Lokahóf handknattleiksdeildar Fjölnis fór fram með glæsibrag

Handknattleiksdeild Fjölnis hélt nýverið lokahóf sitt, þar sem leikmenn, þjálfarar og stuðningsfólk komu saman til að fagna vel heppnuðu tímabili. Stemningin var frábær og gleðin rík, enda margt til að minnast eftir veturinn.
Á hófinu voru veittar viðurkenningar til leikmanna sem sköruðu fram úr á tímabilinu:
- Besti leikmaður karla: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson
- Besti leikmaður kvenna: Berglind Benediktsdóttir
- Besti leikmaður Vængja: Óli Fannar Pedersen
- Efnilegasti leikmaður karla: Heiðmar Björgvinsson
- Efnilegasti leikmaður kvenna: Sara Kristín Pedersen
- Besti liðsfélagi kvenna: Sara Kristín Pedersen
- Besti liðsfélagi karla: Ólafur Malmquist
Það var ljóst að samheldni og metnaður einkenna handknattleiksdeild Fjölnis, og horfa leikmenn og þjálfarar björtum augum til næsta tímabils.
Aðrar fréttir af deildinni
Aron Breki framlengir við Fjölni
03/06/2026
Sara Xiao semur við Fjölni
18/05/2026
Signý Harðardóttir framlengir við Fjölni
13/05/2026
Sara Kristín framlengir við Fjölni
11/05/2026















