Fjölnir A sveit eru Íslandsmeistarar skákfélaga
Íslandsmót Skákfélaga fór fram í Rimaskóla um helgina. Fyrir lokaumferðina var ljóst að Fjölnir yrði Íslandsmeistari í fyrsta sinn og það með töluverðum yfirburðum.
Fór svo að Fjölnismenn unnu sigur í öllum tíu viðureignum sínum á Íslandsmótinu 2023/24 og fengu því 20 stig - einstakt afrek hjá þéttri og vel samsettri sveit.
Þetta er í fyrsta skipti sem Fjölnir er Íslandsmeistari í skák og það á 20. afmælisári!
Fjölnir B vann einnig 3. deildina og teflir því í 2. deild á næsta keppnisári!
Við erum afskaplega stolt af flotta skákfólkinu okkar.
Áfram Skákdeild Fjölnis

Íslandsmeistarar Fjölnis ásamt Helga Árnasyni liðsstjóra og formanni Skákdeildarinnar.
Efsta röð f.v.: Paulius, Tomas, Kaido, Oliver Aron Jóhannesson.MIðröð: Dagur Ragnarsson, Tómas Björnsson og Héðinn Hedinn Steingrimsson .
Fremsta röð f.v.: Sigurbjorn J. Bjornsson, Helgi Árnason, og Valery.


Fjölnisfólk Íslandsmeistarar barnaskólasveita 1.-3. bekkjar 2024
Íslandsmót barnaskólasveita 1.-3. bekkjar fór fram laugardaginn 26. febrúar í Rimaskóla. Tefldar voru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda. Alls tóku 110 krakkar þátt á mótinu, eða 26 skáksveitir.
Fjölnisfólkið okkar í Rimaskóla kom, sá og sigraði – en Fjölnir sendi fjórar sveitir til keppni.
A sveit Rimaskóla landaði Íslandsmeistaratitlinum í síðustu umferð mótsins.
B sveit var efst B sveita og í 4. sæti yfirhöfuð.
D sveit var efst D sveita og í 6. sæti yfirhöfuð.
C sveit lenti í 12. sæti.
Helmingur þessara afrekssveita eru nemendur í 1. bekk og er augljóst að skákæfingar Fjölnis eru aldeilis að skila sér.
Við óskum öllum keppendum til hamingju með þennan frábæra árangur!
#FélagiðOkkar 💛💙





Kristjana með U15!
Kristjana með U15!
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar dagana 26.-28. febrúar 2024. Æfingarnar fara fram í Miðgarði, knattspyrnuhúsi í Garðabæ og spilað verður æfingaleik við Stjörnuna (4.fl.kk) á Samsungvellinum.
Kristjana Rut Davíðsdóttir leikmaður 3. og 2.flokks kvenna er í hópnum!
Knattspyrnudeild Fjölnis óskar Kristjönu til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum!
#FélagiðOkkar 💛💙
Biggi og Jonni með U17!
Biggi og Jonni með U17!
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í tveimur æfingaleikjum gegn Finnum í Finnlandi dagana 26. febrúar – 2. mars næstkomandi.
Birgir Þór Jóhannsson og Jónatan Guðni Arnarsson leikmenn 2.flokks karla og meistaraflokks karla eru í hópnum sem mæta Finnlandi!
Knattspyrnudeild Fjölnis óskar drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis úti!
#FélagiðOkkar 💛💙
Fulltrúar Fjölnis í æfingahópum yngri landsliða í körfubolta
Það gleður okkur að tilkynna að eftirtaldir leikmenn okkar hafa verið valdir áfram í næstu æfingahópa yngri landsliða KKÍ. Þar hafa verið valdir minni æfingahópar í kjölfar æfinganna í desember sl. hjá fyrstu stóru hópunum en næst verða æfingar hjá liðunum 16.-18. febrúar.
Um er að ræða leikmenn liða U15, U16, U18 drengja og stúlkna auk U20 karla og kvenna.
Við vorum að fá þessar gleðilegu fréttir inn á borð hjá okkur í körfunni og sendum hamingjuóskir á okkar frábæru iðkendur sem eru nú einu skrefi nær lokaúrtaki í verkefni sumarsins hjá yngri landsliðunum.
Við erum ótrúlega stolt af okkar unga fólki og metnaðnum þeirra
Áfram Fjölnir!
Kosningar í stjórnir - Aðalfundir deilda
Hefur þú áhuga á stjórnarstörfum?
Aðalfundir deilda fara fram í febrúar. Við hvetjum alla áhugasama til að gefa kost á sér og taka þátt í að byggja upp frábæra starfið okkar!
Til að gefa kost á sér þarf að senda tölvupóst á netfangið gudmundur@fjolnir.is ekki seinna en 5 dögum fyrir aðalfund. Nákvæmar tímasetningar funda koma inn bráðlega.
Verkefni stjórna geta verið mismunandi milli deilda og eftir eðli starfsemi deildarinnar.
Helstu verkefni stjórna eru:
- Miðla upplýsingum og fyrirspurnum á réttan veg milli skrifstofu, þjálfara, foreldra
- Passa að öll skipulagsvinna sé unnin tímanlega og upplýsingum skilað inn til skrifstofu á réttum tíma, sbr. æfingagjöld, sumarnámskeið, sérstök námskeið, fréttir sem deildin vill vekja athygli á
- Þátttaka í fjáröflunum deildarinnar og félagsins
- Uppsetning æfingagjalda
- Ráðningar þjálfara, í samvinnu við framkvæmdastjóra félagsins
- Sækja um styrki fyrir deildina
- Virkja foreldra og sjálfboðaliða í félagsstarfið
- Veita aðhald og ábyrgð á rekstri deildarinnar
- Þátttaka í mótun uppeldis- og afreksstefna í samvinnu við þjálfara og starfsfólk deildarinnar
- Skipuleggja og sjá um að manna sjálfboðaliða á mót og viðburði á vegum deildarinnar
Formaður
Formaður er verkstjóri deildarinnar. Hann sér um samskipti við aðalstjórn og skrifstofu Fjölnis sem lúta að rekstri og umhverfi deildarinnar. Hann er oft aðaltengiliður deildarinnar við sérsambönd.
Gjaldkeri
Gjaldkerar hafa sýniaðgang á reikninga deildarinnar og bera ábyrgð á að gera fjárhagsáætlanir og fylgja þeim eftir. Gjaldkerar halda utan um fjárhag deilda og senda inn beiðnir til skrifstofu um launagreiðslur og aðrar greiðslur.
Ritari
Ritarar sjá um að halda utan um skjöl deildarinnar sem og rita fundargerðir á stjórnarfundum.
Meðstjórnendur
Meðstjórnendur taka að sér tilfallandi verkefni sem formaður heldur utan um. T.d. aðstoð og skipulag við mótahald eða aðra viðburði.
Skrifstofa Fjölnis sér um:
- Sækja um og fá úthlutuðum æfingatímum í íþróttahúsum
- Allar fjárreiður
- Allt sem tengist æfingagjöldum og uppsetningar í skráningarkerfi félagsins
- Uppfæra æfingatíma á fjolnir.is skv. upplýsingum þjálfara
- Skráningar og aðstoð við skráningar
- Að svara fyrirspurnum varðandi starfið
- Yfirferð og afstemming á bókhaldi
- Búningasamninga
- Samskipti í erfiðum málum
Kosið verður um þá aðila sem hljóta sæti í stjórnum á aðalfundum hverrar deildar fyrir sig.
Frábær árangur Saule á TEN-PRO Global Junior Tour 2023 tryggði henni efsta sætið í sínum aldursflokki!
Saule Zukauskaite hefur hlotið titilinn leikmaður númer 1 í U16 eftir uppgjör TEN-PRO Global Junior Tour sem fór fram yfir árið 2023. Frá öllum tennisspilurum, alls staðar að úr heiminum, sem kepptu á 2023 túrnum hlaut hún flest stig í sínum aldursflokki.
Við óskum Saule innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!
Happdrættisvinningar frá Þorrablóti Grafarvogs 2024
Ungmennafélagið Fjölnir þakkar öllum þorrablótsgestum innilega fyrir meiriháttar kvöld síðastliðinn laugardag!
Nú hefur verið dregið úr happdrættinu. Hægt er að nálgast vinningana á skrifstofu Fjölnis í Egilshöll til 26. apríl gegn framvísun happdrættismiða með vinningsnúmeri. Við hvetjum þó alla til þess að sækja vinningana sem fyrst! Opnunartími skrifstofu er frá 9-12 og 13-16 alla virka daga en oft er einhver við til 17:00.
ATH! Þorrablótsmiðinn er ekki happdrættismiði.
Einnig langar okkur að þakka öllum þeim fyrirtækjum sem sáu sér fært um að styrkja okkur með frábærum vinningum fyrir happdrættið kærlega fyrir stuðninginn!
Hér fyrir neðan má sjá vinningaskrána.
| Vinningur | Númer miða |
|---|---|
| Iceland Air - 25.000 kr. gjafabréf | 1759 |
| Iceland Air - 25.000 kr. gjafabréf | 0353 |
| Ísbúð Huppu - 2.500 kr. gjafabréf | 0312 |
| Minigarðurinn - 9 holu hringur á minigolfvelli Minigarðsins fyrir allt að 4 manns | 2601 |
| Arena Gaming - 10.000 kr. gjafabréf | 0650 |
| Arena Gaming - 10.000 kr. gjafabréf | 0691 |
| Hlöllabátar - 2x bátur og gos | 0696 |
| Fætur toga - Göngugreining fyrir einn og feetunes sokkapar | 0666 |
| Hreyfing - Hreyfing Spa og Lúxusmánuður | 1771 |
| Hreyfing - Hreyfing Spa og Lúxusmánuður | 0289 |
| Hreyfing - Hreyfing Spa og Lúxusmánuður | 2415 |
| Hreyfing - Hreyfing Spa og Lúxusmánuður | 0372 |
| Ísorka - 50.000 kr. gjafabréf | 2529 |
| Perlan - Miðar fyrir 2 fullorðna og 2 börn á sýningu Perlunnar | 1057 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0703 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0770 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 2001 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0754 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 1878 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0409 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0467 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0731 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 0491 |
| Þjóðleikhúsið - 14.500 kr. gjafabréf | 2316 |
| Emmessís - Gjafabréf fyrir ísveislu | 2322 |
| Hafið fiskverslun | 0346 |
| Hafið fiskverslun | 0569 |
| Hafið fiskverslun | 1209 |
| MS - Kassi af hleðslu | 1167 |
| MS - Kassi af hleðslu | 1182 |
| Himbrimi gin - 500 ml | 0796 |
| Himbrimi Old Tom gin - 700 ml | 2420 |
| Og natura - Wild Icelandic Dry Gin - 700 ml | 0599 |
| Og natura - Wild Icelandic Pink Gin - 700 ml | 0984 |
| Og natura - Wild Gin Oak aged Old Town - 700 ml | 1194 |
| Shake and Pizza - Frí pizza af matseðli | 0921 |
| Shake and Pizza - Frí pizza af matseðli | 0638 |
| Shake and Pizza - Frí pizza af matseðli | 2165 |
| Shake and Pizza - Frí pizza af matseðli | 0112 |
| Keiluhöllin - 50 mín keila fyrir allt að 6 manns | 1803 |
| Keiluhöllin - 50 mín keila fyrir allt að 6 manns | 1786 |
| Keiluhöllin - 50 mín keila fyrir allt að 6 manns | 1117 |
| Keiluhöllin - 50 mín keila fyrir allt að 6 manns | 0046 |
| Prikið - 7.500 kr. gjafabréf | 2011 |
| Klifurhúsið - Gjafamiði í klifur fyrir tvo ásamt skóm | 0352 |
| Klifurhúsið - Gjafamiði í klifur fyrir tvo ásamt skóm | 0118 |
| Skreið - 5.000 kr. gjafabréf | 1123 |
| Serrano - 2x burrito eða quesadilla | 0399 |
| Serrano - 2x burrito eða quesadilla | 2219 |
| Giljaböðin á Húsafelli - Töfrandi ferð fyrir tvo með leiðsögn í íslenskri náttúru sem endar í náttúruböðum | 2276 |
| Metta Sport - 10.000 kr. gjafabréf | 0776 |
| Lín Design - 10.000 kr. gjafabréf | 2156 |
| Topphár - Gjafaaskja frá Milkshake að andvirði 7.500 kr. | 2475 |
| Margt Smátt / Teamsport - 20.000 kr. gjafabréf | 0690 |
| Subway - 2x frímiði fyrir 6 tommu bát, vefju eða salat og gos | 0324 |
| Subway - 2x frímiði fyrir 6 tommu bát, vefju eða salat og gos | 0449 |
| Subway - 2x frímiði fyrir 6 tommu bát, vefju eða salat og gos | 0060 |
| Tennishöllin - Gjafabréf fyrir tennis eða padel | 1189 |
| Tennishöllin - Gjafabréf fyrir tennis eða padel | 2281 |
| Nonnabiti - Hamborgaramáltíð | 0017 |
| Nonnabiti - Ostborgaramáltíð | 0891 |
| Nonnabiti - Bátur og gos | 2440 |
| Elding - Gjafabréf í hvalaskoðun | 0708 |
| Borgarleikhúsið - 22.000 kr. gjafabréf | 0070 |
| Borgarleikhúsið - 22.000 kr. gjafabréf | 1821 |
| Borgarleikhúsið - 16.000 kr. gjafabréf | 0374 |
| Domino's Pizza - 7.500 kr. gjafabréf | 0798 |
| Domino's Pizza - 7.500 kr. gjafabréf | 0412 |
| New Wave Iceland - HOLD blómavasi að andvirði 11.900 kr. | 0360 |
| New Wave Iceland - Picnic glös að andvirði 4.500 kr. | 2369 |
| New Wave Iceland - Picnic glös að andvirði 4.500 kr. | 0828 |
| New Wave Iceland - Há picnic glös að andvirði 4.500 kr. | 2003 |
| New Wave Iceland - Há picnic glös að andvirði 4.500 kr. | 2329 |
| Noztra - 10.000 kr. gjafabréf | 0459 |
| ÓJK-ÍSAM - Gjafapoki | 0390 |
| ÓJK-ÍSAM - Gjafapoki | 1162 |
| Borðspil: Sjónarspil með 18+ viðbótarpakka | 0337 |
| Borðspil: Sjónarspil | 1522 |
| Borðspil: Sjónarspil | 0642 |
| Borðspil: Sjónarspil | 0570 |
| Handknattleiksbókin - Saga handknattleiksins á Íslandi - Bindi I og II | 0567 |
| Safntreyja frá 30 ára afmæli Fjölnis | 2021 |
| Nói Siríus - Gjafapoki | 0436 |
| Nói Siríus - Gjafapoki | 1054 |
| Nói Siríus - Gjafakarfa | 1863 |
| Nói Siríus - Gjafakarfa | 0381 |
| Gastro Truck - 2x máltíðir | 0460 |
| Hoppland - 2x Gjafabréf fyrir aðgangi og leigu á blautbúningi | 0048 |
| Hoppland - 2x Gjafabréf fyrir aðgangi og leigu á blautbúningi | 0099 |
| Innnes - Gjafapoki | 0451 |
| Innnes - Gjafapoki | 0999 |
| Innnes - Gjafapoki | 1893 |
| Bæjarins beztu - Hettupeysa og 2x gjafabréf fyrir pylsu og gosi | 2306 |
| Bæjarins beztu - 2x gjafabréf fyrir pylsu og gosi | 1192 |
| Bæjarins beztu - 2x gjafabréf fyrir pylsu og gosi | 0341 |
| Bæjarins beztu - 2x gjafabréf fyrir pylsu og gosi | 0861 |
| Bæjarins beztu - 2x gjafabréf fyrir pylsu og gosi | 0851 |
| Danól - Gjafapoki með vörum úr vöruúrvali Danól | 2399 |
| Danól - L'Oréal gjafapoki fyrir dömur | 1857 |
| Danól - L'Oréal gjafapoki fyrir herra | 2202 |
Brjálað stuð á Þorrablóti Grafarvogs 2024
Þorrablót Grafarvogs var haldið hátíðlegt á laugardagskvöldið en í ár var þemað 80‘s. Það var algjörlega valfrjálst að klæða sig eftir þemanu en það voru þónokkrir sem fóru „all-in“ og mættu eins og þau hafi komið með tímavél frá 9. áratug síðustu aldar!
Múlakaffi sá um matinn og bauð upp á alvöru þorramat, hákarl, brennivín og með því en það var líka annað í boði fyrir þá sem vildu ekki fara í þorramatinn. Frábær vegan réttur og dýrindis lambalæri voru einnig á boðstólnum.
Dagskrá kvöldsins var alls ekki af verri endanum en einvala lið frábærra listamanna steig á svið og sá um að gestir skemmtu sér vel! Regína Ósk stýrði kvöldinu og hljómsveit kvöldsins var Nýju fötin keisarans. Margrét Eir steig fyrst á svið og tók á móti gestum þegar þeir mættu. 80‘s kóngurinn sjálfur, Eyfi, sá um brekkusöng kvöldsins. Grafarvogsprinsinn Kristmundur Axel steig næstur á svið og á eftir honum var það leynigestur kvöldsins sem var enginn annar en Herbert Guðmundsson, varla hægt að halda 80‘s Þorrablót án þess að hann mæti á svæðið. Þau Friðrik Dór, Sigga Beinteins og Daníel Ágúst stigu síðan á svið á eftir þeim og gjörsamlega trylltu lýðinn!
Við viljum þakka öllum sem komu á blótið fyrir frábært kvöld og við hlökkum mikið til næsta árs!
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndir frá kvöldinu
NÝR HÓPLEIKUR OG GETRAUNAKAFFI FJÖLNIS
Nýr 10 vikna hópleikur hefst núna á laugardaginn, 13. janúar og endar 16. mars.
Þetta er 10 vikna hópleikur þar sem 7 bestu vikurnar gilda. Þátttökugjald er 6.900 kr. per hóp eða 3.450 kr. á mann og greiðist beint inn á reikning Fjölnis: 0114-05-060968 kt: 631288-7589 (senda kvittun á 1×2@fjolnir.is).
Skráning fer fram í gegnum netfangið 1×2@fjolnir.is þar sem koma þurfa fram nöfn beggja liðsmanna, kennitölur, sími, netfang og nafn á liðinu.
ATH – Tippað er rafrænt í gegnum vefsíðuna https://games.lotto.is/clubsales/#/login eða 1×2.is/felog
Félagsaðstaðan í Egilshöll verður opin milli kl.10:00-11:30 á laugardögum þar sem tipparar geta hist og tippað yfir rjúkandi kaffibolla og bakkelsi frá Bakarameistaranum.
Öll lið senda inn tvo seðla sem skulu innihalda nákvæmlega 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tvítryggingu (2×832 kr. seðill). Betri seðillinn gildir. Með þessu móti standa allir þátttakendur jafnt.
Hér má finna reglur og frekari upplýsingar um leikinn: https://fjolnir.is/knattspyrna/getraunakaffi/
Hér er sérstakur hópur fyrir Getraunakaffið:
https://www.facebook.com/groups/1299902466780921
Taktu þátt í félagsstarfinu og vertu með frá byrjun. Öll velkomin! #FélagiðOkkar





























































































































