Katrín Hallgrímsdóttir gengur til lið við Fjölni!

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Katrínu Hallgrímsdóttur til tveggja ára og gengur hún til liðs við meistaraflokk kvenna frá Aftureldingu.

Katrín er reynslumikill og öflugur leikmaður sem leikur í hægra horni. Hún er örvhent og þekkt fyrir mikinn dugnað, vinnusemi og baráttu innan vallar.

Katrín þekkir jafnframt vel til Þórs, þjálfara liðsins, en hún lék áður undir hans stjórn hjá Víkingi. Það er mikið ánægjuefni að fá Katrínu til liðs við Fjölni og erum við sannfærð um að hún muni falla vel inn í leikmannahópinn og styrkja hornamannsstöður liðsins.

Katrín er spennt fyrir nýjum kafla hjá Fjölni:

„Ég er mjög spennt fyrir þessum nýja kafla með Fjölni. Ég kem með metnað, reynslu og mikinn vilja til að leggja mitt af mörkum til liðsins, innan vallar sem utan. Mórallinn í hópnum er góður, þjálfarateymið samhelt og ég hlakka til að eiga skemmtilegt og gott tímabil með þessum frábæru karakterum!“

Við bjóðum Katrínu hjartanlega velkomna í Fjölni og óskum henni góðs gengis á komandi tímabilum!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »