Tindra Mist skrifar undir sinn fyrsta samning

Tindra Mist skrifar undir sinn fyrsta samning
Tindra Mist Kristjánsdóttir hefur skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við Íshokkídeild Fjölnis.
Tindra Mist, sem er aðeins 14 ára gömul, hefur alist upp í yngri flokkum félagsins og getið sér mjög gott orð með frammistöðu sinni undanfarin ár. Hún er afar efnilegur varnarmaður sem hefur vakið athygli fyrir mikinn dugnað, vinnusemi og einstaklega góðan leikskilning. Hún er yfirveguð í sínum aðgerðum og hefur sýnt mikinn metnað til að bæta sig og þróast áfram sem leikmaður.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Tindra Mist sýnt að hún er tilbúin að taka næsta skref. Það verður því spennandi að fylgjast með henni takast á við nýjar áskoranir með meistaraflokki og halda áfram að vaxa og þroskast sem leikmaður.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá unga leikmenn úr okkar eigin starfi taka skrefið upp í meistaraflokk. Tindra Mist hefur einstakan hæfileika til að lesa leikinn, er dugleg og metnaðarfull og við höfum mikla trú á henni til framtíðar. Hún á eftir að halda áfram að vaxa sem leikmaður og við hlökkum mikið til að fylgjast með hennar næstu skrefum,“ segir Pétur Magnússon, formaður Íshokkídeildar Fjölnis, sem er með Tindru Mist á myndinni. 💛💙🏒

Aðrar fréttir af deildinni
Flosrún Vaka gerir nýjan samning
31/10/2026
Steinunn Erla áfram með Fjölni
23/10/2026
Bríet Jara tekur næsta skref með Fjölni
23/10/2026
Brynja Líf gerir sinn fyrsta samning
20/10/2026






