Skákdeild Fjölnis Atskákmeistarar félagsliða 2026

Fjölmennasta Atskákmót skákfélaga var haldið í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur sl. laugardag, 14. nóvember.
Alls mættu 120 skákmenn til leiks að tefla fyrir sitt taflfélag. Það voru 18 skáksveitir sem tefldu og í hverri sveit tefldu 6 skákmenn. Hin öfluga skáksveit Fjölnis í Grafarvogi vann mótið í ár mjög örugglega, vann allar sínar viðureignir og fékk 14 liðsstig og 32½ vinning.
Þetta er glæsilegur árangur hjá Fjölni og í fyrsta sinn sem félagið vinnur þetta mót. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson vann allar skákir sínar sjö fyrir Fjölni. Jón Trausti Harðarson náði einnig eftirtektarverðum árangri hjá Fjölni og græddi 52 stig. Í öðru sæti urðu fráfarandi atskákmeistarar, Skákdeild Breiðabliks, með 12 liðsstig og 27½ vinning. Í þriðja sæti varð Taflfélag Reykjavíkur, með 9 liðsstig og 29 vinninga. Ung og efnileg B sveit Fjölnis, skipuð efnilegustu Rimaskóla krökkunum náði 11. sæti sem er ekki síður ánægjulegt.
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026







