Hópur 3


Hópur 3 er að gera öll einföldu stökkin og að vinna í axel, æfa munstur fyrir grunnpróf og þurfa að mætast ákveðnum kröfum hvað varðar grunnskautun. Einnig er farið í erfiðari stöður í pírúettum ásamt því að gera samsettar pírúettur.

SKRÁNING HÉR

Haustönn 2023 – Hópur 3

Mánudagar

Svell kl. 15:00-15:55

Afís kl. 16:00-16:50

Þriðjudagar

Svell kl. 06:30-07:30

Miðvikudagur

Svell kl. 15:00-15:40

Afís kl. 15:50-16:30

Fimmtudagar

Svell kl. 15:00-15:50

Afís kl. 16:00-16:50

Föstudagar

Svell kl. 15:00-16:00

Afís kl. 16:10-17:00

Laugardagar

Svell kl. 08:00-08:50

Afís kl. 09:00-9:40

Svell kl. 09:55-10:45

Upplýsingar um viðburði flokksins og óvæntar breytingar á áætlun koma fram á samskipta og skipulags forritinu Sideline

Benjamin Naggiar

Yfirþjálfari

Helga Karen Pedersen

Þjálfari

Sólbrún Erna Víkingsdóttir

Þjálfari

Æfingagjöld listskautadeildar má finna hér.

Æfingar

Æfingar fara fram á svelli og einnig er afís. Á afís er markmiðið að bæta þol, styrkleika og liðleika. Einnig er unnið með listfengi með danskennslu einu sinni í viku. Til að ná framförum er nauðsynlegt að mæta á æfingar bæði á afís og svelli.

Áhersla er lögð á að skapa umhverfi þar sem einstaklingar eru hvattir til að stíga fram, sýna frumkvæði, tjá sig og taka ábyrgð. Iðkendur eiga að gera sér grein fyrir að listskautar eru einstaklingsíþrótt og að þeir bera ábyrgð á sínum eigin framförum.

Fatnaður

Á æfingum eiga skautarar að vera í hlýjum og teygjanlegum fatnaði, t.d. flísbuxum og flíspeysu og vera í fingravettlingum. Ekki má mæta í víðum fatnaði með löngum reimum, hettupeysum né með trefil. Á afís á að vera í íþróttafötum og strigaskóm.

Æfingar utan hefðbundinna æfingatíma

Boðið er upp á sumarbúðir í júní og ágúst en einnig er boðið upp á æfingar milli jóla og nýárs. Auk þjálfara deildarinnar þá mæta gestaþjálfarar í júníbúðirnar. Mikilvægt er að iðkendur mæti í sumarbúðir en á þessum tíma er unnið að bæta grunnskautun og tækni. Þar sem æfingar eru allan daginn taka iðkendur miklum framförum á þessum tíma. Ef iðkandi tekur frí allt sumarið er líklegt að hann hafi misst niður tækni sem getur tekið nokkrar vikur að vinna upp aftur að hausti.

Mót

Iðkendur taka þátt á mótum, annað hvort í keppnishópum félaganna eða keppnisflokkum Skautasambandsins. Til að geta tekið þátt á mótum þarf iðkandi að hafa keppnisdans (frekari upplýsingar um mót má finna hér).

Foreldrastarf

Foreldrum er úthlutað verkefni á að minnsta kosti einum viðburði deildarinnar yfir veturinn.

  • Axel Örn Sæmundsson
  • Þrymill Þursi Arason
  • Guðfastur Brjánn Pétursson

Nánari upplýsingar um þjálfara flokksins má finna hér