efla starfið innan frá og skapa öflugt umhverfi fyrir unga leikmenn félagsins.“
Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks karla, er sömuleiðis ánægður með að fá Ívar til liðs við þjálfarateymið:
„Ég er afar ánægður með að fá Ívar með mér í þjálfarateymið. Reynsla hans, þekking og sýn á leikinn munu styrkja okkar starf verulega. Hann veit hvað þarf til að ná árangri á hæsta stigi og ég er sannfærður um að leikmenn okkar muni njóta góðs af því að vinna með honum.“
Ívar er spenntur fyrir nýju verkefni í Grafarvoginum:
„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma til jafn stórs félags og Fjölnis og taka þátt í að koma félaginu aftur þangað sem það á heima. Ég hlakka til að takast á við verkefnið, vinna með Gunnari og leikmannahópnum og leggja mitt af mörkum til að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur.“
Við bjóðum Ívar hjartanlega velkominn í Fjölni og hlökkum til samstarfsins fram undan.
Áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Jóhannes Karl Bárðarson til Fjölnis!
08/11/2026
Ýmir Hjálmsson Semur við Fjölni!
07/11/2026
Almar Máni Þórisson aftur heim í Fjölni!
06/11/2026









