Eva Rakel Hallsdóttir snýr aftur til Fjölnis

Handknattleiksdeild Fjölnis fagnar endurkomu Evu Rakelar Hallsdóttur, sem hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið og gengið til liðs við meistaraflokk kvenna.

Eva Rakel er öflugur og fjölhæfur hornamaður sem er uppalin hjá Fjölni. Hún hefur verið erlendis við nám undanfarin ár en er nú búin að taka fram handboltaskóna á ný og komin aftur á kunnuglegar slóðir í Grafarvoginum.

Eva þekkir félagið vel og hefur þegar fallið vel inn í leikmannahópinn. Það er mikið ánægjuefni að fá hana aftur til liðs við Fjölni og við hlökkum til að fylgjast með henni á vellinum í vetur.

Eva er sömuleiðis spennt fyrir endurkomunni:

„Það er ótrúlega gaman að vera komin aftur í Fjölni. Ég er mjög spennt fyrir tímabilinu fram undan og hlakka mikið til að spila með þessum geggjuðu stelpum!“

Við bjóðum Evu Rakel hjartanlega velkomna aftur í Fjölni og óskum henni góðs gengis í vetur!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »