Frábær vika að baki hjá 5. flokk Fjölnis á N1 mótinu á Akureyri

5. flokkur karl hjá Fjölni tók þátt á N1 mótinu á Akureyri dagana 1. júlí – 4. júlí.
Dagana 1.–4. júlí tók Fjölnir þátt í hinu glæsilega N1 móti á Akureyri með 8 lið og alls 65 stráka. Strákarnir voru félaginu til mikils sóma og stóðu sig frábærlega, bæði innan sem utan vallar.
Árangurinn á vellinum hjá strákunum var eftirtektarverður og komu eftirfarandi lið heim með bikara með sér:
- Lið 1 fór alla leið og stóð uppi sem sigurvegari Brasilíudeildarinnar eftir frábæra frammistöðu.
- Lið 7 átti frábært mót og endaði í 2. sæti í Kólumbískudeildinni eftir æsispennandi úrslitaleik sem tapaðist í vítaspyrnukeppni.
- Lið 5 tryggði sér 3. sætið í Grískudeildinni eftir skemmtilegan leik um 3.-4. sæti við KR.
Þess má geta að önnur lið okkar Fjölnismanna stóðu sig einnig frábærlega á mótinu og skemmtu sér mjög vel!
Við erum afar stolt af öllum okkar strákum sem lögðu sig fram af krafti, sýndu góða liðsheild og voru frábærir fulltrúar Fjölnis. Jafnframt viljum við þakka þjálfurum, foreldrum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að gera ferðina og mótið að eftirminnilegri upplifun.
Vel gert, strákar – áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Jóhannes Karl Bárðarson til Fjölnis!
08/11/2026
Ýmir Hjálmsson Semur við Fjölni!
07/11/2026
Almar Máni Þórisson aftur heim í Fjölni!
06/11/2026













