Öll samskipti milli þjálfara og foreldra fara fram í gegnum samskiptaforritið XPS network. Hér fyrir neðan er hægt að sækja appið í Apple og Android síma.
Með XPS appinu er með einföldum hætti hægt að fá yfirsýn yfir æfingar, mætingar og margt fleira. Þjálfari getur sent út tilkynningar og haft samskipti við iðkendur, foreldra eða forráðamenn.
Mælt er með því að nota rafræn skilríki við innskráningu.
HÉR má finna leiðbeiningar fyrir innskráningu 18 ára og yngri inn í appið.
Allar nánari upplýsingar og aðstoð má nálgast HÉR.
Aðeins þeir sem hafa gengið frá skráningargjöldum fá aðgang að appinu og því mikilvægt að ganga frá því á skráningarsíðunni okkar https://xps.is/shop/fjolnir
Ef þú hefur ekki fengið aðgang að appinu endilega sendu línu á skrifstofa@fjolnir.is