Tennisdeild Fjölnis býður 4-7 ára krökkum í tennis í haust

Tennisdeild Fjölnis býður yngstu iðkendunum aftur velkomna í krakkatennis í haust.
Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 4–7 ára og er lögð sérstök áhersla á hreyfiþroska, samhæfingu og að kynna börnin fyrir grunnatriðum tennis á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt.
Æfingar fara fram á laugardögum kl. 10:30 í Tennishöllinni og hefst haustönnin laugardaginn 29. ágúst.
Í haust verða tveir þjálfarar með hópnum sem gerir deildinni kleift að taka á móti fleiri börnum en áður og veita hverjum og einum enn betri leiðsögn.
Krakkatennis er frábær leið fyrir yngstu iðkendurna til að kynnast íþróttinni, efla hreyfiþroska sinn og hafa gaman í jákvæðu og hvetjandi umhverfi.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við tennisdeild Fjölnis í síma 840-3249.
Við hlökkum til að taka á móti nýjum og fyrrverandi iðkendum í Tennishöllinni í haust!
Aðrar fréttir af deildinni
Haustfjáröflun Fjölnis 2026
19/10/2026
Fjölnir leitar að framkvæmdastjóra
01/10/2026
Daniel Pozo sigrar Haustmót TSÍ 100 2026
22/09/2026






