Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning

Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning 💛💙🏒

Brynja Líf Jóhannesdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.

Brynja er yngsti leikmaður meistaraflokks kvenna í vetur, en hún er aðeins 13 ára gömul á þessu ári. Þrátt fyrir ungan aldur er hún gríðarlega efnilegur sóknarmaður og hefur verið mikill markahrókur í öllum yngri flokkum. Hún hefur vakið athygli fyrir mikla sóknarhæfileika, áræðni og gott auga fyrir marki.

Brynja hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum og er nú farin að stíga sín fyrstu skref sem fastamaður í meistaraflokki. Það verður spennandi að fylgjast með áframhaldandi þróun hennar á næstu árum.

„Það er frábært að vera með leikmann eins og Brynju í hópnum. Hún er gríðarlegt efni, metnaðarfull og virkilega gaman að fylgjast með henni þróast sem leikmanni. Ég er sannfærður um að áður en langt um líður munu allir sem fylgjast með íslensku íshokkíi vita hver Brynja Líf er,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með Brynju á myndinni. 💛💙🏒

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »