Steinunn Erla áfram með Fjölni

Steinunn Erla áfram með Fjölni
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir hefur gert nýjan samning við Íshokkídeild Fjölnis.
Steinunn Erla er ein reynslumesta og sigursælasta íshokkíkona landsins en hún hefur leikið með öllum þremur kvennaliðum landsins. Hún hóf feril sinn hjá Skautafélagi Akureyrar og lék í mörg ár með íslenska kvennalandsliðinu, alveg frá upphafi þess.
Steinunn var valin íshokkíkona ársins 2009 af Íshokkísambandi Íslands. Hún hefur einnig leikið erlendis, meðal annars með Amager Jets og Sydney Bears, auk þess að hafa gegnt fyrirliðahlutverkum og komið að þjálfun.
Ferillinn er einstaklega glæsilegur. Árið 2025 varð hún Íslandsmeistari í áttunda sinn, sex sinnum með Skautafélagi Akureyrar og tvisvar með Fjölni. Þá var hún 43 ára og enn í fremstu röð íslenskra íshokkíkvenna.
„Steinunn er því ein af þeim konum sem hafa markað djúp spor í sögu íslensks kvennaíshokkís, bæði með landsliðinu og félagsliðum sínum og því er gríðarlega dýrmætt að hafa hana ennþá í okkar hópi,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis sem er með henni á myndinni.

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning
20/10/2026






