Frábær stemning á árgangamóti Fjölnis í Egilshöll

Frábær stemning á árgangamóti Fjölnis í Egilshöll

Árgangamót Fjölnis fór fram laugardaginn 4. október í Egilshöll og heppnaðist mótið einstaklega vel. Fjöldi fyrrverandi og núverandi Fjölnisfólks kom saman til að etja kappi, rifja upp gamla takta og njóta samverunnar.

Alls tóku 24 lið þátt í mótinu, þar af 17 karlalið og 7 kvennalið. Karlamegin var keppt í tveimur deildum, öldungadeild með 9 liðum og ungliðadeild með 8 liðum, en kvennamegin var keppt í einni deild með 7 liðum.

Keppnin hófst á laugardagsmorgninum í Egilshöll og var stemningin frábær frá fyrstu mínútu. Það var gaman að sjá ólíka árganga Fjölnis koma saman á ný, rifja upp gamla góða takta og sýna að keppnisskapið er enn til staðar.

Í ungliðadeild karla stóð 2003 árgangurinn uppi sem sigurvegari eftir sigur á 2004 árganginum í úrslitaleik.

Í öldungadeild karla var það 1990 árgangurinn sem tryggði sér sigurinn eftir úrslitaleik gegn 1996 árganginum.

Í kvennadeildinni fögnuðu árgangar 1988–1990 sigri eftir úrslitaleik gegn árgöngum 1994–1995.

Glæsilegt lokahóf í Dalhúsum

Um kvöldið var síðan haldið glæsilegt lokahóf í hátíðarsal Fjölnis í Dalhúsum þar sem keppendur og annað Fjölnisfólk komu saman og fögnuðu vel heppnuðum degi. Þar voru sigurlið mótsins verðlaunuð og boðið upp á lifandi tónlistaratriði sem settu skemmtilegan svip á kvöldið.

Árgangamótið sýndi enn og aftur hversu sterkur félagsandinn er innan Fjölnis. Það er ómetanlegt að sjá Fjölnisfólk úr ólíkum árgöngum koma saman, endurnýja gömul kynni og skapa nýjar minningar.

Við þökkum öllum keppendum, skipuleggjendum og öðrum sem komu að mótinu kærlega fyrir frábæran dag og skemmtilegt kvöld.

Áfram Fjölnir! 💛💙

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »