Æfingatöflur eru birtar með fyrirvara um villur eða breytingar.

5. – 4. þrep drengja

Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Þjálfarar á haustönn 2023

Nafn þjálfara

  • Skráning hefst 1.júlí 2023
  • Æfingagjöld fimleikadeildar má finna hér.

Markmið iðkenda

Miklvægt að iðkendur í keppnishópum setji sér markmið til að ná betri árangri.

  • Hafa vilja til að stunda æfingar og keppni
  • Hafa áhuga fyrir sinni íþrótt
  • Ávallt að hafa það markmið að bæta færni sína á öllum áhöldum
  • Keppast við að ná viðeigandi þrepi á keppnistímabilinu

Æfingar

Iðkendur í keppnis hópum æfa um 11 mánuði eða á ári og er góð mæting fyrir öllu svo hægt sé að ná þeim markmiðum sem þjálfari hópsins leggur upp með. Þrek, tækni og endurtekningar í æfingum eru nauðsynlegar og mikilvægt að iðkendur og foreldrar sýni æfingavali þjálfarans skilning. Hefðbundnar æfingar skv. stundaskrá fara fram á haustönn og vorönn en mikilvægt er að gera sér grein fyrir þeim breytingum sem verða á æfingum yfir árið.

 

Jóla- og páskaæfingar

Þjálfari hópsins í samaráði við verkefnastjóra ákveður hvernig æfingum skal háttað yfir hátíðir.

Fimleikamót

Iðkendum stendur til boða að taka þátt í ýmsum fimleikamótum. Þjálfarar í samráði við verkefnastjóra viðeigandi greinar skipuleggja með góðum fyrirvara hvaða mótum hópurinn tekur þátt í á keppnistímabilinu.

Mjög mikilvægt er að undirbúningur fyrir mót sé góður, bæði í fimleikasalnum og heima fyrir. Undirbúningstímabilið getur verið krefjandi fyrir iðkendur. Oft er verið að framkvæma nýjar æfingar og gott að foreldrar sýni því skilning. Þau þurfa nægan svefn, hollan mat og hvatningu til þess að æfingar þeirra skili sér best. Það er ávallt í höndum þjálfara hvaða mótum iðkandinn tekur þátt í á keppnistímabilinu.

Ákveðnar kröfur eru gerðar til keppnisfatnaðar á fimleikamótum. Fimleikafatnaðurinn eru til sölu á hjá umboðsaðila GK á íslandi, H verslun. Upphitunarfatnaður og annan Fjölnismerktan varning er hægt að kaupa hjá Craft

Upplýsingar allan um æfinga- og keppnisfatnað deildarinnar má finna hér.