Emil Alengård kveður Fjölni í ágúst

Íshokkídeild Fjölnis mun kveðja Emil Alengård í ágúst þegar hann lætur af störfum hjá félaginu eftir farsælt starf síðustu ár.
Emil hefur verið yfirþjálfari félagsins frá árinu 2020 auk þess að þjálfa ýmsa yngri flokka félagsins á þeim tíma. Þá stýrði hann einnig meistaraflokki kvenna sem varð Íslandsmeistari árin 2024 og 2025.
Samhliða þjálfunarstörfum sínum hefur Emil komið við sögu með meistaraflokki karla. Hann er einn besti íshokkíleikmaður Íslandssögunnar og lék um árabil erlendis áður en hann kom til Fjölnis.
Emil og fjölskylda hans munu flytja búferlum til Akureyrar í sumar en eiginkona hans er þaðan.
Síðasta verkefni Emils hjá félaginu verður að öllum líkindum Festival-vikan, alþjóðlegt íshokkínámskeið sem fram fer í Egilshöll dagana 10.–16. ágúst. Námskeiðið seldist nánast upp strax í maí og verður því glæsilegur lokakafli á tíma hans hjá félaginu.
Íshokkídeild Fjölnis þakkar Emil kærlega fyrir samstarf og samveru síðustu árin. Framlag hans til félagsins hefur verið afar dýrmætt og enginn vafi er á að hans verður sárt saknað. Jafnframt sendir íshokkídeildin Emil og fjölskyldu hans sínar bestu óskir um farsæld og velgengni í framtíðinni.






