Ungur Íslandsmeistari í uppsiglingu – Hera Dröfn Guðmundsdóttir skarar fram úr
Ungur Íslandsmeistari í uppsiglingu – Hera Dröfn Guðmundsdóttir skarar fram úr

Ungir og efnilegir leikmenn halda áfram að láta til sín taka innan tennisdeildar Fjölnis og þar er Hera Dröfn Guðmundsdóttir meðal þeirra sem hafa vakið sérstaka athygli. Hera, sem er aðeins tíu ára gömul, varð nýverið Íslandsmeistari í U12 stúlknaflokki og hefur á stuttum tíma sýnt framúrskarandi framfarir.
Tennis hluti af fjölskyldulífinu
Svava Tyrfingsdóttir, móðir Heru segir að tennis hafi komið snemma inn í hennar eigið líf:
„Pabbi minn byrjaði að spila tennis og ég fylgdi í kjölfarið. Þetta hefur alltaf verið hluti af lífinu, þó maður hafi kannski ekki verið að spila stöðugt allan tímann.“
Þegar kom að Heru segir Svava að áhuginn þróaðist á náttúrulegan hátt:
„Hún var fyrst í fimleikum og við höfum alltaf haft þá reglu að börnin prófi fleiri en eina íþrótt. Það er nefninlega svo mikil orka í þeim. Svo fórum við bara að spila saman og henni fannst það skemmtilegt og þá þróaðist þetta bara þaðan.“
Náttúrulegur hæfileiki og sterkt hugarfar
„Hún er bara íþróttakona í grunninn og er góð í öllum íþróttum sem hún tekur sér fyrir hendur,“ segir Svava.
Hún bætir við að Hera eigi auðvelt með að tileinka sér leiðbeiningar þjálfara og nýta þær í leik sínum. Það sést vel í leik hennar að hún treystir eigin getu og vinnur markvisst eftir því sem hún lærir.
Slíkt hugarfar, þar sem leikmaður hlustar, tileinkar sér og framkvæmir, er lykilatriði í tennis og útskýrir að miklu leyti þær framfarir sem Hera hefur sýnt á skömmum tíma.
Stöðug leiðsögn og sterk tenging
Hera hefur frá upphafi æft undir leiðsögn Irku Cacicedo Jaroszynska, tennisþjálfara Fjölnis sem tekur mikið að sér börn sem eru að taka sín fyrstu skref í íþóttinni. Irka hefur fylgt Heru í gegnum hennar fyrstu skref í tennis og áframhaldandi þróun. Slíkur stöðugleiki í þjálfun skiptir miklu máli, sérstaklega á mótunarárum leikmanna.
Undir leiðsögn Irku hefur Hera byggt upp sterkan grunn, bæði tæknilega og andlega, sem hefur án efa átt stóran þátt í þeim árangri sem hún hefur náð á stuttum tíma.
Íslandsmeistari með ró og yfirvegun
„Við skráðum hana bara nokkrum dögum fyrir mót og hún mætti einfaldlega með góða skapið og gott hugarfar. Hún var ekki mikið að hugsa um mótherja eða pressu, bara mæta og gera sitt besta. Að geta, tíu ára gömul, mætt á tennisvöll og verið ein með sjálfri sér og haldið einbeitingu í gegnum allt mótið — það er ótrúlegt,“ segir Svava.
Það sem stendur upp úr er ekki aðeins titillinn sjálfur, heldur hvernig Hera nær honum. Í leik hennar má sjá sjálfstraust og leikgleði, en einnig ákveðni, ró og einbeitingu; eiginleika sem eru oft það sem skilur á milli góðra leikmanna og þeirra bestu.
„Mér finnst skemmtilegast að dúndra boltanum“
Þegar Hera er spurð hvað henni finnist skemmtilegast við tennis stendur svarið ekki á sér:
„Að dúndra boltanum.“
Svarið endurspeglast í leik hennar. Hún sækir fram á vellinum, treystir á styrk sinn og nýtur þess að taka stjórn á stigum. Uppáhaldshöggið hennar er forhöndin, þar sem hún fær að láta vaða, en hún hefur einnig gaman af því að klára stig með kraftmiklum smössum við netið.
Líf utan tennisvallarins
Fyrir utan tennis er Hera fyrst og fremst tíu ára stelpa með fjölbreytt áhugamál. Hún spilar einnig fótbolta og nýtur þess að verja tíma með vinkonum sínum. Hera stundar einnig nám við Salaskóla þar sem uppáhaldsfögin hennar eru íþróttir og smíði.
Þegar kemur að uppáhalds mat er Hera með það á hreinu:
„Sushi og steik,“ segir hún ákveðin og uppáhalds litirnir eru blár og bleikur.
Þessi jafnvægi milli íþrótta, skóla og félagslífs er mikilvægur þáttur í hennar daglega lífi.
Íþróttafjölskylda
Í fjölskyldunni er einnig yngri systir Heru, Kolbrún, 5 ára, sem hefur þegar sýnt áhuga á íþróttum. Hún leikur sér gjarnan með tennisspaða og bolta þegar hún er í kringum æfingar og fylgist spennt með.
Björt framtíð framundan
Það sem gerir Heru sérstaklega athyglisverða er samspil hæfileika og hugarfars. Hera er klárlega með eiginleika sem eru lykilatriði í einstaklingsíþrótt þar sem leikmaðurinn stendur einn með sjálfum sér. Að geta tekist á við keppni með slíkri yfirvegun er ekki sjálfgefið. Það er merki um sterkan grunn sem getur borið hana langt. Með áframhaldandi þróun er ljóst að hér er á ferðinni leikmaður sem vert er að fylgjast vel með á komandi árum.
Árangur Heru endurspeglar jafnframt það öfluga starf sem unnið er með unga leikmenn innan tennisdeildar Fjölnis. Hann sýnir að markviss uppbygging og gott umhverfi getur skilað sterkum leikmönnum frá ungum aldri og vonandi verður árangur hennar til þess að hvetja fleiri unga leikmenn til að stíga sín fyrstu skref og taka þátt í starfi deildarinnar.
Tennisdeild Fjölnis fylgist spennt með Heru og við hlökkum til að sjá hvað framtíðin hefur upp á að bjóða!
Tímamót hjá tennisdeild Fjölnis: Daniel Pozo fyrstur til að skrifa undir
Tímamót hjá tennisdeild Fjölnis: Daniel Pozo fyrstur til að skrifa undir

Daniel Pozo hefur skrifað undir samning við tennisdeild Fjölnis og verður þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að gera slíkan samning. Um er að ræða stórt skref fyrir félagið, en um leið verðskuldaða viðurkenningu á þeim árangri og þeirri framþróun sem Daniel hefur sýnt á undanförnum árum. Daniel er fæddur árið 2009 og hefur verið hluti af prógrammi tennisdeildar Fjölnis frá átta ára aldri.
Daniel hefur markvisst unnið sig upp sem einn af efnilegustu leikmönnum landsins. Með stöðugum framförum, sterkri keppnishugsun og skýrum metnaði hefur hann sýnt að hann býr yfir þeim eiginleikum sem þarf til að ná langt í íþróttinni. Hann hefur jafnframt náð alþjóðlegri stöðu á styrkleikalistum ITF og UTR og er sá leikmaður úr röðum tennisdeildar Fjölnis sem hefur náð hæstum styrkleika á þeim listum til þessa.
Framlag hans til tennisdeildar Fjölnis nær þó langt út fyrir úrslit og árangur á vellinum. Daniel hefur verið skýr fyrirmynd innan deildarinnar, sýnt fagmennsku í hvívetna og lagt mikla áherslu á aga, vinnusemi og jákvætt hugarfar. Viðhorf hans og framkoma hafa haft jákvæð áhrif á liðsfélaga og umhverfið í kringum deildina. Ungir leikmenn líta upp til hans og hefur hann verið frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn sem eru bæði að stíga sín fyrstu skref og vinna sig upp innan deildarinnar.
Þróun hans sem leikmanns og einstaklings hefur farið hönd í hönd, þar sem hann hefur þroskast jafnt innan vallar sem utan. Slík samsetning hæfileika, metnaðar og karaktereinkenna er lykilþáttur í uppbyggingu sterkra íþróttamanna.
Samningurinn markar upphaf nýs kafla, bæði fyrir Daniel og tennisdeild Fjölnis, þar sem horft er til áframhaldandi framfara, aukinnar fagmennsku og enn meiri árangurs í framtíðinni, með það að markmiði að styðja enn frekar við þróun hans og skapa tækifæri til frekari afreka.
Carola Frank, yfirþjálfari tennisdeildar Fjölnis segir að miklar væntingar séu bundnar við framtíð Daniels og að félagið hafi fulla trú á getu hans:
„Við trúum því að með réttum stuðningi geti Daniel orðið einn af sterkustu tennisleikmönnum, ekki aðeins í sögu Fjölnis, heldur einnig á landsvísu og jafnvel á alþjóðlegum vettvangi. Hann er afar metnaðarfullur leikmaður sem vinnur markvisst að eigin framförum og hefur sýnt bæði þroska og fagmennsku í sínu starfi. Við teljum að hann falli mjög vel að þeirri stefnu sem við viljum byggja upp innan deildarinnar og hlökkum til að fylgjast með honum taka næstu skref á sínum ferli.“
Tennisdeild Fjölnis óskar Daniel Pozo innilega til hamingju með samninginn og þessum mikilvægu tímamótum fyrir félagið!






