Hlutverk stjórnarmanna
Helstu verkefni
- Vinna að hagsmunum deildarinnar með hagsmuni félagsins alls að leiðarljósi.
- Styðja við innheimtu æfingagjalda og skráningu iðkenda.
- Vinna við viðburði, mót og leiki hjá deildinni.
- Skipuleggja og halda utan um fjáraflanir.
- Tala fyrir og mæta á viðburði, mót og leiki hjá félaginu.
- Koma upplýsingum á framfæri á heimasíðu félagsins og öðrum samfélagsmiðlum.
- Halda fundargerðir
- Vinna að framgangi og uppbyggingu deildarinnar sem og félaginu.
- Hafa ánægju og gleði að leiðarljósi við starfið.
Fyrirmyndarhegðun stjórnarmanna
- Stattu vörð um grunngildi íþróttahreyfingarinnar.
- Stuðlaðu að jöfnum tækifærum allra til þátttöku í íþróttum.
- Stuðlaðu að því að sameiginlegum markmiðum íþrótta verði náð
- Stuðlaðu að því að formlegum og siðferðislegum reglum og venjum sé fylgt.
- Virtu lýðræðisreglur og gagnsæi við ákvarðanatöku og stjórnaðu samkvæmt
reglum um ábyrga fjármálastjórn. - Vertu til fyrirmyndar í framkomu.
- Leystu ágreining og árekstra á sanngjarnan hátt og til samræmis við reglur og venjur hreyfingarinnar.
- Misnotaðu aldrei aðstöðu þína til að koma eigin hagsmunum á framfæri ákostnað íþróttahreyfingarinnar.