Karólína Ósk framlengir við Fjölni
Karólína Ósk framlengir við Fjölni

Handknattleikskonan Karólína Ósk Arndal Sigurlaugardóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni fyrir komandi tímabil.
Karólína er öflugur hægri hornamaður og skotmaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í meistaraflokki kvenna. Hún er þekkt fyrir dugnað, samviskusemi og jákvætt hugarfar og er sannkallaður liðsstyrkur sem leggur ávallt sitt af mörkum, bæði innan vallar sem utan.
Magnús Þór Arnarsson, fulltrúi meistaraflokksráðs kvenna, fagnar því að Karólína verði áfram í herbúðum Fjölnis: „Það er okkur mikið ánægjuefni að Karólína verði áfram í Fjölnislitunum. Hún hefur sýnt mikla vinnusemi og metnað og er mikilvægur hluti af hópnum. Við hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að láta til sín taka og óskum henni innilega til hamingju með nýja samninginn.“
Karólína er sömuleiðis spennt fyrir framhaldinu: „Ég er spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að vaxa sem leikmaður og sem hluti af liðinu.“
Við hjá Fjölni fögnum því að Karólína taki slaginn með liðinu á komandi tímabili og hlökkum til að sjá hana áfram í gulu og bláu.
Aðrar fréttir af deildinni
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026
Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni
07/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Karólína Ósk framlengir við Fjölni
01/07/2026
AB-Sportvörur og handknattleiksdeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning
AB-Sportvörur og handknattleiksdeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning

Handknattleiksdeild Fjölnis og AB-Sportvörur hafa undirritað samstarfssamning fyrir komandi tímabil. Samningurinn felur í sér víðtækt samstarf um sérhæfðar handboltavörur og búnað fyrir starf deildarinnar.
Með samningnum verða AB-Sportvörur samstarfsaðili handknattleiksdeildarinnar þegar kemur að handboltaskóm, boltum, harpix, hlífðarbúnaði og öðrum sérhæfðum handboltavörum. Jafnframt njóta iðkendur, þjálfarar og deildin hagstæðra afsláttarkjara, auk þess sem samstarfið felur í sér stuðning við yngri flokka mót og sérstök fríðindi fyrir dómara deildarinnar. Þá fá allir iðkendur handknattleiksdeildar Fjölnis 20% afslátt af öllum Kempa-vörum hjá AB-Sportvörum og sami afsláttur stendur einnig öllum meðlimum 112unnar til boða.
Sveinn Þorgeirsson, formaður handknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar samstarfinu: „Það er deildinni okkar afar mikilvægt að hafa áreiðanlega og öfluga birgja. Við keppumst við að bjóða upp á frábæra þjálfun og aðstæður til handboltaiðkunar. AB-Sportvörur hafa á stuttum tíma byggt upp traust með frábærri þjónustu og gæða vörum sem smellpassar fyrir okkur. Við hlökkum til samstarfsins og erum þess fullviss að það mun hjálpa okkur sjálfboðaliðum og þjálfurum mikið við að halda úti flottu handboltastarfi í Grafarvogi.“
Jóakim Snær Sigurðarson, eigandi AB-Sportvara, segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið: „Við hjá AB-Sportvörum erum mjög stolt af því að fá tækifæri til að koma að því öfluga starfi sem unnið er innan handknattleiksdeildar Fjölnis. Félagið hefur byggt upp sterkt yngriflokkastarf í Grafarvogi og okkur finnst mikilvægt að geta lagt okkar af mörkum til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar. Samstarfið við Fjölni er okkur afar mikilvægt þar sem við viljum vera meira en verslun, við viljum vera virkir þátttakendur í handboltalífi á Íslandi. Með samstarfinu vonumst við til að geta styrkt starfið enn frekar með hágæða búnaði fyrir handboltann, góðri þjónustu og lausnum sem nýtast bæði leikmönnum, þjálfurum og félaginu í heild. Við höfum mikla trú á framtíð handboltans hjá Fjölni og hlökkum til að vera hluti af þeirri vegferð.“
Handknattleiksdeild Fjölnis bindur miklar vonir við samstarfið og er sannfærð um að það muni styrkja starf deildarinnar enn frekar, bæði með auknu aðgengi að sérhæfðum handboltavörum og öflugum samstarfsaðila sem deilir metnaði deildarinnar fyrir áframhaldandi uppbyggingu handboltans í Grafarvogi.
Aðrar fréttir af deildinni
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026
Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni
07/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Karólína Ósk framlengir við Fjölni
01/07/2026
Fjölnir og Keiluhöllin framlengja og efla samstarf sitt
Fjölnir og Keiluhöllin framlengja og efla samstarf sitt

Fjölnir og Keiluhöllin í Egilshöll hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning sem gildir til 1. september 2028. Með samningnum er samstarf aðila ekki aðeins framlengt heldur einnig eflt með auknum ávinningi fyrir iðkendur, foreldra, sjálfboðaliða og stuðningsfólk félagsins.
Keiluhöllin hefur verið öflugur samstarfsaðili Fjölnis um árabil og átt stóran þátt í fjölmörgum viðburðum og verkefnum félagsins. Með nýjum samningi eykst jafnframt sýnileiki Keiluhallarinnar innan félagsins, en fyrirtækið verður með vörumerki sitt á upphitunartreyjum meistaraflokka boltagreina auk þess að vera sýnilegt á helstu keppnisvöllum Fjölnis. Þetta styrkir enn frekar tengsl fyrirtækisins við félagið og samfélagið í Grafarvogi.
Meðal þess sem felst í samningnum er að uppskeruhátíð Fjölnis verður áfram haldin í samstarfi við Keiluhöllina og að sumarnámskeið félagsins munu áfram nýta aðstöðu Keiluhallarinnar í hádeginu næstu tvö sumur. Þá mun Keiluhöllin áfram leggja til vinninga í helstu happdrætti félagsins og styðja þannig við fjölmörg verkefni á vegum Fjölnis.
Samningurinn felur jafnframt í sér aukinn ávinning fyrir iðkendur og stuðningsfólk. Allir meðlimir 112unnar fá boltatilboð á drykkjum og 15% afslátt af matseðli gegn framvísun skírteinis, á meðan allir hópar og deildir á vegum Fjölnis geta nýtt sér 20% hópeflisafslátt af matseðli þegar bókað er í gegnum félagið. Þá munu Fjölnir og Keiluhöllin kynna sérstakan afmælispakka fyrir iðkendur félagsins. Iðkendur sem halda afmæli í Keiluhöllinni fá fría afmælisköku með pakkanum og um leið rennur stuðningur til Fjölnis í formi gjafabréfa sem nýtast í starfsemi félagsins.
Keiluhöllin stefnir sömuleiðis að því að bjóða þátttakendum á mótum sem haldin eru af Fjölni í Egilshöll sérstök tilboð á mótsdögum, þegar aðstæður og fyrirvari leyfa. Markmiðið er að gera mótsupplifun þátttakenda og fjölskyldna þeirra enn betri. Þá felur samstarfið einnig í sér aukin tækifæri til sameiginlegra markaðs- og kynningarverkefna, þar sem Keiluhöllin getur í samráði við félagið og viðkomandi deildir nýtt leikmenn Fjölnis í kynningarefni og auglýsingar tengdar samstarfinu.
Lóa Bjarnadóttir, rekstrarstjóri Keiluhallarinnar, segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið: „Við erum einstaklega stoltir samstarfsaðilar Fjölnis. Við sjáum fjölmörg tækifæri í að efla samstarfið enn frekar og nýta alla þá fjölbreyttu afþreyingu sem við höfum upp á að bjóða. Iðkendur Fjölnis eru hjartað og lífið í Egilshöllinni og frábærir nágrannar. Við hlökkum til samvinnunnar.“
Þorgeir Örn Tryggvaon, markaðsstjóri Fjölnis, tekur undir með Lóu: „Fjölnir fagnar áframhaldandi samstarfi við Keiluhöllina og hlakkar til að byggja enn frekar á þeim sterka grunni sem skapast hefur á undanförnum árum. Samstarfið mun áfram styðja við öflugt félagsstarf og skapa aukið virði fyrir iðkendur, fjölskyldur þeirra og stuðningsfólk félagsins“.
Fjölnir fagnar því að hafa endurnýjað og eflt samstarfið við Keiluhöllina til næstu ára og hlakkar til að byggja áfram á því góða samstarfi sem aðilar hafa átt um árabil, samfélagi Fjölnis til heilla.
Aðrar fréttir af félaginu
Next Level Gaming og handknattleiksdeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning
Next Level Gaming og handknattleiksdeild Fjölnis skrifa undir samstarfssamning

Handknattleiksdeild Fjölnis og Next Level Gaming hafa skrifað undir samstarfssamning sem gildir til loka ágúst 2028. Með samningnum verður Next Level Gaming einn af aðalstyrktaraðilum handknattleiksdeildarinnar og styður þannig við áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar á komandi árum.
Þrátt fyrir að þetta sé fyrsti formlegi samstarfssamningur aðila hefur Next Level Gaming stutt vel við starf Fjölnis allt frá stofnun fyrirtækisins og verið öflugur bakhjarl félagsins. Með undirritun samningsins er það góða samband nú formfest og samstarfið tekið á næsta stig.
Samningurinn felur meðal annars í sér aukinn stuðning við starf handknattleiksdeildarinnar, auk sýnileika á keppnisbúningum, auglýsingaskiltum í Egilshöll, leikskrám og öðru kynningarefni deildarinnar. Þá munu aðilar einnig vinna saman að fjölbreyttum viðburðum og verkefnum, meðal annars tengdum yngri flokkum, leikdögum og stuðningsmannastarfi deildarinnar.
Samhliða samninginum fá allir meðlimir 112unnar fá 30% afslátt af öllum spilatímum á PC, Playstation 5 og Nintendo gegn framvísun skírteinis.
Gunnar Valur Arason, yfirþjálfari handknattleiksdeildar Fjölnis, fagnar samstarfinu: „Next Level Gaming hefur staðið með okkur undanfarin ár og verið okkur dýrmætur samstarfsaðili. Það gleður okkur því sérstaklega að tilkynna að við höfum nú sameinað krafta okkar enn frekar og að þau hafi ákveðið að styrkja deildina. Frá upphafi hefur Next Level Gaming lagt ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð og trúir á mikilvægi þess að styðja við verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Við erum afar þakklát fyrir traustið og stuðninginn og hlökkum til að byggja áfram upp öflugt og farsælt samstarf á komandi misserum. Við hvetjum jafnframt alla til að kíkja í Next Level Gaming þar sem allir geta fundið sér skemmtun við sitt hæfi.“
Þórir Viðarsson, eigandi Next Level Gaming, segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið: Við hjá Next Level Gaming erum stolt af því að styðja við Fjölni og það öfluga starf sem unnið er innan félagsins. Okkur finnst mikilvægt að fyrirtæki í nærumhverfinu leggi sitt af mörkum til íþróttastarfsins, enda skilar það sér beint inn í samfélagið og hjálpar Grafarvogi að blómstra. Við höfum fulla trú á því sem fram undan er hjá handknattleiksdeildinni og hlökkum til að fylgjast með liðunum berjast fyrir því markmiði að komast upp í efstu deild.“
Handknattleiksdeild Fjölnis fagnar því að hafa formfest samstarfið við Next Level Gaming og hlakkar til áframhaldandi samstarfs á komandi árum. Samningurinn styrkir enn frekar uppbyggingu deildarinnar og skapar aukin tækifæri til að efla starfsemi hennar, leikdagsupplifun og umgjörð fyrir iðkendur, þjálfara, sjálfboðaliða og stuðningsfólk.
Aðrar fréttir af deildinni
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026
Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni
07/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Karólína Ósk framlengir við Fjölni
01/07/2026
Bílastæðamál við Egilshöll
Bílastæðamál við Egilshöll

Heimar hafa innleitt nýtt kerfi á bílastæðinu við Egilshöll.
Í dag fór af stað nýtt bílastæðakerfi við bílastæði Egilshallar. Samkvæmt upplýsingum frá Heimum verður áfram hægt að leggja gjaldfrjálst í allt að fjórar klukkustundir á almennum stæðum. Þau stærði sem flokkast sem almenn stæði eru flokkar E, D ,C og F, sjá nánar á skýringarmynd.
Einnig verða sérstök skammtímastæði við innganga hússins þar sem hægt verður að leggja án endurgjalds í allt að 15 mínútur. Þau stæði sem flokkast sem skammtímastæði eru A, B, G og H, sjá nánar á skýringarmynd.
Kerfið byggir á sjálfvirkri númeraplötugreiningu og verða engar bómur eða miðar. Ef dvalið er lengur en frítími leyfir verður hægt að greiða með snjallforritum, QR-kóða eða í greiðsluvél á staðnum sem staðsett er við aðalinngang Egilshallar.
Fjölnir hvetur iðkendur, foreldra og aðra gesti til að kynna sér breytingarnar vel og fylgjast með frekari upplýsingum þegar þær liggja fyrir.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Hildur Sóley framlengir við Fjölni til tveggja ára
Hildur Sóley framlengir við Fjölni til tveggja ára

Handknattleikskonan Hildur Sóley Káradóttir hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk kvenna hjá Fjölni til næstu tveggja ára.
Hildur gekk til liðs við Fjölni frá Haukum fyrir síðasta tímabil og lét strax að sér kveða. Hún er hraður og kraftmikill leikmaður, hörkuskytta og hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu frá komu sinni.
Meistaraflokksráð kvenna fagnar því að Hildur hafi framlengt samning sinn: „Strax frá komu sinni setti Hildur mark sitt á leik liðsins. Það er mikil ánægja að Hildur hafi ákveðið að halda áfram með liðinu næstu tvö árin,“ segir Magnús Þór Arnarsson fyrir hönd meistaraflokksráðs kvenna.
Þá segist Hildur hlakka til næsta veturs: „Ég er spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að vaxa sem leikmaður og vera hluti af þessari frábæru liðsheild.“
Fjölnir fagnar því að Hildur verði áfram hluti af liðinu og hlakkar til að fylgjast með henni á komandi árum í gulu og bláu á komandi árum.
Aðrar fréttir af deildinni
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026
Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni
07/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Karólína Ósk framlengir við Fjölni
01/07/2026
Sonik og Fjölnir skrifa undir samstarfssamning
Sonik og Fjölnir skrifa undir samstarfssamning

Fjölnir og Sonik hafa skrifað undir samstarfssamning sem gildir til loka árs 2028. Með samningnum er markmiðið að efla samstarf aðila á sviði viðburða, tækniþjónustu, tækjaleigu og stafrænnar miðlunar á komandi árum.
Þótt þetta sé fyrsti formlegi samstarfssamningur aðila hefur Sonik verið óformlegur samstarfsaðili Fjölnis um árabil og komið að fjölmörgum viðburðum á vegum félagsins, til að mynda þorrablóti Fjölnis og vorsýningu fimleikadeildar. Með undirritun samningsins er það góða samstarf nú fest í sessi til næstu ára.
Með samningnum styrkir Fjölnir enn frekar umgjörð viðburða sinna og fær aðgang að sérþekkingu Sonik á sviði tækniþjónustu, viðburðalausna og stafrænnar miðlunar. Samstarfið mun styðja við áframhaldandi uppbyggingu viðburðahalds félagsins og skapa enn betri upplifun fyrir iðkendur, foreldra, stuðningsmenn og gesti á viðburðum Fjölnis.
Þorgeir Örn Tryggvaon, markaðsstjóri Fjölnir, fagnar því að formfesta samstarfið. „Við höfum átt afar gott samstarf við Sonik undanfarin ár og það var því eðlilegt næsta skref að gera formlegan samstarfssamning. Sonik hefur ítrekað sýnt fram á fagmennsku, sveigjanleika og framúrskarandi þjónustu og við hlökkum til að byggja enn frekar á því samstarfi á næstu árum.”
Baldur Rafn Gissurarason, eigandi Sonik, segir samstarfið mikilvægt fyrir fyrirtækið: „Við höfum sterk tengsl til Fjölnis verandi búnir að vinna náið með þeim til fjölda ára, hvort sem það er tækniþjónusta á viðburðum þeirra eða sala og uppsetning á nýjum búnaði fyrir þá. Okkur hlakkar til að gera gott samstarf betra, gera fleiri skemmtileg verkefni með Fjölni og í leiðinni styðja við okkar heimalið, verandi fyrirtæki hérna í Grafarvogi. Áfram Fjölnir!”
Fjölnir fagnar því að formgera samstarfið við Sonik og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við fyrirtækið á komandi árum, með það að markmiði að efla viðburðahald, þjónustu og upplifun innan félagsins.
Aron Breki framlengir við Fjölni
Aron Breki framlengir við Fjölni

Handknattleiksmaðurinn Aron Breki Oddnýjarson hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla hjá Fjölni til næstu tveggja ára.
Aron Breki er uppalinn Fjölnismaður og hefur verið mikilvægur hluti af starfi félagsins um árabil. Hann er ekki aðeins öflugur leikmaður innan vallar heldur einnig afar dýrmætur félagsmaður sem ber hag Fjölnis fyrir brjósti og hefur mikla ástríðu fyrir uppbyggingu félagsins. Leikmenn sem hafa alist upp innan félagsins gegna lykilhlutverki í að varðveita sögu þess, gildi og menningu og þar er Aron Breki engin undantekning.
Meistaraflokksráð karla fagnar því að Aron Breki hafi ákveðið að halda áfram með félaginu.
„Það er okkur sönn ánægja að halda áfram samstarfi við Aron Breka, sem er ekki aðeins frábær leikmaður heldur einnig mikilvæg fyrirmynd í kringum starfið. Við erum spennt fyrir að sjá hann taka stórt hlutverk næsta vetur og blómstra áfram í gulu og bláu.“ segja Sveinn Þorgeirsson og Daníel Rúnarsson fyrir hönd meistaraflokksráðs karla.
Aron Breki segist sjálfur hlakka til framhaldsins hjá sínu uppeldisfélagi.
„Ég er virkilega ánægður með að fá að halda áfram í þessu verkefni hjá Fjölni. Það er draumur að fá að spila fyrir félagið mitt og taka þátt í að koma því aftur á þann stað sem það á heima.“ segir Aron Breki.
Framlenging Arons Breka er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu meistaraflokks karla, þar sem félagið leggur áherslu á að byggja á sterkum kjarna uppalinna leikmanna sem vilja leggja sitt af mörkum til framtíðar félagsins.
Aðrar fréttir af deildinni
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026
Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni
07/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Karólína Ósk framlengir við Fjölni
01/07/2026
Fjölnir og Aldan sameinast um öflugt samstarf í Grafarvogi
Fjölnir og Aldan sameinast um öflugt samstarf í Grafarvogi

Fjölnir og Aldan fisk og sælkeraverslun hafa gert með sér samstarfssamning sem mun færa iðkendum, foreldrum og stuðningsfólki félagsins fjölbreytt fríðindi ásamt því að styðja við fjáröflunarstarf yngri flokka félagsins. Með samningnum kemur Aldan inn sem einn af aðalstyrktaraðilum félagsins.
Aldan, sem er staðsett í Spönginni, opnaði skömmu fyrir áramót. Að baki versluninni standa þeir Páll og Haraldur, betur þekktir sem Palli og Halli, sem leggja mikla áherslu á gæði og persónulega þjónustu í allri sinni starfsemi. Þeir eru ekki ókunnugir Fjölnisfólki, en Palli rak áður fiskverslunina Hafið sem staðsett var á sama stað síðustu ár.
Sem hluti af samstarfinu munu allir iðkendur og foreldrar á vegum Fjölnis fá 10% afslátt af vörum hjá Öldunni gegn framvísun Abler-aðildar. Þá munu meðlimir 112unnar fá 15% afslátt af vörum búðarinnar gegn framvísun stuðningsmannakorts.
Einnig mun Aldan bjóða upp á gjafabréf hjá sér sem hluta af fjáröflunum yngri flokka Fjölnis í samráði við skrifstofu félagsins, sem mun skapa ný og spennandi tækifæri fyrir deildir félagsins til fjáröflunar.
Þorgeir Örn Tryggvason, markaðsstjóri Fjölnis, fagnar samstarfinu:
„Það er afar ánægjulegt að fá Ölduna til liðs við Fjölni. Við leggjum mikla áherslu á að byggja upp samstarf sem skilar raunverulegu virði fyrir okkar iðkendur, foreldra og stuðningsfólk og þetta samstarf gerir nákvæmlega það. Við hlökkum til að vinna með Öldunni á komandi árum.“
Palli, eigandi Öldunnar, tekur undir það:
„Aldan vill sem hverfisfiskbúð styðja við það góða starf sem Fjölnir stendur fyrir og sjá til þess að bæði íbúar Grafarvogs og iðkendur Fjölnis geti nálgast hollan og góðan fisk hjá okkur.“
Við hjá Fjölni fögnum þessu góða samstarfi og hvetjum alla til að kíkja við í Ölduna.
Sara Xiao semur við Fjölni
Sara Xiao semur við Fjölni

Handknattleikskonan Sara Xiao hefur samið við Fjölni um að spila með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili.
Sara, sem er fædd árið 2004, kemur til Fjölnis frá Selfossi en er uppalin hjá Fram. Hún er öflugur markvörður sem hefur vakið athygli fyrir öryggi sitt í markinu, góð viðbrögð og mikinn metnað.
Halldór Torfi Pedersen, í meistaraflokksráði kvenna, er einstaklinga ánægður með að hafa landað Söru: „Við teljum Söru passa einstaklega vel inn í ungan og metnaðarfullan hóp félagsins og bindum miklar vonir við framlag hennar á komandi tímabilum.“ Sara sjálf er spennt fyrir nýjum kafla hjá Fjölni: „Ég er mjög spennt að vera að koma í Fjölni og fá að takast á við nýjar áskoranir.“
Það eru afar góð tíðindi fyrir Fjölni að Sara hafi samið við félagið og hlökkum við til að sjá hana verja markið á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Kolbrún Ída framlengir við Fjölni
08/07/2026
Ragnheiður Sæunn framlengir við Fjölni
07/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Karólína Ósk framlengir við Fjölni
01/07/2026























