Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni

Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni 💛💙🏒
Enn einn efnilegur leikmaður úr okkar röðum tekur stórt skref. Bríet Jara Óladóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Bríet er efnilegur markvörður sem hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Hún stendur vaktina í marki U17 kvennaliðs Fjölnis, er hluti af U16 hópnum og hefur jafnframt verið að banka fast á dyr meistaraflokksins.
Á síðasta tímabili fékk hún fyrst að kynnast meistaraflokksumhverfinu en í vetur hefur hlutverk hennar stækkað enn frekar. Þar heldur hún áfram að safna reynslu og taka mikilvæg skref í sinni þróun.
„Góðir markverðir eru lykillinn að öflugu íshokkíliði. Markviss vinna okkar í markmannsþjálfun undanfarin ár er að skila sér í flottum hópi ungra markvarða. Bríet er þar sannarlega ein af þeim sem við höfum miklar væntingar til og framtíðin er spennandi,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »