Margrét Helga Ólafsdóttir semur við Fjölni
Margrét Helga Ólafsdóttir semur við Fjölni

Margrét Helga Ólafsdóttir semur við Fjölni
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við Margréti Helgu Ólafsdóttur til næstu tveggja ára. Margrét, sem er fædd árið 2006, er spennandi sóknarleikmaður sem getur leyst allar stöður framarlega á vellinum og kemur til félagsins frá ÍH.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Margrét þegar aflað sér mikillar reynslu í meistaraflokki en hún hefur leikið alls 71 leik og skorað 20 mörk.
Margrét hefur þegar stigið sín fyrstu skref með Fjölni og leikið tvo leiki fyrir félagið þar sem hún hefur látið til sín taka með einu marki. Hún hefur komið mjög vel inn í hópinn og sýnt strax þá hæfileika sem gerðu hana að spennandi viðbót við leikmannahóp Fjölnis.
Vesko, þjálfari Fjölnis, er afar ánægður með að hafa fengið Margréti til félagsins:
„Að fá Margréti til liðs við okkur er mjög jákvætt og ég er persónulega mjög ánægður með þessi félagaskipti þar sem ég hef fylgst með henni í nokkurn tíma. Hún býr yfir framúrskarandi knattspyrnuhæfileikum og mjög góðum skilningi á leiknum. Hún gefur okkur fleiri möguleika inni á vellinum og eykur samkeppni innan hópsins. Hún sýndi strax sína hæfileika í fyrstu tveimur leikjunum og við trúum því að hún eigi aðeins eftir að verða betri með tímanum. Hún passar mjög vel inn í þá hugmyndafræði sem við viljum byggja á og við teljum að hún muni hjálpa okkur að ná bæði okkar skammtíma- og langtímamarkmiðum.“
Margrét sjálf hlakkar til nýja kaflans í Grafarvogi:
„Ég er mjög ánægð og spennt að vera komin í Fjölni í þennan frábæra hóp og ég er mjög spennt fyrir tímabilinu.“
Við bjóðum Margréti velkomna í Fjölni og hlökkum til að fylgjast með henni í gulu treyjunni á komandi tímabilum.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni

Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni.
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við Sóleyju Örnu Arnarsdóttur til næstu tveggja ára. Sóley, sem er fædd árið 2006, er efnilegur varnarmaður sem leikur aðallega sem miðvörður og kemur til félagsins frá ÍH eftir afar gott tímabil á síðasta ári.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sóley þegar aflað sér dýrmætrar reynslu í meistaraflokki og hefur leikið alls 44 leiki í meistaraflokksknattspyrnu. Hún er öflugur varnarmaður sem spilar af miklu sjálfstrausti, er hugrökk í sínum leik og örugg með boltann.
Sóley hefur þegar leikið sína fyrstu tvo leiki fyrir Fjölni og komið mjög jákvæð inn í hópinn með mikinn metnað og góða nærveru bæði innan vallar sem utan. Það verður spennandi að fylgjast með hennar þróun og framlagi í komandi verkefnum liðsins.
Vesko, þjálfari Fjölnis, er ánægður með að fá Sóleyju til félagsins:
„Við erum mjög ánægð með að hafa samið við Sóleyju til næstu tveggja ára. Hún gegndi mikilvægu hlutverki í liði ÍH á síðasta tímabili og kom til okkar með mikinn metnað frá fyrstu æfingu. Sóley er mjög klókur varnarmaður, sterk í tæklingum og yfirveguð undir pressu. Hún er einnig mjög jákvæð persóna sem mun bæta bæði gæði og breidd í hópinn. Hún kom vel inn í fyrstu tvo leikina í Íslandsmótinu og sýndi að hún er tilbúin í þessa áskorun.“
Sóley sjálf hlakkar til áframhaldandi verkefna með Fjölni:„Ég er mjög ánægð að vera komin í Fjölni og hlakka mikið til fyrir komandi tímabil ásamt því að fá að vera partur af þessum eðalhóp af fólki sem er til staðar í félaginu.“
Við bjóðum Sóleyju velkomna í Fjölni og hlökkum til að sjá hana halda áfram að vaxa og dafna í gulu treyjunni á næstu árum.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
Ainhoa Plaza Porcel gengur til liðs við Fjölni

Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við spænska sóknarleikmanninn Ainhoa Plaza Porcel út tímabilið. Ainhoa, sem er fædd árið 2001, kemur til félagsins með dýrmæta reynslu bæði frá Íslandi og Spáni.
Ainhoa lék með FHL tímabilið 2022 þar sem hún vakti athygli með góðri frammistöðu og skoraði 8 mörk í 18 leikjum. Hún kemur nú til Fjölnis frá spænska félaginu CE Europa sem leikur í næst efstu deild á Spáni.
Ainhoa lék sinn fyrsta leik fyrir Fjölni í gær þegar liðið vann glæsilegan 7:0 sigur gegn Augnabliki. Hún kom inn á völlinn á 60. mínútu og lét strax til sín taka með því að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið ásamt því að leggja upp annað mark.
Það verður spennandi að fylgjast með Ainhoa í gulu treyjunni í sumar, en hún er kraftmikill sóknarleikmaður með góðan hraða og sterka tæknilega eiginleika.
Vesko, þjálfari Fjölnis, er mjög ánægður með komu Ainhoa til félagsins:
„Við erum mjög ánægð með að fá Ainhoa til liðs við okkur. Hún er öflugur leikmaður með góða tæknilega hæfileika og mikinn hraða. Hún er einnig mjög jákvæð manneskja sem mun hjálpa liðinu að bæta sig og gefa okkur fleiri möguleika inni á vellinum. Reynslan hennar af íslenskum fótbolta hjálpar henni að aðlagast hratt og gæði hennar sáust strax í leiknum í gær. Hún er leikmaður sem við þurftum á að halda og við erum mjög spennt að sjá meira frá henni í sumar.“
Ainhoa sjálf er spennt fyrir nýju áskoruninni í Grafarvogi:
„I’m very happy to be here and to help the team in any way I can. I’m very excited about the project. My first game was a competitive one where I felt very comfortable with my teammates.“
Við bjóðum Ainhoa hjartanlega velkomna í Fjölni og hlökkum til að fylgjast með henni á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir framlengir við Fjölni
Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir framlengir við Fjölni

Ólöf Kristjana Þorvaldsdóttir framlengir við Fjölni
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við Ólöfu Kristjönu Þorvaldsdóttur til ársins 2027. Ólöf er uppalin hjá félaginu og hefur verið hluti af Fjölnisumhverfinu frá unga aldri.
Ólöf, sem er fædd árið 2007, er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst allar kantstöður vallarins, bæði sem bakvörður og kantmaður. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk árið 2023 en varð fyrir því óláni að slíta krossband skömmu síðar og missti því af nær tveimur árum vegna meiðsla.
Ólöf sneri aftur á völlinn í ágúst á síðasta ári og hefur síðan þá sýnt flottar framfarir dag frá degi. Hún hefur lagt gríðarlega mikið á sig í endurhæfingu og æfingum og það sést vel í hennar leik.
Vesko, þjálfari meistaraflokks kvenna, er mjög ánægður með að hafa Ólöfu áfram hjá félaginu:
„Við erum mjög ánægð með að hafa tryggt Ólöfu áfram hjá félaginu. Hún þurfti að ganga í gegnum erfiðan tíma vegna meiðslanna sinna en nú vonum við að það sé allt að baki og hún geti notið þess að spila fótbolta af fullum krafti. Ólöf er hæfileikaríkur leikmaður sem getur bæði spilað sem vængbakvörður og kantmaður. Hún hefur sýnt mjög góðar framfarir á undirbúningstímabilinu og við erum ánægð að hafa hana áfram hjá okkur næstu tvö árin hið minnsta. Hún er klárlega leikmaður framtíðarinnar sem passar mjög vel inn í verkefnið okkar.“
Það er mikið gleðiefni að Ólöf haldi áfram í Fjölni og verður spennandi að fylgjast með henni á komandi árum.
Til hamingju Ólöf!
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
Svala Margrét fulltrúi Fjölnis valin í æfingahóp U15 landsliðs Íslands
Svala Margrét fulltrúi Fjölnis valin í æfingahóp U15 landsliðs Íslands

Svala Margrét fulltrúi Fjölnis valin í æfingahóp U15 landsliðs Íslands
Svala Margrét Jónsdóttir (2011) var valin í æfingahóp U15 landsliðs Íslands sem kom saman til æfinga dagana 21. og 22. apríl. Valið er frábær viðurkenning á þeirri vinnu og framförum sem hún hefur sýnt á undanförnum misserum.
Svala er afar efnilegur markvörður sem hefur verið áður verið valin í verkefni af þessu tagi. Hún hefur staðið sig vel og sýnt fram á mikinn metnað.
Við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt af Svölu og hlökkum til að fylgjast áfram með hennar framþróun á komandi árum.
Vel gert Svala, við hjá Fjölni erum virkilega stolt!
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
Elma Karen í lokahóp hæfileikamótunar KSÍ
Elma Karen í lokahóp hæfileikamótunar KSÍ

Elma Karen var fulltrúi Fjölnis í lokahópi hæfileikamótunar KSÍ stúlkna
Elma Karen Ingimundardóttir (2012) tók þátt í lokahópi hæfileikamótunar Knattspyrnusambands Íslands og N1 sem fram fór dagana 16. til 18. mars. Valið er frábær viðurkenning á þeirri vinnu, hæfileikum og framförum sem hún hefur sýnt að undanförnu.
Elma er afar efnilegur miðjumaður sem stóð sig með prýði á æfingunum og var félaginu til mikils sóma. Hæfileikamótun KSÍ og N1 er mikilvægt þróunarverkefni þar sem efnilegir leikmenn víðs vegar af landinu koma saman til æfinga og undirbúnings fyrir framtíðina í landsliðsumhverfi.
Við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt af Elmu og hlökkum til að fylgjast áfram með hennar framþróun á komandi árum.
Vel gert Elma, við hjá Fjölni erum gríðarlega stolt!
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
María Eir framlengir við Fjölni
María Eir framlengir við Fjölni

María Eir Magnúsdóttir framlengir við Fjölni
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við Maríu Eir Magnúsdóttur til næstu tveggja ára, en María hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Fjölnis undanfarin tímabil.
María, sem er fædd árið 2001, er uppalin hjá Fjölni og þekkir því félagið og umhverfið afar vel. Hún er kraftmikill bakvörður sem gefur mikið til liðsins í sóknarleik, en á sama tíma er hún sterk varnarlega.
Á síðasta tímabili lék María 17 leiki í deild og bikar og skoraði alls 6 mörk. Hún er tæknilega mjög fær leikmaður, hefur sýnt stöðugar framfarir og leggur hart að sér til að læra og bæta sig en fremur.
María er einnig virkur þátttakandi í yngriflokka starfi félagsins þar sem hún gegnir þjálfarahlutverki og hefur verið frábær fyrirmynd fyrir unga leikmenn Fjölnis.
Vesko þjálfari liðsins er afar ánægður með að halda Maríu áfram innan raða félagsins:
„Við erum mjög ánægð að hafa framlengt samning Maríu til næstu tveggja ára. Hún er mikilvægur hluti af liðinu og sannkallaður Fjölnismaður. María er uppalin hjá félaginu og frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn. Hún er leikmaður sem allir þjálfarar vilja hafa í sínum hópi og við erum mjög ánægð að hún treysti verkefninu okkar og hafi framlengt samning sinn.“
María sjálf er spennt fyrir áframhaldinu:
„Ég er ótrúlega þakklát að fá að framlengja við Fjölni og er spennt að leggja inn vinnuna svo við náum okkar markmiðum.“
Það er mikið gleðiefni að María haldi áfram í Fjölni og verður spennandi að fylgjast með henni á komandi tímabilum.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026
Þengill Orrason aftur í Fjölni á láni frá Fram
Þengill Orrason aftur í Fjölni á láni frá Fram

Þengill Orrason aftur í Fjölni á láni frá Fram
Knattspyrnudeild Fjölnis hefur fengið varnarmanninn Þengil Orrason á láni frá Fram á nýjan leik, en Þengill lék einnig með Fjölni á láni á síðasta tímabili.
Þengill lék í yngri flokkum Fjölnis og því vel þekktur innan félagsins. Hann er sterkur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn leik, góðan varnarleik og mikinn karakter á vellinum.
Þengill kom fyrst sterkur fram á sjónarsviðið í efstu deild með Fram sumarið 2023 þegar hann fékk traustið í liðið undir stjórn Ragnars Sigurðssonar. Þar skoraði hann meðal annars tvö afar mikilvæg mörk í lokaspretti mótsins; sigurmark gegn KA og jöfnunarmark gegn ÍBV í Vestmannaeyjum sem hjálpaði Fram að tryggja sæti sitt í deildinni.
Á síðasta tímabili lék Þengill 12 leiki áður en hann hélt til Bandaríkjanna í nám, en nú snýr hann aftur í Grafarvoginn þar sem hann mun styrkja hóp Fjölnis á ný.
Birgir Birgisson, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, fagnar endurkomu Þengils:
„Þengil þekkjum við afar vel og hann hefur sterkar rætur í félaginu. Það er ánægjulegt að fá hann aftur til liðs við okkur og við hlökkum til að sjá hann í gulu treyjunni á ný. Velkominn heim, Þengill.“
Þengill sjálfur er spenntur fyrir að snúa aftur í Grafarvoginn:
„Geggjað að vera kominn aftur í Fjölni. Ég hvet alla til að mæta á völlinn í sumar og styðja okkur, þar sem við ætlum okkur stóra hluti í sumar. Áfram Fjölnir!“
Við bjóðum Þengil hjartanlega velkominn heim í Fjölni og hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum í sumar.
Aðrar fréttir af deildinni
Sóley Arna Arnarsdóttir semur við Fjölni
21/05/2026
Ainhoa Plaza Porcel semur við Fjölni
16/05/2026






















