Harpa Dögg framlengir við Fjölni

Harpa Dögg framlengir við Fjölni

Harpa Dögg framlengir við Fjölni

Sóknarmaðurinn Harpa Dögg Kjartansdóttir hefur framlengt samning sinn við Íshokkídeild Fjölnis og verður áfram hluti af kvennaliði félagsins.

Ferill Hörpu Daggar er um margt sérstakur. Hún hóf ekki að æfa íshokkí fyrr en um þrítugt og æfði í eitt tímabil áður en leiðin lá til Svíþjóðar, þar sem hún bjó í fjögur ár og tók sér hlé frá íþróttinni. Eftir heimkomuna gekk hún til liðs við Fjölni frá SR fyrir sjö árum og hefur síðan verið mikilvægur hlekkur í uppbyggingu og þróun kvennahokkís hjá félaginu.

Harpa hefur ávallt verið þekkt fyrir jákvætt viðmót, mikla vinnusemi og óbilandi baráttuanda. Hún leggur sig fram í hverri æfingu og leik og er fyrirmynd bæði innan og utan íssins. Með reynslu sinni og eldmóði hefur hún haft jákvæð áhrif á liðsfélaga sína og skapað sterkan liðsheildaranda.

„Við hjá Fjölni fögnum því að Harpa Dögg hafi ákveðið að halda áfram með félaginu og hlökkum til að sjá hana áfram fara á kostum hér í Egilshöllinni,“ segir Pétur Magnússon formaður Íshokkídeildar sem er með henni á myndinni.


Emilía Rán skrifar undir hjá Fjölni

Emilía Rán skrifar undir hjá Fjölni

Emilía Rán skrifar undir hjá Fjölni

Emilía Rán Steinarsdóttir hefur skrifað undir samning við Íshokkídeild Fjölnis um að leika með meistaraflokki kvenna á komandi tímabili.

Emilía er uppalin á ísnum í Egilshöllinni og hefur alla tíð verið sterk tengd félaginu. Fyrir nokkrum misserum færði hún sig yfir til SR þar sem hún hélt áfram sinni þróun sem leikmaður, en hefur nú ákveðið að snúa aftur heim í Fjölni.

Endurkoma Emilíu er mikilvæg viðbót fyrir lið Fjölnis sem stefnir hátt á komandi tímabili. Þó hún sé aðeins 17 ára gömul mun hún með reynslu sinni og þekkingu á félaginu styrkja hópinn bæði innan og utan íssins.

„Það er mjög flott að fá Emilíu aftur hingað í Egilshöllina. Hún er mikilvægur leikmaður sem á eftir að þétta og styrkja hópinn verulega hjá okkur í vetur,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með henni á myndinni.


Sofia gerir nýjan samning

Sofia gerir nýjan samning

Sofia gerir nýjan samning

Sofia Sara Bjarnadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Íshokkídeild Fjölnis. Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára hefur Sofia verið fastamaður í meistaraflokki félagsins undanfarin ár og skipað sér í hóp efnilegustu leikmanna landsins.

Sofia bjó um tíma í Svíþjóð á yngri árum þar sem hún lagði grunninn að íshokkíferlinum sínum. Sú reynsla hefur nýst henni vel og hún hefur þróast í öflugan leikmann innan raða Fjölnis.

Samhliða góðu gengi með félagsliðinu hefur Sofia verið fastamaður í U18 kvennalandsliði Íslands undanfarin ár og tekið þátt í verkefnum landsliðsins með góðum árangri.

„Sofia er sannarlega mikilvægur hlekkur í liðinu svo við fögnum því vel og lengi að hafa hana áfram í liðnu,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með henni á myndinni.


Elísa Dís framlengir við Fjölni

Elísa Dís framlengir við Fjölni

Elísa Dís framlengir við Fjölni.

Elísa Dís Sigfinnsdóttir hefur framlengt samning sinn við Íshokkídeild Fjölnis. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún leikið lengi í meistaraflokki Fjölnis.

Elísa Dís er lykilmaður í sóknarleik liðsins og hefur átt fast sæti í landsliðum Íslands, fyrst U18 liðinu og svo kvennalandsliðinu.

Íshokkídeild Fjölnis lýsir yfir mikill ánægju með að Elísa Dís hafi framlengt samninginn. Með Elísu Dís á myndinni er Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis.


Elín endurnýjar samning sinn við Fjölni

Elín endurnýjar samning sinn við Fjölni

Elín endurnýjar samning sinn við Fjölni

Íshokkídeild Fjölnis hefur gengið frá nýjum samningi við varnarmanninn Elínu Boamah Darkoh Alexdóttur, sem mun því áfram klæðast treyju Fjölnis á komandi tímabili. Elín hefur leikið með Fjölni allan sinn feril og skipað sér í hóp lykilmanna liðsins. Hún er öflugur varnarmaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í varnarleik Fjölnis um árabil og lagt sitt af mörkum bæði innan vallar sem utan.

Auk þess að vera fastamaður hjá Fjölni hefur Elín einnig verið valin til verkefna með landsliðum Íslands. Hún hefur leikið fyrir bæði U18 landslið Íslands og A-landslið kvenna, þar sem hún hefur öðlast mikilvæga reynslu á alþjóðlegum vettvangi.

„Það er mikil ánægja að hafa Elínu áfram í okkar herbúðum. Hún er öflugur leikmaður sem þekkir félagið út og inn og hefur sýnt mikla tryggð og metnað í gegnum árin. Við hlökkum til að sjá hana halda áfram að vaxa og dafna með liðinu,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með Elínu á myndinni.


Nýr samningur hjá Maríönu

Nýr samningur hjá Maríönu

Maríana P. Birgisdóttir hefur endurnýjað samning sinn við Íshokkídeild Fjölnis. Maríana hefur æft og spilað með Fjölni frá unga aldri og er því einn af reynslumeiri leikmönnum liðsins. Hún gegndi mikilvægu hlutverki í þeim árangri sem skilaði félaginu Íslandsmeistaratitlum árin 2024 og 2025. Auk þess að vera öflug innan vallar hefur Maríana einnig lagt sitt af mörkum í þjálfun hjá félaginu og þannig tekið þátt í að þróa næstu kynslóð leikmanna.

 

„Við hjá Fjölni fögnum því að Maríana verði áfram hluti af félaginu og hlökkum til að sjá hana áfram á ísnum,“ segir Pétur Magnússon formaður Íshokkídeildar Fjölnis sem er með henni á myndinni.


Karen Ósk áfram með Fjölni

Karen Ósk áfram með Fjölni

Karen Ósk áfram með Fjölni

Einn af reynsluboltum kvennaliðs Fjölnis, Karen Ósk Þórisdóttir, hefur framlengt samning sinn við Íhokkídeild Fjölnis. Karen Ósk er enginn nýgræðingur þegar íshokkí er annars vegar og hefur æft og keppt í þessari skemmtilegu íþrótt lengi, auk þess sem hún á að baki um 15 leiki fyrir íslenska landsliðið í íshokkí.

„Karen Ósk var einmitt í lykilhlutverki í liðinu þegar það var Íslandsmeistari 2024 og 2025 og því er mjög mikilvægt að hún sé áfram með okkur,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis sem er með henni á myndinni.


Fréttabréf 11. október 2026 – Íshokkídeild Fjölnis

Fréttabréf 11. október 2026 – Íshokkídeild Fjölnis

Hér kemur fréttabréf Íshokkídeildar í október.

 

Nóg að gerast á öllum vígstöðvum

Það hefur sannarlega verið mikið um að vera í Íshokkídeild Fjölnis undanfarnar vikur og má sjá umfjöllun um fjölbreytta starfsemi okkar, meðal annars í myndasyrpum á Facebook-síðu deildarinnar.

Yngstu iðkendur okkar tóku þátt í fyrsta móti vetrarins í Laugardalnum um síðustu helgi þar sem gleðin og stemningin voru í fyrirrúmi. U12-liðin okkar heimsóttu Akureyri á dögunum og gekk það afar vel. Um helgina fór síðan fram fyrsta U14 mót vetrarins. Stóðu bæði lið Fjölnis sig frábærlega og snúa heim efst í sínum flokkum.

U16A-liðið er á glæsilegri siglingu eftir sigra gegn SA á Akureyri og SR í Laugardalnum nýlega og situr liðið nú á toppi deildarinnar. U16B-liðið hefur átt aðeins erfiðara uppdráttar að undanförnu, en með áframhaldandi vinnu og samheldni er ljóst að betri tímar séu fram undan.

U18-liðið leikur sinn fyrsta heimaleik vetrarins á þriðjudagskvöld klukkan 19:45 gegn SR. Liðin mættust nýverið í Laugardalnum þar sem við höfðum sigur. U17 kvenna hefur síðan keppni á Akureyri síðar í þessum mánuði.

Meistaraflokkur kvenna leikur næst í Laugardalnum þriðjudaginn 27. október, en meistaraflokkur karla tekur þátt í fyrstu ofurhelgi ársins dagana 23.-25. október, þar sem liðið leikur einnig í Laugardalnum.

Við hvetjum alla stuðningsmenn til að fylgjast með starfseminni og mæta á leiki til að styðja liðin okkar.

 

Hokkískóli fullorðinna – þar sem draumarnir rætast

Einn stærsti og skemmtilegasti hópur í Íshokkídeild Fjölnis er hokkískóli fullorðinna. Hópurinn æfir tvisvar í viku undir stjórn Andra Freys þjálfara þar sem þátttakendur fara í gegnum æfingar og spila íshokkí í frábærum félagsskap.

Í hópnum eru einstaklingar á öllum getustigum og er sérstaklega vel tekið á móti nýliðum sem eru að stíga sín fyrstu skref, eða réttara sagt skauta sína fyrstu metra, á ísnum.

Allur nauðsynlegur búnaður er til útláns og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við Andra í gegnum netfangið andri.freyr@fjolnir.is.

Mynd fréttabréfsins að þessu sinni var tekin á æfingu hjá hokkískólanum nýlega.

 

Leikmannasamningar

Þessa dagana er verið að ganga frá leikmannasamningum við leikmenn meistaraflokka félagsins. Samningarnir fela fyrst og fremst í sér táknræna viljayfirlýsingu um samstarf leikmanns og félags á hæsta keppnisstigi í íslensku íshokkíi.

Fyrir félagið er öflug starfsemi meistaraflokka mikilvægur þáttur í uppbyggingu og þróun íshokkístarfsins. Sterkir meistaraflokkar hafa jákvæð áhrif á barna- og unglingastarfið og veita yngri iðkendum mikilvægar fyrirmyndir og markmið til að stefna að.

Á sama tíma er rekstur meistaraflokkanna enn krefjandi. Tekjur starfseminnar eru takmarkaðar og rekstur hennar stendur vart undir sér. Unnið er markvisst að því að fjölga styrktaraðilum og efla tekjugrunn félagsins til framtíðar.

Félagið leggur því áherslu á að veita leikmönnum eins góða aðstöðu, þjálfun og umgjörð og kostur er hér á landi. Þó eru fjárhagsleg framlög og búnaðarstyrkir enn takmarkaðir og byggir starfsemin að miklu leyti á þeirri ástríðu og metnaði sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar leggja í starfið á hverjum degi.

Leikmannsamningar verða kynntir með myndum af viðkomandi leikmönnum á miðlum félagsins. Fyrstu kynningarnar birtust í dag en svo munu koma 2-3 fréttir á dag, á næstu dögum og vikum.

Við hvetjum sem flesta til að vera dugleg að „læka“ á fréttirnar og hvetja þannig leikmennina okkar til dáða.


Agga framlengir við Fjölni

Agga framlengir við Fjölni

Agga framlengir við Fjölni

Sigrún Agatha Árnadóttir (Agga) hefur skrifað undir nýjan samning við Íshokkídeild Fjölnis. Hún er einn leikreyndasti leikmaðurinn í íslensku kvennahokkíi og margreynd landsliðskona. Hún lék lítið með Fjölni á síðasta tímabili vegna erfiðra meiðsla en kemur nú tvíefld til leiks.

„Það er frábært fyrir okkur að fá Öggu aftur inn í hópinn“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með henni á myndinni.


Laura-Ann framlengir við Fjölni

Laura-Ann framlengir við Fjölni

Laura-Ann framlengir við Fjölni

Laura-Ann Murphy hefur framlengt samning sinn við Íshokkídeild Fjölnis. Hún er fyrirliði liðsins og var valinn leikmaður ársins í félaginu á síðasta tímabili. Laura-Ann er þrautreyndur leikmaður og þjálfari. Hún á að baki fjölda leikja fyrir Fjölni og íslenska landsliðið og er einn af reyndustu leikmönnum okkar.

Íshokkídeild Fjölnis lýsir yfir mikill ánægju með að Laura-Ann hafi endurnýjað samninginn.


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »