Fimm Fjölnismenn kepptu á U14 Select Trophy í Finnlandi

Fimm efnilegir leikmenn úr íshokkídeild Fjölnis tóku nýverið þátt í U14 Select Trophy-mótinu sem fram fór í Helsinki í Finnlandi.
Þeir Fannar Hólm, Ignat, Jökull, Fannar Þór og Guðsteinn voru fulltrúar Fjölnis í U14 Select-drengjalandsliðinu, sem er skipað efnilegustu leikmönnum víðs vegar af landinu.
Mótið fór fram við glæsilegar aðstæður þar sem lið frá fjórum þjóðum komu saman til keppni. Íslenska liðið vann einn leik á mótinu og öðlaðist um leið dýrmæta reynslu gegn sterkri alþjóðlegri mótspyrnu.
Slík verkefni eru mikilvægur þáttur í þróun ungra leikmanna og gefa þeim tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir, bæði innan sem utan íssins.
Fjölnir óskar þeim Fannari Hólm, Ignat, Jökli, Fannari Þór og Guðsteini innilega til hamingju með þátttökuna og frábæra frammistöðu. Jafnframt vill félagið hrósa Íshokkísambandi Íslands fyrir þetta metnaðarfulla framtak og vonast til að verkefnið verði áfram hluti af uppbyggingu ungra íslenskra íshokkíleikmanna.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026






