Afreksskóli Fjölnis í handbolta fer fram 4. – 20.ágúst í Fjölnishöllinni. Skráningin fer fram í gegnum vefverslun Fjölnis (https://fjolnir.felog.is/verslun). Hægt er að skrá sig á einstakar vikur.

Verð og námskeiðsdagar:

4. – 6.ágúst / 5900 kr

11. – 13.ágúst / 5900 kr

18. – 20.ágúst / 5900 kr
Ef allar vikurnar eru teknar þá kostar það 12.900 kr

**ATH BREYTING**

Æfingarnar eru kl. 12:00-13:00 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og henta vel samhliða hefðbundnum handboltaæfingum sem hefjast eftir verslunarmannahelgi. Afreksskólinn verður sambland af fræðsluerindum og handboltaæfingum.

Afreksskólinn er fyrir þá sem verða í 7. – 10.bekk næsta vetur eða í 5. og 4.flokki félagsins.

Þjálfari Afreksskólans er Andri Sigfússon yfirþjálfari handknattleiksdeildar.