Tennisdeild Fjölnis fagnar glæsilegum árangri í einstaklingskeppni Íslandsmóts TSÍ utanhúss 2026

Tennisdeild Fjölnis fagnar glæsilegum árangri í einstaklingskeppni Íslandsmóts TSÍ utanhúss 2026

Íslandsmót TSÍ utanhúss 2026 fór fram dagana 22.–28. júní þar sem einstaklingskeppni mótsins var haldin. Leikmenn tennisdeildar Fjölnis náðu þar glæsilegum árangri í fjölmörgum flokkum. Frá meistaraflokki og niður í yngri flokka, sem og í öldungaflokkum, sýndu keppendur félagsins mikla baráttu, metnað og gæði sem skiluðu sér í fjölda Íslandsmeistaratitla og verðlaunasæta.

Daniel og Bryndís skína skært í meistaraflokki

Stærsta athygli mótsins vakti árangur Daniel Pozo og Bryndísar Rósu Armesto Nuevo í meistaraflokki einliða.

Hinn 17 ára Daniel tryggði sér silfurverðlaun í meistaraflokki karla eftir glæsilega frammistöðu í gegnum mótið. Í undanúrslitum lagði hann Ómar Pál Jónasson (TFK) örugglega 6–2, 6–3 áður en hann mætti sterkasta tennisleikmanni landsins, Rafn Kumar Bonifacius (HMR), í úrslitaleiknum.

Þrátt fyrir 6–4, 6–1 tap sýndi Daniel enn á ný hversu langt hann er kominn sem leikmaður. Hann veitti Rafni mikla keppni og frammistaða hans undirstrikaði þá miklu þróun sem hann hefur sýnt á síðustu misserum.

Bryndís Rósa Armesto Nuevo átti einnig stórkostlegt mót. Á leið sinni í úrslitaleikinn vann hún bæði Gerði Líf Stefánsdóttur (6–0, 6–0) og Saulė Zukauskaite (6–1, 6–3) með afar sannfærandi hætti.

Í úrslitaleiknum mætti hún Sofiu Sóley Jónasdóttur þar sem hún sýndi mikla baráttu. Fyrsta settið réðst ekki fyrr en í upphækkun (tie-break), en að lokum laut Bryndís í lægra haldi, 7–6(2), 6–4, og vann til glæsilegra silfurverðlauna í meistaraflokki kvenna.

Glæsilegur árangur í meistaraflokki tvíliða

Í meistaraflokki karla tvíliða tryggði Daniel Pozo sér silfurverðlaun. Hann komst í úrslitaleikinn ásamt Ómari Pál Jónassyni  eftir sannfærandi 6–2, 6–3 sigur á Davíð Ármanni Eyþórssyni (TFK) og Daníel Wang Hansen (TFK) í undanúrslitum. Í úrslitaleiknum mættu þeir Rafni Kumar Bonifacius og Raj Kumar Bonifacius (Víkingur) þar sem þeir höfnuðu í 2. sæti eftir 6–1, 6–3 tap.

Í meistaraflokki kvenna tvíliða unnu Eygló Dís Ármannsdóttir og Bryndís Rósa Armesto Nuevo einnig til silfurverðlauna. Þær tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með 6–4, 6–4 sigri á liðsfélögum sínum, Ívu Jovisic og Saulė Zukauskaite, í undanúrslitum. Í úrslitaleiknum mættu þær Önnu Soffíu Grönholm (TFK) og Sofiu Sóley Jónsdóttur (TFK) þar sem þær höfnuðu í 2. sæti eftir 6–1, 6–2 tap.

Í leiknum um 3. sætið höfðu Íva Jovisic og Saulė Zukauskaite síðan betur gegn Ingunni Erlu Eiríksdóttur (Fjölnir) og Rebekku Pétursdóttur (Fjölnir), 6–1, 6–1, og tryggðu sér þar með bronsverðlaun. Leikmenn Fjölnis skipuðu því bæði 2. og 3. sætið í meistaraflokki kvenna tvíliða.

Unga kynslóðin heldur áfram að blómstra

Yngri leikmenn tennisdeildar Fjölnis héldu áfram að sýna fram á þann sterka grunn sem byggst hefur upp innan félagsins og unnu til fjölda verðlauna á Íslandsmótinu.

Í U18 strákaflokki einliða bætti Daniel Pozo við sig silfurverðlaunum. Hann tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með 6–0, 6–1 sigri á Juan Pablo Moreno Monsalve (Fjölnir) í undanúrslitum. Í úrslitaleiknum mætti hann Ómari Páli Jónassyni þar sem hann veitti harða keppni áður en hann laut naumlega í lægra haldi, 3–6, 6–3, 10–12. Juan Pablo Moreno Monsalve vann einnig til bronsverðlauna í flokknum.

Í U18 stúlknaflokki einliða mættust tveir leikmenn Fjölnis í úrslitaleik þegar Íva Jovisic og Saulė Zukauskaitė börðust um Íslandsmeistaratitilinn. Íva hafði betur eftir æsispennandi viðureign, 3–6, 7–6(5), 10–6, og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn, en Saulė vann til silfurverðlauna.

Í U18 börn tvíliða urðu Bjartur Hálfdánsson og Juan Pablo Moreno Monsalve Íslandsmeistarar eftir sannfærandi 6–1, 6–0 sigur á Servin Joyal og Malo Tristan í úrslitaleiknum. Paula Marie Moreno Monsalve vann þar einnig til bronsverðlauna ásamt Yilun He (Víkingur) eftir 6–2, 6–2 sigur í leiknum um 3. sætið.

Í U16 strákaflokki einliða vann Juan Pablo Moreno Monsalve til bronsverðlauna eftir sigur á Bjarti Hálfdánssyni (Fjölnir) í baráttu um 3. sætið.

Í U16 stúlknaflokki einliða vann Paula Marie Moreno Monsalve til silfurverðlauna eftir úrslitaleik gegn Gerði Líf Stefánsdóttur (TFK). Gerður hafði þar betur, 7–5, 6–3, en Paula tryggði sér glæsilegt 2. sætið í flokknum.

Í U14 börn tvíliða varð Paula Marie Moreno Monsalve Íslandsmeistari. Einnig vann hún til bronsverðlauna í U14 einliða.

Árangur yngri leikmanna Fjölnis endurspeglar það markvissa og metnaðarfulla starf sem unnið er innan deildarinnar. Leikmenn félagsins héldu áfram að láta til sín taka í öllum aldursflokkum og sýndu að framtíð tennisdeildar Fjölnis er björt.

Glæsilegur árangur í öldungaflokkum

Leikmenn tennisdeildar Fjölnis létu einnig til sín taka í öldungaflokkum þar sem þeir unnu til fjölda verðlauna, þar á meðal þriggja Íslandsmeistaratitla.

Í 30+ kvenna einliða varð Ingunn Erla Eiríksdóttir (Fjölnir) Íslandsmeistari eftir spennandi úrslitaleik gegn Kristínu Ingu Hannesdóttur. Eftir að hafa unnið fyrsta settið 6–3 jafnaði Kristín með 6–3 sigri í öðru setti, en Ingunn reyndist sterkari í oddalotunni og fagnaði sigri, 6–3, 3–6, 10–5.

Í 30+ kvenna tvíliða varð Eva Dögg Kristbjörnsdóttir (Fjölnir) einnig Íslandsmeistari ásamt liðsfélaga sínum eftir öruggan 6–2, 6–1 sigur í úrslitaleiknum.

Í 40+ karla einliða varð Egill Egilsson (Fjölnir) Íslandsmeistari eftir afar glæsilega frammistöðu. Á leið sinni í úrslitaleikinn sigraði hann Renaud Durville 3–6, 6–2, 10–2 í 8-liða úrslitum og Jonathan Wilkins 7–5, 7–5 í undanúrslitum. Í úrslitaleiknum hafði Egill síðan betur gegn Úlfi Uggasyni, 6–4, 6–4, og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn.

Í 50+ karla einliða bætti Egill við sig bronsverðlaunum. Hann vann Janus Pál Rein örugglega 6–1, 6–1 áður en hann tryggði sér 3. sætið með 7–5, 6–2 sigri á Reyni Þór Eyvindssyni.

Í 60+ karla einliða varð Reynir Þór Eyvindsson (Fjölnir) Íslandsmeistari eftir sannfærandi 6–2, 6–1 sigur á Sigurði Páli Harðarsyni í úrslitaleiknum.

Öflug uppbygging sem skilar árangri

Árangur tennisdeildar Fjölnis á Íslandsmóti TSÍ utanhúss 2026 endurspeglar þá öflugu uppbyggingu sem hefur átt sér stað innan félagsins undanfarin ár. Leikmenn félagsins stigu á verðlaunapall í öllum aldursflokkum, allt frá U14 upp í 60+, sem sýnir bæði breidd og gæði starfsins.

Sérstaklega er ánægjulegt að sjá unga leikmenn halda áfram að stíga fram og ná glæsilegum árangri samhliða reyndari keppendum félagsins. Þessi samsetning reynslu og öflugs yngra starfs er einn helsti styrkleiki tennisdeildar Fjölnis og lofar afar góðu fyrir framtíðina.

Tennisdeild Fjölnis óskar öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur á Íslandsmóti TSÍ utanhúss 2026!

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »