Garpur Gylfason semur við Fjölni til tveggja ára

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við markvörðinn Garp Gylfason til næstu tveggja ára. Garpur kemur til félagsins frá Fram og er öflug viðbót við meistaraflokk karla fyrir komandi tímabil.

Garpur er sterkur markvörður og frábær karakter sem mun styrkja hópinn bæði innan sem utan vallar. Miklar væntingar eru gerðar til framlags hans á komandi tímabili og er honum ætlað mikilvægt hlutverk í liðinu.

Sveinn Þorgeirsson, fulltrúi meistaraflokksráðs karla, fagnar komu Garps til Fjölnis: „Við erum afar ánægð með að fá Garp til liðs við okkur. Hann er öflugur markvörður sem bætir miklum gæðum inn í hópinn og hefur jafnframt þann karakter sem við viljum hafa í liðinu. Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum hann hjartanlega velkominn í Fjölni.“

Garpur hlakkar sömuleiðis til að hefja nýjan kafla hjá Fjölni: „Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og hlakka mikið til að takast á við nýjar áskoranir með nýju liði. Ég mun leggja mig 100% fram og gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum.“

Við hjá Fjölni bjóðum Garp hjartanlega velkominn í Grafarvoginn og hlökkum til að sjá hann verja mark liðsins á komandi tímabilum.

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »