BJK Cup blásið af vegna veðurs – Ísland í 7-8 sæti.
![](https://fjolnir.is/wp-content/uploads/2022/07/Hopmynd-2-e1657479672672-1024x855-1.jpeg)
Íslenska kvennalandsliðið fékk ekki að spila lokaumferðina í BJK Cup í Makedóníu í dag. Þær áttu að spila gegn Albaníu um 7. sætið en vegna veðurs var öllum leikjum aflýst. Þar sem flest lið áttu pantað flug heim sunnudaginn 10. júlí og engin innanhúsaðstaða í boði á keppnisstað var þetta það eina í stöðunni.
Íslenska liðið endar því í 7.-8. sæti mótsins af 14 liðum sem tóku þátt. Þetta verður að teljast frábær árangur hjá íslenska liðinu og munu þær án efa hækka um nokkur sæti á ITF alþjóðalistanum.
En þrjár af þeim sem tóku þátt fyrir Íslandshönd, þær Hera Björk, Bryndís María og Eygló Dís, eru Fjölniskonur!
Til hamingju stelpur!
Kvennalið Tennisdeildar Fjölnis krýnt Íslandsmeistarar TSÍ
![](https://fjolnir.is/wp-content/uploads/2022/07/U14_verdlaun.jpeg)
Kvennalið Tennisdeildar Fjölnis var krýnt Íslandsmeistarar TSÍ í liðakeppni meistaraflokksins í tennis síðastliðinn mánudag!
Fjölnir vann 2-1 sigur á móti Tennisklúbbur Víkings í úrslitaleik meistaraflokk kvenna: TVÍLIÐALEIK – Irka Cacicedo Jaroszynski og Saule Zukauskaite (Fjölnir) unnu Kristín Hannesdóttir og Garima Kalugade (Víking), 9-2. EINLIÐALEIK: Garima vann Eygló Dís Ármannsdóttir (Fjölnir) 6-2, 6-4; Bryndís Rósa Armesto Nuevo (Fjölnir) vann Kristín 6-0,6-2. HMR kvennalið – Anna Katarína Thoroddsen, Hildur Eva Mills og Riya Kalugade kláraði í 3. sæti.
Í úrslitaleik meistaraflokks karla vann HMR 3-0 sigur á móti Víking: TVÍLIÐALEIK – Rafn Kumar Bonifacius og Sigurbjartur Sturla Atlason (HMR) vann Raj K. Bonifacius og Rúrik Vatnarsson (Víking), 9-4; EINLIÐALEIK: Rafn vann Raj 6-2, 6-2; Sigurbjartur vann Rúrik 2-6, 6-3, 10-5. Fjölnis karlalið – Harry Williams, Ólafur Helgi Jónsson, Óskar Knudsen, Sindri Snær Svanbergsson & Sturla Óskarsson hampaði 3.sætið.
Hin liðakeppnis úrslit voru eftirfarandi:
U14 Börn
- Fjölnir
- HMR A
- HMR 1
30+ Karlar
- Víking
- HMR
- Fjölnir
30+ Kvenna
- Fjölnir
- Víking
- HMR
50+ Karlar
- Víking
- Fjölnir
Hægt er að lesa nánar og sjá myndir frá mótinu inni á https://tsi.is/2022/07/tennisdeild-fjolnis-og-hmr-kryndir-islandsmeistarar-tsi-i-lidakeppni-i-dag/