3. flokkur 16-18 ára
Boðið er upp á þjálfun fyrir 16-18 ára stráka í 3.flokki. Iðkendur mæta í íþróttafötum og skóm.
3. flokkur (2002-2004)
Mánudagar kl. 20:30-22:00 / Dalhús
Þriðjudagar kl. 19:15-20:45 / Fylkishöll
Miðvikudagar kl. 19:30-21:00 / Fylkishöll
Fimmtudagar kl. 18:30-20:00 / Fjölnishöll 1
Föstudagar kl. 18:00-19:30 / Fjölnishöll 1
Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Magnús Kári Jónsson
Þjálfari

Andri Sigfússon
Aðstoðarþjálfari

Ægir Steinarsson
Styrktarþjálfari

Hallgrímur Jónasson
Markmannsþjálfari
Skráning hér https://fjolnir.felog.is/.
Æfingagjöld handknattleiksdeildar má finna hér.
Handboltamarkmið
- Áhersla lögð á sterkan árásargjarnan varnarleik
- Að kenna fjölbreyttan sóknarleik
- Að þjálfa rétta ákvarðanatöku
- Að þjálfa áfram fjölbreytta sendingagetu og skottækni
- Kenna öll varnarafbrigði
- Að eggja áherslu á „maður á mann“ í vörn með réttri fótavinnu
- Að leggja áherslu á skipulagða samvinnu varnar og markmanns
- Að verjast í yfir-/undirtölu
- Að halda áfram að þróa hraðaupphlaup, bæði 1. og 2. bylgju
- Að þjálfa leikskilning leikmanna til að búa til hagstæða leikstöður
- Að þróa áfram sóknarleik með einum og tveimur línumönnum
Líkamleg markmið
- Sérstök áhersla á kraftþol, hraða og liðleika
- Skipulögð styrktarþjálfun með lóðum og þyngdum
Félagsleg markmið
- Að leikmenn séu orðnir virkir félagsmenn með þátttöku í starfi deildarinnar
- Að hafa æfingar markvissar og krefjandi
- Að viðhafa góðan aga á æfingum
- Að hittast utan æfinga, t.d. á spilakvöldum og sameiginlegum fjáröflunum
- Að byggja upp sterka liðsheild innan sem utan vallar
- Að leikmenn séu stoltir Fjölnismenn
- Axel Örn Sæmundsson
- Þrymill Þursi Arason
- Guðfastur Brjánn Pétursson
Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér