Svandís Erla skrifar undir hjá Fjölni

Svandís Erla skrifar undir hjá Fjölni
Svandís Erla Pétursdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Svandís Erla er mjög efnilegur sóknarmaður. Þrátt fyrir ungan aldur lék hún sinn fyrsta leik með meistaraflokki félagsins vorið 2025 og festi sig í sessi sem fastamaður í liðinu á síðasta tímabili.
Aðeins 14 ára gömul var Svandís valin í U18 landslið kvenna í byrjun þessa árs og var hluti af íslenska landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Suður-Afríku. Þar öðlaðist hún dýrmæta reynslu á alþjóðlegum vettvangi sem án efa mun nýtast henni vel á komandi árum.
Svandís er fyrirmynd bæði innan vallar sem utan. Hún er samviskusöm, mætir af miklum dugnaði á æfingar og leggur áherslu á heilbrigðan lífsstíl. Þessir eiginleikar, ásamt hæfileikum hennar á ísnum, gera hana að verðmætum liðsmanni og spennandi leikmanni til framtíðar.
„Svandís er metnaðarfullur leikmaður sem leggur sig alltaf fram og er frábær liðsfélagi. Hún hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og við hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að vaxa og dafna í Fjölni,“ segir Krisjanis Abolins, yfirþjálfari Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með henni á myndinni💛💙🏒

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026






