Signý Harðardóttir framlengir við Fjölni

Handknattleikskonan Signý Harðardóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni.
Signý, sem er fædd árið 2007, er ungur og efnilegur vinstri hornamaður sem hefur vakið athygli fyrir styrk sinn, snörp tilþrif og mikla vinnusemi. Hún er baráttuglöð á vellinum og leggur sig alltaf fram fyrir liðið, bæði í vörn og sókn. Fjölnir bindur miklar vonir við áframhaldandi þróun Signýjar á komandi tímabilum.
Signý sjálf er spennt fyrir framhaldinu: „Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að leggja mig fram um að gera betur í dag en í gær. Það er kraftur í hópnum og ég trúi því að við eigum eftir að gera góða hluti saman.“
Það eru góð tíðindi fyrir Fjölni að Signý hafi framlengt samning sinn og hlökkum við til að sjá meira af henni í gulu á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Aron Breki framlengir við Fjölni
03/06/2026
Sara Xiao semur við Fjölni
18/05/2026
Sara Kristín framlengir við Fjölni
11/05/2026








