Fréttabréf 22. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Fréttabréf 22. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Frábær byrjun hjá meistaraflokki karla

Frá síðasta fréttabréfi hefur heilmikið verið að gerast í félaginu okkar. Hæst ber þó án efa glæsilegur sigur meistaraflokks karla í fyrsta heimaleik tímabilsins sem fram fór á laugardaginn. Þar unnu þeir sannfærandi 4-1 sigur á Skautafélagi Akureyrar.

Það var frábært að sjá hversu margir mættu til að styðja liðið okkar og lukkukrakkarnir sem komu fram í byrjun gáfu sannarlega tóninn fyrir skemmtilegan og fjörugan leik. Myndasyrpu frá leiknum má finna á Facebook-síðu íshokkídeildarinnar.

Fleiri flokkar hafa einnig verið í eldlínunni. Síðastliðinn þriðjudag sigraði U18-liðið okkar SR í hörkuspennandi leik. U16-liðin léku bæði um síðustu helgi. Á föstudaginn fór U16B-liðið í heimsókn í Laugardalinn þar sem heimaliðið hafði betur. Á laugardaginn tók U16A-liðið á móti SA og tapaði 4-5 í æsispennandi leik.

Í kvöld tekur U16B-liðið á móti SR í Egilshöllinni. Fyrir komandi helgi ríkir mikil spenna þar sem fyrsta helgarmótið í U12-flokki fer fram á Akureyri. Þar erum við með þrjú lið til keppni og verður án efa mikið fjör.

Að lokum er rétt að geta þess að lítið verður um æfingar í Egilshöllinni um helgina vegna mótahalds á vegum listskautadeildarinnar. Nánari upplýsingar má finna í Abler.

 

Stelpurnar okkar á Atlantic Cup um helgina

Nú um helgina tekur meistaraflokkur kvenna þátt í skemmtilegu æfingamóti, Atlantic Cup, sem fram fer á skautasvellinu í Laugardal. Þátttökuliðin eru fjögur. Auk íslensku liðanna þriggja verður landslið Írlands gestalið mótsins. Ekki er langt síðan írska kvennalandsliðinu var komið á fót og er liðið nú að stíga sín fyrstu skref.

Okkar stelpur leika einmitt opnunarleik mótsins gegn Írum og verður spennandi að fylgjast með þeirri viðureign. Eins og áður segir fara allir leikir mótsins fram í Laugardalnum og hér fyrir neðan er dagskráin. Við hvetjum sem flesta til að mæta og styðja stelpurnar okkar.

Föstudagur 25. september kl. 18:45
Fjölnir – Írland

Laugardagur 26. september kl. 16:45
Fjölnir – Skautafélag Akureyrar

Sunnudagur 27. september kl. 20:00
Fjölnir – Skautafélag Reykjavíkur

 

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Í upphafi keppnistímabils er ágætt að við foreldrar stöldrum aðeins við og minnum okkur á að við erum mikilvægustu fyrirmyndir barna okkar, bæði innan vallar og utan.

Þegar við mætum á leiki og æfingar fylgjast börnin með okkur ekki síður en þjálfurunum. Orð okkar, viðbrögð og framkoma kenna þeim hvernig á að sýna öðrum virðingu, takast á við sigra og ósigra og vera góðir liðsfélagar.

Hvetjum, styðjum og fögnum öllum börnum fyrir þeirra framlag. Gætum að orðum okkar gagnvart dómurum, andstæðingum, þjálfurum og öðrum foreldrum. Ef okkur þykir eitthvað verulega ábótavant í framkomu dómara eða annarra og teljum mikilvægt að koma því á framfæri, skulum við gæta þess að slíkar umræður fari ekki fram fyrir framan börnin okkar. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Með jákvæðri framkomu hjálpum við til við að skapa umhverfi þar sem börnum líður vel, njóta íþróttanna og geta blómstrað.

Munum að leikurinn er þeirra, en fyrirmyndin er okkar.


Mæðgur léku saman með Fjölni í Toppdeildinni

Mæðgur léku saman með Fjölni í Toppdeildinni

Mæðgur léku saman með Fjölni í Toppdeildinni

Sá sjaldgæfi en skemmtilegi atburður átti sér stað í leik Skautafélags Akureyrar og Fjölnis í Toppdeild kvenna síðasta laugardag að mæðgur léku hlið við hlið í liði Fjölnis.

Á laugardaginn var fyrsti leikur Fjölniskvenna í Toppdeild kvenna þennan veturinn. Þar lék Elísabet Erla Grétarsdóttir (14 ára) sinn fyrsta leik í meistaraflokki með liði Fjölnis. Ekki er það eina fréttnæmt því með liðinu leikur einnig móðir hennar Sigrún Agatha Árnadóttir, margreynd landsliðskona í íshokkí. Þó úrslitin hafi ekki verið eins og best verður á kosið verður þetta örugglega eftirminnileg stund fyrir þær. Samkvæmt heimildum er þetta í fyrsta skipti sem mæðgur leika saman með kvennaliði Fjölnis í íshokkí, jafnvel innan alls félagsins.

Ekki er ólíklegt að þær mæðgur leiki aftur saman í fleiri leikjum í vetur.


Fréttabréf 14. september 2026 - Íshokkídeild Fjölnis

Fréttabréf 14. september 2026 - Björninn, Íshokkídeild Fjölnis

Foreldrafundir ganga vel – Takk fyrir góða þátttöku!

Í síðustu viku fóru fram foreldrafundir hjá U16, U14 og U12 en í eldri hópunum eru iðkendur líka boðaðir. Íshokkídeild vill þakka fyrir glimmrandi mætingu, frábært andrúmsloft og jákvæð viðbrögð við að finna fólk í þau verkefni sem framundan eru í foreldrastarfinu og starfi deildarinnar. Ennþá eru þó ýmis verkefni ómönnuð þannig að endilega látið í ykkur heyra ef þið hafið tíma aflögu í skemmtileg og mikilvæg verkefni. Það má til dæmis gera með því að hafa samband hokkiformadur@fjolnir.is

Á næstunni verð svo boðaðir foreldrafundir fyrir þau yngstu sem ætlunin er að fram fari í næstu viku.

 

Keppnistímabilið hafið hjá okkar fólki – Fyrsti heimaleikur meistaraflokks karla á laugardaginn!

Um síðustu helgi hófst keppnistímabilið hjá okkar fólki. Á föstudagskvöldið vann U16A glæsilegan sigur á SR. Á laugardaginn lék svo meistaraflokkur kvenna sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar þær héldu til Akureyrar og mættu heimakonum í SA. Þar biðu okkar dömur lægri hlut líkt U16B liðið okkar, sem einnig spilaði við SA á Akureyri á laugardag.

U18 ára liðið okkar mætir svo SR í Laugardalnum 15. september og á föstudagskvöld fer U16B í heimsókn í Laugardalinn. Á laugardaginn hefur meistaraflokkur karla svo leik á þessu tímabili. Þá er fyrsti heimaleikurinn þegar við tökum á móti SA hér í Egilshöllinni kl 16:45 og hvetjum við alla til að fjölmenna. Strax eftir karlaleikinn á laugardaginn fær svo U16A liðið okkar SA í heimsókn hingað í Egilshöllina.

 

Sala árskorta hafin – Tryggðu þér eintak!

Samhliða upphafi keppnistímabilsins hjá meistaraflokkunum okkar fer í gang sala árskorta. Árskortin eru mikilvægur liður í fjáröflunarstarfi meistaraflokkanna auk þess sem þau tryggja þér aðgang að Toppdeildum karla og kvenna í svölustu íþrótt í heimi, ásamt hressingu úr bestu búð landsins, Bjarnarbúðinni. Árskortin eru þetta árið boðin í fjórum mismunandi flokkum: Brons, silfur, gull og demantur. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvað mismunandi flokkar árskorta fela í sér.

Hægt er að tryggja sér eintak með því að senda póst á hokki@fjolnir.is.


Þórir, Einar og Tuomas komnir í þjálfarahóp Íshokkídeildar

Þórir, Einar og Tuomas komnir í þjálfarahóp Íshokkídeildar

Íshokkídeild hefur ráðið þrjá nýja þjálfara í barna- og unglingastarfið, þá Þóri Hermannsson Aspar, Einar Hildarson og Tuomas Ilmari Heikkonen.

 

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Þórir Hermannsson Aspar leikið íshokkí bæði hér á landi og í Svíþjóð. Hann hefur komið að aðstoðarþjálfun síðustu ár hjá Fjölni en kemur nú inn í lykilþjálfarastöðu hjá U14 og U16 liðunum ásamt Kris yfirþjálfara félagsins. Þórir mun jafnframt koma að markmannsþjálfun hjá yngstu iðkendunum.

 

Einar Hildarson hefur æft íshokkí árum saman. Hann hefur undanfarin ár aðstoðað við þjálfun yngstu iðkendana en kemur nú formlega inn í þjálfarateymið sem aðstoðarþjálfari með yfirþjálfurunum Andra og Flosrúnu í Hokkískóla barna ásamt U8 og U10 ára aldursflokkunum.

 

Tuomas Ilmari Heikkonen kom til Fjölnis á síðasta ári sem markvörður meistaraflokks karla. Hann er frá Finnlandi þar sem hann hefur spilað íshokkí frá blautu barnsbeini ásamt því að sinna þjálfun á síðustu árum. Tuomas mun sjá um þjálfun markvarða í U12, U14 og U16 flokkum.

 

Íshokkídeildin býður þá félaga hjartanlega velkomna til starfa!


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »