Emmessís og Fjölnir gera tveggja ára samstarfssamning

Ungmennafélagið Fjölnir og Emmessís hafa gert með sér samstarfssamning til tveggja ára, eða til ársins 2028. Með samningnum verður Emmessís einn af aðalstyrktaraðilum félagsins og mun styðja við starfsemi knattspyrnu-, körfuknattleiks- og handknattleiksdeilda Fjölnis.
Samstarfið er sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að Emmessís hyggst flytja starfsemi sína í Grafarvoginn um áramótin og verður því enn sterkarihluti af nærumhverfi félagsins.
Samstarfið felur meðal annars í sér að Emmessís verður sýnilegt á keppnisbúningum meistaraflokka og yngri flokka í öllum þremur boltagreinunum, auk auglýsingamerkinga á keppnisvöllum félagsins. Sérstök áhersla verður jafnframt lögð á mótahald yngri flokka. Emmessís verður meðal annars styrktaraðili jólamóts knattspyrnudeildar og bikarmóts 6. flokks í handknattleik, sem bæði munu bera heitið Emmessís-mótið.
Ari Friðfinnsson, markaðsstjóri Emmessís, fagnar samstarfinu:
„Flutningurinn í Grafarvog markar ákveðin tímamót fyrir Emmessís og okkur finnst mikilvægt að láta gott af okkur leiða í hverfinu sem verður brátt okkar heimavöllur. Fjölnir er stór og mikilvægur hluti af samfélaginu í Grafarvogi og því er sérstaklega ánægjulegt að geta hafið þetta samstarf samhliða flutningunum. Við hlökkum til að verða sýnilegri og virkari þátttakandi í hverfinu og byggja upp öflugt samstarf við Fjölni til næstu ára.“
Samstarfið er mikilvægur liður í því að efla starfsemi Fjölnis og skapa enn betri umgjörð fyrir iðkendur félagsins. Markmið beggja aðila er að byggja upp öflugt og farsælt samstarf sem þróast og eflist með árunum, með það að leiðarljósi að skapa ný tækifæri og aukinn ávinning fyrir báða aðila.
Við hjá Fjölni bjóðum Emmessís hjartanlega velkomið í hóp samstarfsaðila Fjölnis og hlökkum til samstarfsins fram undan!
Aðrar fréttir af deildunum
Jóhannes Karl Bárðarson til Fjölnis!
08/11/2026
Ýmir Hjálmsson Semur við Fjölni!
07/11/2026
Almar Máni Þórisson aftur heim í Fjölni!
06/11/2026






