Hópur 2
Skautarar í hóp 2 hafa náð góðum tökum á öllum einföldum stökkum, eru að vinna í Axel og tvöföldum stökkum, samsettum pírúettum og flóknari sporum. Skautarar í þessum hóp hafa lokið Skautum Regnbogann og ákveðnum grunnprófum. Hægt er að velja um að æfa 7 sinnum í viku eða 5 sinnum í viku.
Hópur 2A
Mánudagar
Svell kl. 16:00-16:30 (frjáls mæting)
Svell kl. 16:45-17:55
Afís kl. 18:10-19:00
Þriðjudagar
Svell kl. 16:00-17:15
Dans kl. 17:30-18:30
Miðvikudagar
Afís kl. 19:05-19:45
Svell kl. 20:05-21:10
Fimmtudagar
Svell kl. 15:40-16:35
Afís/spinner kl. 16:45-17:45
Föstudagar
Svell kl. 06:15-07:30
Svell kl. 15:50-17:00
Afís kl. 17:10-18:10
Laugardagar
Svell kl. 08:55-09:55
Power Skating kl. 10:35-11:25
Afís kl. 11:35-12:10
Hópur 2B
Mánudagar
Svell kl. 15:45-16:30
Svell – spinnar kl. 16:45-17:05
Afís – styrktaræfing kl. 17:25-18:10
Þriðjudagar
Svell kl. 15:00-16:00
Dans kl. 16:20-17:20
Fimmtudagar
Svell kl. 15:00-15:50
Afís kl. 16:00-16:45
Föstudagar
Afís kl. 15:00-15:30
Svell kl. 15:40-16:40
Laugardagar
Svell kl. 08:10-08:55
Dans kl. 09:15-10:15
Powerskating kl. 10:35-11:25
Cool down kl. 11:35-12:10
Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Benjamin Naggiar
Yfirþjálfari

Kamila Melo
Danskennari

Lars Davíð Gunnarsson
Þrekþjálfari

Sólbrún Erna Víkingsdóttir
Þjálfari
Æfingagjöld listskautadeildar má finna hér.
Æfingar
Æfingar fara fram á svelli og einnig er afís. Á afís er markmiðið að bæta þol, styrkleika og liðleika. Einnig er unnið með listfengi með danskennslu einu sinni í viku. Til að ná framförum er nauðsynlegt að mæta á æfingar bæði á afís og svelli.
Áhersla er lögð á að skapa umhverfi þar sem einstaklingar eru hvattir til að stíga fram, sýna frumkvæði, tjá sig og taka ábyrgð. Iðkendur eiga að gera sér grein fyrir að listskautar eru einstaklingsíþrótt og að þeir bera ábyrgð á sínum eigin framförum.
Fatnaður
Á æfingum eiga skautarar að vera í hlýjum og teygjanlegum fatnaði, t.d. flísbuxum og flíspeysu og vera í fingravettlingum. Ekki má mæta í víðum fatnaði með löngum reimum, hettupeysum né með trefil. Á afís á að vera í íþróttafötum og strigaskóm.
Æfingar utan hefðbundinna æfingatíma
Boðið er upp á sumarbúðir í júní og ágúst en einnig er boðið upp á æfingar milli jóla og nýárs. Auk þjálfara deildarinnar þá mæta gestaþjálfarar í júníbúðirnar. Mikilvægt er að iðkendur mæti í sumarbúðir en á þessum tíma er unnið að bæta grunnskautun og tækni. Þar sem æfingar eru allan daginn taka iðkendur miklum framförum á þessum tíma. Ef iðkandi tekur frí allt sumarið er líklegt að hann hafi misst niður tækni sem getur tekið nokkrar vikur að vinna upp aftur að hausti.
Mót
Iðkendur taka þátt á mótum, annað hvort í keppnishópum félaganna eða keppnisflokkum Skautasambandsins. Til að geta tekið þátt á mótum þarf iðkandi að hafa keppnisdans (frekari upplýsingar um mót má finna hér).
Foreldrastarf
Foreldrum er úthlutað verkefni á að minnsta kosti einum viðburði deildarinnar yfir veturinn.
- Axel Örn Sæmundsson
- Þrymill Þursi Arason
- Guðfastur Brjánn Pétursson
Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér