Laura-Ann Murphy áfram við stjórnvölinn hjá U17 stúlknaliði Fjölnis

Íshokkídeild Fjölnis hefur endurnýjað samning við Lauru-Ann Murphy um áframhaldandi þjálfun U17 stúlknaliðs deildarinnar.
Laura hefur stýrt liðinu undanfarin ár með góðum árangri. Á síðasta tímabili náði liðið meðal annars frábærum árangri og tryggði sér silfurverðlaun á Íslandsmótinu.
Laura býr yfir mikilli reynslu úr íshokkíinu, bæði sem leikmaður og þjálfari. Samhliða þjálfuninni leikur hún með meistaraflokki Fjölnis og á að baki fjölda landsleikja fyrir Íslands hönd.
Það er mikið ánægjuefni fyrir Íshokkídeild Fjölnis að Laura haldi áfram starfi sínu með stúlknaliðinu og við hlökkum til að fylgjast með liðinu undir hennar stjórn á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026






