IÐKENDAREGLUR
- Gerðu alltaf þitt besta og berðu virðingu fyrir öðrum.
- Mættu tímanlega á æfingar.
- Berðu virðingu, bæði fyrir sam- og mótherjum.
- Ekki láta í ljósi neikvæðar eða niðrandi athugasemdir gagnvart öðrum iðkendum, keppinautum, dómurum, þjálfurum og liðsstjórum sem og öðrum aðilum sem koma að íþróttastarfi með einum eða öðrum hætti.
- Komdu fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig .
- Gerðu þér grein fyrir því að þú ert fyrirmynd þeirra sem yngri eru.
- Berðu merki Fjölnis með stolti.