Samantekt frá ársskýrslu skákdeildar

Samantekt frá ársskýrslu skákdeildar


Reglulegar skákæfingar barna og unglinga

Skákdeild Fjölnis hélt reglulegar æfingar fyrir börn og unglinga í Rimaskóla á fimmtudögum kl. 16:30–18:30, annars vegar í janúar–maí og hins vegar í september–desember. Á hverri æfingu mættu jafnan 50–60 þátttakendur. Æfingarnar voru ókeypis, fjölbreyttar og höfðu aukist í vinsældum ár frá ári.


Skipulag æfinga og aðstaða

Æfingarnar voru skipulagðar með 2–3 hópum þar sem skipt var á milli skákþjálfunar og fimm umferða skákmóts. Veitt voru 15–25 verðlaun eða happadrættisvinningar á hverri æfingu. Í skákhléi var boðið upp á veitingar, m.a. skúffuköku og kalt vatn.


Markmið og sérstaða skákstarfsins

Æfingarnar höfða til allra aldurshópa og er áberandi hversu margir þátttakendur finna sig betur í skákinni en í hefðbundnum íþróttum. Kjörorð skákdeildar Fjölnis er: „Skák er skemmtileg“.


Kynning og sýnileiki skákdeildarinnar

Starfsemi skákdeildarinnar hefur fengið góða umfjöllun á Facebook-síðu deildarinnar, í Grafarvogsblaðinu, á vefjunum grafarvogur.net og skak.is, auk þess sem árangur á skákviðburðum innanlands hefur aukið sýnileika deildarinnar.


Umsjón og þjálfarateymi

Umsjón með skákæfingum árið 2025 hafði Helgi Árnason, formaður skákdeildarinnar, sem hefur stýrt starfinu frá stofnun deildarinnar árið 2004. Með honum störfuðu Jóhann Arnar Finnsson, Sóley Kría Helgadóttir, Ingi Rafn Ýmisson, Theodór Eiríksson og Sveinbjörn Pétur Guðmundsson.


Æfingameistarar og uppaldir Fjölnismenn

Æfingameistarar vetrarins voru Tristan Fannar Jónsson (6. bekkur) og Emilía Embla B. Berglindardóttir (7. bekkur) úr Rimaskóla. Í gegnum árin hafa margir þátttakendur verið liðsmenn Rimaskóla sem hafa náð framúrskarandi árangri á Íslands- og Reykjavíkurmótum grunnskóla.


Afrek einstaklinga – Reykjavíkurmeistari

Oliver Aron Jóhannesson varð Skákmeistari Reykjavíkur 2025 á Skákþingi Reykjavíkur og tók við titlinum af liðsfélaga sínum Degi Ragnarssyni.


Hraðskákmót taflfélaga 2025

Skákdeild Fjölnis hélt Hraðskákmót taflfélaga 2025 í Hlöðunni Gufunesbæ 19. febrúar. Alls tóku rúmlega 80 skákmenn þátt í mótinu. Taflfélag Reykjavíkur sigraði, Fjölnir A hafnaði í 2. sæti og Breiðablik í 3. sæti.


Hraðskákmót taflfélaga 2025

Skákdeild Fjölnis hélt Hraðskákmót taflfélaga 2025 í Hlöðunni Gufunesbæ 19. febrúar. Alls tóku rúmlega 80 skákmenn þátt í mótinu. Taflfélag Reykjavíkur sigraði, Fjölnir A hafnaði í 2. sæti og Breiðablik í 3. sæti.


Sveitir Fjölnis á Íslandsmótinu

Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024-2025 fór fram í Rimaskóla dagana 27. febrúar – 2. mars. Fjölnir varð Íslandsmeistari annað árið í röð með fullu húsi stiga. Um 350 skákmenn tóku þátt í mótinu sem Skákdeild Fjölnis hýsti. Fjölnir sendi fjórar skáksveitir til leiks. B-sveitin náði öðru sæti í 2. deild og tryggði sér sæti í 1. deild. C- og D-sveitir stóðu sig vel í 4. deild, skipaðar að mestu ungum uppöldum Fjölnismönnum.


Styrkur og Skáksjóður Helga Árnasonar

Styrktarsjóður Hringfarans stofnaði Skáksjóð Helga Árnasonar og úthlutaði 5 milljónum króna til barna- og unglingastarfs skákinnar. Styrkurinn var tileinkaður Helga fyrir óeigingjarnt starf hans í þágu skáklistar.


Sumarskákmót Fjölnis

Sumarskákmót Fjölnis var haldið í 20. sinn 8. maí með 101 þátttakanda. Helgi Áss Grétarsson tefldi fjöltefli og Rótarý Grafarvogur gaf alla verðlaunagripi mótsins. Tefldar voru fimm umferðir og 50 verðlaun veitt.


Skákbúðir á Snæfellsnesi

Skákdeild Fjölnis hélt skákbúðir á Snæfellsnesi 17.–18. maí með þátttöku rúmlega 20 barna. Hópurinn tók þátt í Minningarmóti Ottós og Gunnars og vann til verðlauna og verðlaunafjár.


Efnilegur nýliði – Anh Hai Tran

Skákdeild Fjölnis hélt skákbúðir á Snæfellsnesi 17.–18. maí með þátttöku rúmlega 20 barna. Hópurinn tók þátt í Minningarmóti Ottós og Gunnars og vann til verðlauna og verðlaunafjár.


Alþjóðleg þátttaka – Norðurlandamót og Evrópumót

Skáksveit Rimaskóla tók þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita í Helsinki og hafnaði í 3. sæti. Skáksveit Fjölnis keppti einnig á Evrópumóti taflfélaga á Rhodos.


Amsterdam Chess Open

Skáksveit Rimaskóla tók þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita í Helsinki og hafnaði í 3. sæti. Skáksveit Fjölnis keppti einnig á Evrópumóti taflfélaga á Rhodos.


Íslandsmót skákfélaga 2025–2026 – fyrri hluti

Fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla í nóvember. Fjölnir sendi fjórar sveitir og er A-sveitin í 2. sæti Úrvalsdeildar eftir fyrri hlutann.


Atskákmót og ungmennamót

Fjölnir hafnaði í 3. sæti á Atskákmóti taflfélaga 2025. Á Íslandsmóti barna- og unglingasveita náðu Fjölniskrakkar fjölmörgum verðlaunum, þar á meðal Íslandsmeistaratitlum í stúlknaflokkum.


Stjórn, styrkir og þakkir

Stjórnarfundir voru fáir á árinu. Skákdeildin fékk rekstrarstyrk frá ÍTR sem er grundvallarforsenda ókeypis barna- og unglingastarfs. Sérstakar þakkir fá ÍTR, aðalstjórn UMF Fjölnis, starfsfólk Rimaskóla og eldhússtarfsfólk skólans.



Skákmenn Fjölnis hljóta styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands 2026

Skákmenn Fjölnis hljóta styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands 2026

Tveir skákmenn Skákdeildar Fjölnis, stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson, eru í hópi 13 íslenskra skákmanna sem hlutu styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands fyrir árið 2026.

Við úthlutun styrkjanna var meðal annars horft til árangurs og virkni keppenda á árinu 2025, sem og áætlana þeirra um áframhaldandi þátttöku og afrek í skák á árinu 2026. Héðinn hlýtur styrk til 9 mánaða en Dagur til 3 mánaða.

Héðinn Steingrímsson hefur teflt fyrir Skákdeild Fjölnis frá árinu 2007 og oftar en ekki á fyrsta borði. Dagur Ragnarsson er uppalinn Fjölnismaður og var kjörinn Skákkarl Fjölnis tvö ár í röð, 2024 og 2025. Árið 2024 var hann jafnframt valinn Íþróttamaður Fjölnis.

Þeir Héðinn og Dagur hafa báðir teflt með A-sveit Fjölnis, sem varð Íslandsmeistari skákfélaga 2024 og 2026. Dagur hefur hafið árið 2026 af krafti en hann tryggði sér nýverið öruggan sigur á Skákþingi Reykjavíkur og hlaut með því titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026.


Sumarskákmót Fjölnis 2025

Okkar glæsilega sumarskákmót Fjölnis 2025 verður haldið í Rimaskóla fimmtudaginn 8. maí frá kl. 16:00 - 19:00 
Dagskrá:

🕓 Kl. 16:00 – Skráning hefst
Kl. 16:00 – Helgi Áss Grétarsson, Íslandsmeistari, teflir fjöltefli á meðan skráning fer fram
🏆 Kl. 16:45 – Heiðursgestur afhendir verðlaunagripi Rótarý fyrir Æfingameistarann 2024–2025
Kl. 16:45 – 5 umferðir tefldar – Skákstjórar: Helgi Árnason og Gauti Páll
Kl. 18:00 – Ókeypis veitingar í boði Skákdeildar Fjölnis
🎁 Kl. 18:30 – Verðlaunaflóð:

  • 40 vinningar
  • Happdrætti
  • 3 verðlaunagripir til eignar

🔚 Kl. 19:00 – Mótinu lýkur


Íslenskur stórmeistari til liðs við Íslandsmeistara Fjölnis

Grafarvogsbúinn og stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson hefur gengið til liðs við Skákdeild Fjölnis og mun tefla með skáksveit Íslandsmeistaranna á komandi keppnisvetri.

Bragi býr ásamt fjölskyldu sinni í hjarta Grafarvogs og okkur Fjölnismönnum er mikill akkur í að fá frábæran liðsstyrk og góðan félaga.

Velkominn Bragi í Skáksveit Fjölnis, Íslandsmeistara 2024.


Fimmtíu krakkar tefldu um fimmtán páskaegg á páskaskákæfingu Fjölnis

Það var að venju fjölmennt á skákæfingu Fjölnis sem nú bar upp á páskaskákæfingu. Skákdeild Fjölnis er alltaf stórtæk þegar verðlaun og happadrætti eru annars vegar. Helmingur þátttakenda gekk því heim með Bónus-páskaegg eða happadrætti frá Góu.
Foreldrar fjölmenntu til aðstoðar og stóðu sig afar vel eins og alltaf. Leiðbeinendur okkar voru nánast allir í kringum Reykjavík Open eða vinnu og Helgi einn til staðar ásamt Aroni Erni.
Ekki náðist að baka skúffuköku að þessu sinni. Þá eru nú góð ráð dýr. Bankað upp á hjá Sælgætisgerðinni GÓU sem brást vel við og nestaði skákkrakkana vel í skákhléi. Takk GÓA.
Allir krakkarnir tefldu í einum flokki og baráttan um páskaeggin var jöfn og spennandi.
Þeir sem unnu páskaeggin 15 voru eftirtaldir eftir vinningsröð:
  1. Emilía Embla 6. bekk
  2. Walter 6. bekk
  3. Óskar 5. bekk
  4. Ómar Jón 5. bekk
  5. Unnur 6. bekk
  6. Helgi Tómas 3. bekk
  7. Sævar Svan 1. bekk
  8. Elsa Margrét 6. bekk
  9. Sigrún Tara 6. bekk
  10. Arthur 5. bekk
  11. Alexander Felipe 3. bekk
  12. Atlas 2. bekk
  13. Elma 6. bekk
  14. Karen Birta
  15. Magnea Mist 6. bekk
Tíu krakkar duttueinnig  í happadrættis-lukkupottinn.
Næsta skákæfing Fjölnis verður 11. apríl.
Gleðilega páska!
Helgi Árnason
formaður skákdeildar Fjölnis


Sumarstörf Fjölnis 2024

Við höfum opnað fyrir umsóknir í sumarstörf Fjölnis 2024. Öllum umsóknum verður svarað.

Við bjóðum upp á fjölbreytt störf fyrir 15-25 ára. Í boði er að vinna á íþróttasvæðinu í Dalhúsum, á sumarnámskeiðum deilda ásamt fjölgreinanámskeiði félagsins.
Umsækjendur geta hakað við það starf sem þeir óska eftir, það er í boði að velja fleiri en eitt starf, t.d. að starfa á knattspyrnu- og listskautanámskeiðum.

Vinnutímabil fyrir 15-16 ára er samtals 105 tímar. Samið er um vinnutíma þegar ráðning liggur fyrir. Umsækjendur þurfa einnig að sækja um hjá Vinnuskólanum.Vinnutímabil fyrir 17-25 ára fer eftir nánara samkomulagi þegar ráðning liggur fyrir. Umsækjendur þurfa einnig að sækja um hjá Hinu Húsinu.

Laun eru greidd út samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar.

Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjölnis á sumarnamskeid@fjolnir.is.

 

Skráning fer fram hér:

https://forms.office.com/pages/responsepage.aspx?id=tQYbx3SIz0emX0cicrdwf9xPGYOlIM5Fo5kx7iGGC7RUN1pFRlBEM1dJS0NIM1BMTllKTU9JU0NZTS4u

#FélagiðOkkar

 

 


Fjölnir A sveit eru Íslandsmeistarar skákfélaga

Íslandsmót Skákfélaga fór fram í Rimaskóla um helgina. Fyrir lokaumferðina var ljóst að Fjölnir yrði Íslandsmeistari í fyrsta sinn og það með töluverðum yfirburðum.

Fór svo að Fjölnismenn unnu sigur í öllum tíu viðureignum sínum á Íslandsmótinu 2023/24 og fengu því 20 stig - einstakt afrek hjá þéttri og vel samsettri sveit.

Þetta er í fyrsta skipti sem Fjölnir er Íslandsmeistari í skák og það á 20. afmælisári!

Fjölnir B vann einnig 3. deildina og teflir því í 2. deild á næsta keppnisári!

Við erum afskaplega stolt af flotta skákfólkinu okkar.

Áfram Skákdeild Fjölnis

Gæti verið mynd af 7 manns, skegg og Texti þar sem stendur "10=70 ALSDE 1/7 1/5"

Íslandsmeistarar Fjölnis ásamt Helga Árnasyni liðsstjóra og formanni Skákdeildarinnar.

Efsta röð f.v.: Paulius, Tomas, Kaido, Oliver Aron Jóhannesson.MIðröð: Dagur Ragnarsson, Tómas Björnsson og Héðinn Hedinn Steingrimsson .
Fremsta röð f.v.: Sigurbjorn J. BjornssonHelgi Árnason, og Valery.

Gæti verið mynd af 9 manns og chess

KR-ingar "teknir í bakaríið" 7,5 - o,5

Gæti verið mynd af 6 manns

B sveitin sigraði 3. deildina. F.v. Emilía Embla (11 ára), Helgi Árnason liðsstjóri, Jóhann Arnar FinnssonOliver Aron JóhannessonTinna Kristín FinnbogadóttirLiss Acevedo Méndez


Fjölnisfólk Íslandsmeistarar barnaskólasveita 1.-3. bekkjar 2024

Íslandsmót barnaskólasveita 1.-3. bekkjar fór fram laugardaginn 26. febrúar í Rimaskóla. Tefldar voru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda. Alls tóku 110 krakkar þátt á mótinu, eða 26 skáksveitir.

Fjölnisfólkið okkar í Rimaskóla kom, sá og sigraði – en Fjölnir sendi fjórar sveitir til keppni.

A sveit Rimaskóla landaði Íslandsmeistaratitlinum í síðustu umferð mótsins.

B sveit var efst B sveita og í 4. sæti yfirhöfuð.

D sveit var efst D sveita og í 6. sæti yfirhöfuð.

C sveit lenti í 12. sæti.

Helmingur þessara afrekssveita eru nemendur í 1. bekk og er augljóst að skákæfingar Fjölnis eru aldeilis að skila sér.

Við óskum öllum keppendum til hamingju með þennan frábæra árangur!

 

#FélagiðOkkar 💛💙

A sveit Rimaskóla Íslandsmeistarar barnaskólasveita 2024 ásamt Birni Ívari Karlssyni skákkennara. f.v. Patrekur, Alexander Leó, Alexander Felipe og Erlendur.
Íslandsmeistararnir ásamt Birni Ívari og Helga.
Langbesta B sveitin og allir í 1. bekk. Sævar Svan, Kristófer Jökull, Mikael Már og Óskar Leó.
Þrír af fjórum í A sveitinni með borðaverðlaun. Erlendur hér fremstur vann allar sínar skákir.
Sterkar skákstelpur á yngsta stigi og í 6. sæti af 26 skáksveitum. Þóra Kristín, Lea, Elsa María og Gunnhildur.

Fjórar frá Fjölni á fyrsta "Stockholms Ladies" skákmótinu

Skáksamband Stokkhólms bauð Skákdeild Fjölnis að senda þátttakendur á skákhátíðina Stockhloms Ladies Weekend sem haldin verður í fyrsta skipti nú um helgina 2. – 3. sept.

Skákdeild Fjölnis tók boðinu og sendir til leiks fjórar skákkonur sem flugu út í morgun, föstudag. Þetta eru þær Tinna Kristín Finnbogadóttir, Liss Acevedo Méndez, Sigríður Björg Helgadóttir og Sóley Kría Helgadóttir. Tefldar verða 7 umferðir á mótinu með 30 +10 sek. umhugsunartíma. Fjórar skákir á morgun laugardag og þrjár á sunnudag. Það er skáksamband Stokkhólmsborgar sem stendur fyrir þessari kvennaskákhátíð og væntir þess að viðburðurinn verði árlegur. Þau Tomas Silfver og Pía Cramling fv. heimsmeistari kvenna eru í forsvari hátíðarinnar en þau þekkja bæði vel til þeirrar breiddar stúlkna og kvenna sem tefla undir merkjum Skákdeildar Fjölnis.


Skákdeild Fjölnis hefur 20. starfsárið - Boðið upp á fimmtudagsæfingar

Skákæfingar Fjölnis fyrir grunnskólakrakka hefjast 7. september og verða framvegis hvern fimmtudag í Rimaskóla frá kl. 16.30 – 18.00. Gengið inn um íþróttahús Rimaskóla. Æfingarnar eru ókeypis en miðað er við að þátttakendur þekki mannganginn og grunnatriði skáklistarinnar.

Í skákhléi er boðið upp á veitingar og í lok hverrar æfingar eru afhent verðlaun og dregið í happadrætti.

Skákdeild Fjölnis er að hefja sitt 20. starfsár. Allt frá fyrstu tíð hafa skákæfingarnar verið mjög vinsælar bæði meðal drengja og stúlkna. Öllum áhugasömum er bent á Facebook síðu Skákdeildar Fjölnis en þar er að finna upplýsingar um skákstarfið í Grafarvogi.

Umsjón með fimmtudagsæfingunum hefur Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis og hefur hann sér góða leiðbeinendur og aðstoðarmenn

Skák er skemmtileg.


UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »