Mikael Breki framlengir við Fjölni

Mikael Breki Jörgensson framlengir við Fjölni

Miðjumaðurinn Mikael Breki Jörgensson hefur framlengt samning sinn við Fjölni til næstu þriggja ára, eða út keppnistímabilið 2029.

Mikael, sem er fæddur árið 2006, átti frábært tímabil með Fjölnisliðinu og var meðal annars valinn leikmaður ársins eftir nýliðið tímabil. Hann hefur verið afar öflugur á miðjunni og sýnt mikinn þroska og stöðugleika þrátt fyrir ungan aldur.

Mikael er uppalinn Fjölnismaður, hefur gengið í gegnum yngri flokka félagsins og er því sannkallaður 112-maður inn að beini.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir félagið. Mikki er einstakur drengur, frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn og umfram allt frábær knattspyrnumaður. Hann hefur lagt gríðarlega mikið á sig, tekið stórum framförum og sýnt hvað það getur skilað sér að alast upp innan félagsins. Það er okkur gríðarlega mikilvægt að halda honum áfram hjá Fjölni og við hlökkum mikið til að fylgjast með næstu skrefum hjá honum,“ segir Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari meistaraflokks.

Sjálfur hafði Mikael Breki þetta að segja eftir framlengingu á samningnum: „Ég er mjög ánægður með að hafa framlengt við Fjölni og spenntur fyrir því að hjálpa liðinu að komast upp í Lengjudeildina á komandi tímabili.”

Við erum hrikalega ánægð með að halda Mikael áfram í okkar röðum og hlökkum til að sjá hann vaxa enn frekar og taka næstu skref á sínum ferli í Fjölnisbúningnum 💛

 

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »