Sumarnámskeið 2021
Sumarnámskeið 2021
Fjölnir býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða í allt sumar. Úrvalið hefur aldrei verið jafn glæsilegt og til viðbótar við stök námskeið bjóðum við upp á heildræna dagskrá yfir allan daginn í Fjölni. Þar gefst forráðamönnum barna fædd 2011-2014 (árgangur 2015 bætist við í ágúst) tækifæri á að setja saman skemmtilega dagskrá yfir allan daginn með vali um heita máltíð. Við hlökkum til að sjá barnið þitt á námskeiðum hjá okkur í allt sumar.
Skráningar á námskeiðin fer fram í vefsölunni okkar – smelltu HÉR!
Upplýsingar um öll námskeið – smelltu HÉR!
Hvað er í boði?
- Sumarnámskeið Fjölnis í Egilshöll (fjölbreytt úrval íþrótta) – þú setur saman daginn þinn. Börn fædd 2011-2014
- Fjölgreinanámskeið Fjölnis í ágúst – góður valmöguleiki til að kynnast úrvali íþrótta í Fjölni. Börn fædd 2011-2015
- Handboltanámskeið
- Sundnámskeið
- Tennisæfingar
- Listskautabúðir
- Íshokkínámskeið
- Karatenámskeið
Gott gengi Fjölnis á Meistaramóti Íslands um helgina
95. Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram um helgina, 12.- 13. júní á Akureyri. Á mótið voru skráðir til leiks 154 keppendur frá sautján félögum og áttum við þar 14 keppendur. Gaman er að segja frá því að boðhlaupssveitirnar okkar tóku sitthvor gullverðlaunin á mótinu. Í 4 X 400 m boðhlaupssveit kvenna voru: Vilhelmína Þór, Guðný Lára, Helga Þóra og Sara. Í 4 X 400 m boðhlaupssveit karla voru Guðmundur, Daði, Kjartan Óli og Bjarni Anton. Einnig unnu Fjölniskeppendur til ferna silfurverðlauna og einna bronsverðlauna.
Silfurverðlaun fengu:
Helga Þóra Sigurjónsdóttir fyrir Hástökk.
Vilhelmína Þór Óskarsdóttir fyrir 100m hlaup
Bjarni Anton Theodórsson fyrir 400 m hlaup
Kjartan Óli Ágústsson fyrir 800m hlaup
Bronsverðlaun fékk:
Vilhelmína Þór Óskarsdóttir fyrir 400m hlaup.
