Fréttabréf 7.september 2026 – Íshokkídeild Fjölnis.

Fréttabréf 7.september 2026 – Íshokkídeild Fjölnis

Foreldra- og iðkendafundir komnir í gang

Í síðustu viku hófust foreldrafundir deildarinnar. Á fundum hjá U14 og eldri bjóðum við iðkendum að vera með. Þrír fundir verða í þessari viku. Á miðvikudaginn verða foreldra- og iðkendafundir fyrir U14(kl 17:30) og U16 kl 18:30. Á fimmtudaginn er svo foreldrafundur fyrir U12 ára kl 17.30. Á dagskrá er kynning á Íshokkídeildinni, vetrarstarfinu og foreldrafélaginu auk þess sem farið yfir praktísk mál hjá hverjum flokki. Sem dæmi má nefna að í U16 má færa leikmenn á milli A og B liða með frjálsum hætti fyrstu þrjá leiki keppnistímabilsins. Þetta er mikilvægt fyrir þjálfara til að átta sig á samsetningu hópsins síns og prófa áfram, ekki síst þegar um nýjan þjálfara er að ræða, eins og hjá okkur.

Allir ættu að hafa fengið fundarboð í Abler og enn og aftur biðjumst við velvirðingar á hnökrum í Abler-málum hjá okkur sem fara batnandi með hverjum degi. Vonandi sjáumst við sem flest á fundunum.

Skipulag íshokkídeildarinnar

Stjórn íshokkídeildar hefur samþykkt starfsskipulag deildarinnar í vetur. Einu launuðu störfin í deildinni eru þjálfarastörf en allt annað er sjálfboðavinna foreldra og annara velunnara deildarinnar. Starfið stendur því og fellur með þessum hópi. Sem betur fer eru ótrúlega margir tilbúnir að leggja hönd á plóg svo allt gangi upp. Hins vegar eru mörg verkefni sem bíða og því þiggjum við gjarnan fleiri hendur til aðstoðar við ýmis verkefni og ennþá er laust í suma vinnuhópana. Vinnuhóparnir okkar vinna ýmist í samstarfi við stjórn eins og fjáröflunarhópur eða eru algerlega sjálfstæðir eins og foreldrafélagið og besta búð landsins, Bjarnarbúðin, svo dæmi séu tekin. Skipuritið má sjá hér að neðan.

Fyrsti leikur vetrarins á föstudaginn – U16A ríður á vaðið

Fyrsti keppnisleikur þessa tímabils hjá okkur er á föstudagskvöldið en þá mun U16A liðið fá SR í heimsókn í Egilshöllina. Á laugardaginn halda svo meistaraflokkur kvenna og U16B til Akureyrar þar sem bæði liðin mæta SA.

Allir keppnisleikir okkar eru sýndir í streymi og er það einmitt okkar frábæri streymishópurinn sem ber veg og vanda að umsjón þeirra mála hjá okkur. Við erum svo í samvinnu við kvikmyndadeild Borgarholtsskóla varðandi streymi frá leikjum meistaraflokkanna okkar og er það ómetanlegt að vera í samstarfi við þau. Hlekk á streymið má finna hér https://www.icehockeyiceland.tv/is/home. Streymið er gegn vægu gjaldi og rétt er að minna á að við fáum hluta ágóðans og verður hann fyrst um sinn notaður til að endurnýja tækjabúnað okkar við streymið sem er kominn til ára sinna.


Ari Magnússon framlengir við Fjölni

Ari Magnússon framlengir við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Ari Magnússon hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni til eins árs.

Ari gekk til liðs við Fjölni frá HK fyrir síðasta tímabil og átti mjög gott fyrsta tímabil í Grafarvoginum. Hann tók miklum framförum eftir því sem leið á veturinn, bæði varnar- og sóknarlega, og vann sér fljótt inn mikilvægt hlutverk í liðinu.

Meistaraflokksráð karla fagnar því að Ari verði áfram í Fjölnisbúningnum. „Það gleður okkur mikið að Ari hafi framlengt samning sinn við félagið. Hann átti frábært tímabil í fyrra og sýndi miklar framfarir beggja vegna vallarins. Við höfum mikla trú á honum og hlökkum til að sjá hann halda áfram að þróast og taka að sér enn stærra hlutverk með liðinu.“

Ari er sömuleiðis ánægður með að halda áfram í Grafarvoginum: „Það er heiður að halda áfram í Grafarvoginum með öflugt verkefni fyrir höndum. Ég spenntur fyrir öðru tímabili með strákunum í gulu.“

Við óskum Ara til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hann áfram í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.


Guðlaugur Heiðar framlengir við Fjölni

Guðlaugur Heiðar framlengir við Fjölni

Körfuknattleiksmaðurinn Guðlaugur Heiðar Davíðsson hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni og verður áfram í Grafarvoginum á komandi tímabili í 1. deild.

Guðlaugur Heiðar, eða Laugi eins og hann er jafnan kallaður, er tvítugur varnarmaður sem á rætur sínar að rekja til Fjölnis, en hann lék einnig með yngri flokkum Stjörnunnar. Laugi hefur tekið stór skref í sinni þróun á síðustu misserum og átti mjög gott tímabil í fyrra þar sem hann var meðal annars valinn besti varnarmaður liðsins.

Laugi er spenntur fyrir því sem fram undan er. „Ég er spenntur fyrir komandi tímabili. Við erum með lið byggt á heimamönnum og ég hlakka til að sýna hvað í okkur býr.“

Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segir það mikil gleðitíðindi að halda Lauga innan okkar raða. „Laugi átti frábært tímabil í fyrra og hefur vaxið mikið sem leikmaður á síðustu misserum. Hann er öflugur varnarmaður sem leggur mikið til liðsins og við erum mjög ánægð með að hann verði áfram með okkur.“

Við óskum Lauga til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hann áfram í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.


Pétur Þór og Eiríkur Emil framlengja við Fjölni

Pétur Þór og Eiríkur Emil framlengja við Fjölni

Handknattleiksmennirnir Pétur Þór Óskarsson og Eiríkur Emil Hákonarson hafa framlengt samninga sína við meistaraflokk karla hjá Fjölni til tveggja ára.

Pétur Þór er ungur og efnilegur markmaður, fæddur árið 2009 og uppalinn hjá Fjölni. Hann átti gott tímabil á síðasta ári þar sem hann tók stór skref í sinni þróun og fékk dýrmæta reynslu með meistaraflokki. Miklar vonir eru bundnar við Pétur og verður spennandi að fylgjast með honum fá fleiri tækifæri með liðinu á næstu árum.

„Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og hef mikla trú á liðinu,“ segir Pétur Þór.

Eiríkur Emil er sömuleiðis uppalinn Fjölnismaður og hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Hann er örvhentur hornamaður og öflugur skotmaður sem hefur alla burði til að taka að sér stærra hlutverk með meistaraflokki á komandi árum.

Eiríkur Emil er ánægður með að framtíðin sé í Grafarvoginum. „Ég er mjög glaður að vera búinn að skrifa undir nýjan samning og er spenntur fyrir komandi tímabili.“

Meistaraflokksráð karla fagnar því að þeir Pétur Þór og Eiríkur Emil hafi framlengt við félagið. Báðir eru uppaldir Fjölnismenn sem hafa sýnt miklar framfarir og verður spennandi að fylgjast með þeim halda áfram að þróast og taka næstu skref með meistaraflokki.

Við óskum Pétri Þór og Eiríki Emil til hamingju með nýju samningana og hlökkum til að fylgjast með þeim í Fjölnisbúningnum á komandi árum.


Fréttabréf 31. ágúst 2026 – Íshokkídeild Fjölnis.

Fréttabréf 31. ágúst 2026 – Íshokkídeild Fjölnis.

Kæru iðkendur, foreldrar og aðrir velunnarar Íshokkídeildar Fjölnis,

Nýtt tímabil og fréttbréf fer í loftið.

Nú er nýtt og spennandi íshokkítímabil að hefjast og sannarlega skemmtilegur vetur framundan. Síðustu vikur hefur verið í óvenju mörg horn að líta í starfi deildarinnar enda margt í gangi. Hæst ber auðvitað að við fengum nýjan yfirþjálfara, Kris, sem hefur verið að nota síðustu vikur til að kynnast starfseminni, félaginu og krökkunum okkar.

Til að miðla upplýsingum um allt það helsta sem er að gerast svo þið getið verið upplýst, mun íshokkídeildin senda frá sér fréttabréf með reglulegum hætti hér á þessum vettvangi. Nú í september kemur það vikulega – á mánudögum – en svo verður útgáfan mánaðarlega, þó við munum sjálfsagt leyfa okkur að skjóta inn aukalega öðru hverju.

Við ætlum einnig líka að vera duglega að segja áfram frá starfinu á samfélagsmiðlum og auglýsa þar, enda svo fjölmargt skemmtilegt að gerast hjá okkur.

Minnum þó að nákvæmari upplýsingar í hverjum flokki verða gegnum Abler og við hvetjum því alla til að drífa í skráningum svo upplýsingarnar þar verði aðgengilegar.

Kærar þakkir fyrir þolinmæðina

Nú í ágúst hefur Kris verið að stíga sín fyrstu skref hjá félaginu okkar. Það er margt fyrir  að hann að læra og stilla upp. Þess vegna höfum við vísvitandi haft æfingafyrirkomulagið með óvenjulegum hætti fyrstu vikurnar. Mjög mikilvægt er að Kris kynnist starfseminni, félaginu, iðkendum og öllu hinu, þannig að hann geti sem best stillt upp starfinu og hvaða hópar æfa saman hverju sinni ásamt því að meta hve margar þjálfara þarf hverju sinni. Kris verður yfirþjálfari allra hópa frá U12 og verður í hringiðu flestra æfinga. Eðlilega þarf hann gott fólk með sér og hann þarf auðvitað tíma til meta þetta allt.

Við þökkum ykkur öllum fyrir þolinmæðina og skilninginn í kringum þetta allt. Nú í vikunni gefum við svo út æfingatöflu vetrarins og kynnum þjálfarana sem verða með Kris í hverjum flokki. Jafnframt er gaman að segja frá því að mikil áhersla verður á markamannsþjálfun í vetur þar sem slík þjálfun verður inn í æfingatöflu deildarinnar eins og önnur þjálfun.

Foreldrafundir framundan og fjör fyrir þau yngstu á sunnudag

Í lok þessarar viku og í þeirri næstu verðum við með foreldrafundi fyrir allra flokka í barna- og unglingastarfinu með þeirri undantekningu að við geymum þó þau allra yngstu aðeins meira inn í haustið. Á fundunum kynnum við þjálfara flokksins, segjum frá starfinu, veljum í foreldraráð og förum yfir ýmis praktísk mál fyrir veturinn. Fylgist með þegar þeir verða boðaðir.

Á sunnudag verðum við svo með opna æfingu fyrir þau yngstu þar sem allir eru velkomnir að prófa. Endilega kíkið á auglýsingar um viðburðinn og verið dugleg að deila og bjóða.


Arnviður Bragi Pálsson gengur til liðs við Fjölni

Arnviður Bragi Pálsson gengur til liðs við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Arnviður Bragi Pálsson hefur gengið til liðs við meistaraflokk karla hjá Fjölni frá Þór Akureyri.

Arnviður, eða Addi eins og hann er jafnan kallaður, er öflug skytta og sterkur varnarmaður sem kemur til með að styrkja leikmannahóp Fjölnis beggja vegna vallarins.

Meistaraflokksráð karla fagnar komu Arnviðar til félagsins. „Við erum mjög ánægð með að fá Adda til liðs við okkur. Hann er öflug skytta og frábær varnarmaður sem mun styrkja hópinn okkar mikið. Við höfum mikla trú á honum og erum sannfærð um að hann eigi eftir að reynast liðinu mikilvægur á komandi árum.“

Arnviður er spenntur fyrir nýju verkefni í Grafarvoginum: „Ég er gríðarlega ánægður og spenntur að vera partur af þessum spennandi hópi og ég trúi því að þessi hópur eigi eftir að ná langt í vetur. Ég mun leggja mig allan fram svo að þetta frábæra lið nái góðum árangri og vonandi verð ég fljótur að venjast því að klæðast gulri og blárri treyju.“

Við bjóðum Arnviði Braga hjartanlega velkominn í Fjölni og hlökkum til að sjá hann í Fjölnisbúningnum á komandi tímabili.


Emil fékk yfir 200 knús í kveðjuboðinu

Emil fékk yfir 200 knús í kveðjuboðinu

Sunnudagurinn 16. ágúst síðast liðinn var síðasti vinnudagur Emils Alengård sem yfirþjálfara Íshokkídeildar Fjölnis. Hann kom til starfa hjá deildinni árið 2020 og náði að koma að þjálfun flestra flokka félagsins með einhverjum hætti á þessu tímabili. Ákveðið var að slá saman lokahátíð Icelandic Hockey Festival og kveðjuboði fyrir Emil. Iðkendur, foreldrar, samstarfsfólk og aðrir velunnarar voru hvattir til að kíkja við og kveðja kappann. Vel rúmlega 200 manns mættu í athöfnina.

Pétur Magnússon formaður íshokkídeildar ávarpaði Emil og Andrea Kristjánsdóttir flutti stutta ræðu fyrir hönd iðkenda deildarinnar. Emil var svo leystur út með blómum og kveðjugjöfum frá klúbbnum og foreldrafélaginu. Það er ekki laust við að tár hafi sést á hvarmi þegar Emil hélt þakkarræðu enda fékk hann gott knús og kveðjur frá viðstöddum og margir fengu af sér kveðjumynd með honum.

Íshokkídeild Fjölnis þakkar Emil enn og aftur fyrir samstarfið og jafnframt þakkar öllum sem gáfu sér tíma til að koma í kveðjuboðið.


Viktor Alex Ragnarsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Viktor Alex Ragnarsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur ráðið Viktor Alex Ragnarsson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil. 

Viktor Alex kemur inn í þjálfarateymi Gunnars Vals Arnarsonar og mun samhliða starfi aðstoðarþjálfara sinna markmannsþjálfun hjá liðinu.

Viktor Alex þekkir vel til hópsins en hann kom inn í þjálfarateymið á seinni hluta síðasta tímabils. Þar sýndi hann strax góð áhrif í starfi sínu með markmönnum liðsins og lagði sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar þeirra.

Meistaraflokksráð karla fagnar því að Viktor Alex verði áfram hluti af þjálfarateyminu. „Það gleður okkur mikið að fá Viktor Alex inn í teymið með Gunnari Val. Hann sýndi strax á síðasta tímabili hversu góð áhrif hann hefur á markmennina og þeirra þróun. Við erum mjög ánægð með að halda samstarfinu áfram og hlökkum til komandi tímabils.“

Við bjóðum Viktor Alex velkominn og hlökkum til að sjá hann áfram að störfum hjá Fjölni á komandi tímabili.


Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði

Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði

Ungmennafélagið Fjölnir og Icewear hafa gert með sér samstarfssamning um íþróttafatnað fyrir íþróttagreinar félagsins. Samstarfið tekur til keppnis- og æfingafatnaðar fyrir handbolta, körfubolta og knattspyrnu, auk þjálfara- og félagsfatnaðar fyrir allar deildir félagsins. Samhliða verður unnið að þróun æfinga- og keppnisfatnaðar fyrir frjálsíþróttadeild Fjölnis og æfingarfatnaðar fyrir fimleika- og listskautadeildir.

Með samstarfinu verður Fjölnisfatnaður fáanlegur í nýrri verslun Icewear Sport í Fákafeni, þar sem hægt verður að kaupa fatnað og fá hann merktan. Einnig verður sett upp sérstök Fjölnissíða á heimasíðu Icewear þar sem félagsmenn munu geta kynnt sér úrvalið sem er í boði. Stefnt er að opnun verslunar í seinni part september.

Með samstarfinu er nýtt blað brotið í sögu beggja aðila, en Fjölnir verður hluti af fyrstu íþróttafélögum landsins til að keppa í fatnaði frá Icewear þvert á íþróttagreinar. Við hjá Fjölni erum stolt af því að keppa í fatnaði frá öflugu íslensku vörumerki og mun félagið njóta góðs af sterkri stöðu, reynslu og þekkingu Icewear á uppbyggingu vörumerkja, en þess má geta að Icewear var tilnefnt sem besta íslenska vörumerkið árið 2025.

„Við erum mjög ánægð með að fá Icewear til liðs við Fjölni. Það skiptir okkur miklu máli að félagsmenn hafi gott aðgengi að vönduðum Fjölnisfatnaði og að þjónustan sé einföld og aðgengileg. Við hlökkum til samstarfsins og teljum að það muni nýtast félaginu og okkar stóra hópi iðkenda vel,“ segir Guðmundur G. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Fjölnis.

„Við erum gríðarlega stolt af því að hefja þetta samstarf og fá tækifæri til að vinna með einu af stærstu íþróttafélögum landsins. Það er mikill metnaður hjá báðum aðilum og við erum virkilega spennt fyrir því sem fram undan er. Við lítum á þetta sem upphafið að öflugu og farsælu samstarfi til framtíðar, þar sem við getum lagt okkar af mörkum með vönduðum íþróttafatnaði, góðri þjónustu og öflugri vöruþróun. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í vegferð félagsins og sjá okkar vörur verða hluta af daglegu starfi þess, allt frá yngstu iðkendum upp í afreksfólk“ segir Heiðar Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Icewear.

Fjölnir býður Icewear hjartanlega velkomið í öflugan hóp samstarfsaðila félagsins og hlakkar til samstarfsins.


Íshokkítímabilið hófst á glæsilegri Festival-viku

Íshokkítímabilið hófst á glæsilegri Festival-viku

Íshokkítímabilið hjá Fjölni byrjaði með glæsibrag þetta árið en dagana 10.-16. ágúst fór fram Iceland Hockey Festival 2026. Iceland Hockey Festival er sannkallað æfinga- og upplifunarævintýri sem var opið leikmönnum frá öllum íslenskum og erlendum félögum. Það má sannarlega kalla þetta námskeið íshokkíhátíð eða festival. Það eru Íshokkídeild Fjölnis og fyrirtækið Festival Hokeja sameinuðu krafta sína á ný en í fyrra hófst samstarf þessara aðila með mjög vel heppnuðu námskeiði sem fram fór í ágúst í fyrra. Öll 80 pláss námskeiðsins voru nýtt en þátttakendur eru fæddir á árunum 2006-2020.

Yfirþjálfari var hinn pólski Maciek Fabiańczyk en í þjálfarahópnum með honum voru meðal annars Emil fráfarandi yfirþjálfari Fjölnis og Kris, nýr yfirþjálfari Fjölnis, Þjálfarahópurinn kom frá þremur löndum, auk Íslands. Alla sjö dagana var fjölbreytt og skemmtileg dagskrá yfir daginn. Auk hefðbundinna æfinga inn á ísnum fóru þátttakendur í ýmsa leiki, street hokkí, keilu og bingó svo eitthvað sé nefnt. Á lokahátíðinni fengu svo allir þátttakendur glæsilegar viðurkenningar eftir frábærlega vel heppnaða Festival viku.

Íshokkídeild Fjölnis þakkar Maciek og Festival Hokeja fyrir samstarfið. Jafnframt þökkum við öllum þjálfurum sem komu að þessu skemmtilega verkefni og ekki má gleyma öllum sjálfboðaliðunum úr hópi foreldra sem gerðu þetta að veruleika.

Allir þátttakendur frá bestu kveðjur frá Íshokkídeild Fjölnis og vonandi sjáumst við hress og kát á næsta ári. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Festivalinu.


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »