Reglur
Reglur og viðmið
Almennar upplýsingar fyrir alla hópa deildarinnar.
Afís tímar
- Skylda er að mæta í alla afís tíma, þar með talið þrek og dans.
- Skautarar þurfa að koma undirbúnir í tíma, í réttum klæðnaði, með hár tekið frá andliti og með íþróttaskó. Í danstímum skal koma í aðsniðnum æfingafötum svo hreyfingar séu greinilegar (ekki mæta í t.d. víðum fötum eða hettupeysum)
- Heyrnartól, Airpods eða símar eru ekki leyfðir í tímum, einnig skal ekki neyta matar eða drykkja á meðan kennslu stendur.
- Ekki er leyfilegt að vera með skartgripi og sérstaklega ekki hringeyrnalokka.
Svell og afís tímar
- Koma skal á réttum tíma á allar æfingar.
- Vera vel nærður og búinn að drekka nóg yfir daginn.
- Vera með allan búnað með sér. Það er á ábyrgð skautara að vita hvað skal taka með á æfingar.
- Koma í réttum klæðnaði – aðsniðin peysa, æfingabuxur, engar hettupeysur eða húfur, fingravettlingar og hár skal sett upp í snúð eða fléttu.
- Ef skautari er meira en 5 mínútum of seinn missir iðkandi rétt á að koma á æfinguna. Þeir sem koma seint trufla bæði þjálfara og aðra iðkendur á æfingunni. Einstaka seinagangur er afsakaður, en láta skal þjálfara vita ef viðkomandi er seinn (t.d. vegna skóla eða annarra erinda).
- Ef iðkandi er meiddur eða veikur og getur ekki tekið þátt í afís tímum, skal iðkandinn, af öryggisástæðum, heldur ekki mæta á æfingu á svelli.
- Hegðun eins og: spjall á meðan á kennslu stendur, hlusta ekki á fyrirmæli, eða önnur truflun, er ekki liðin og getur leitt til þess að iðkanda sé vísað úr tíma eða látinn horfa á.
- Það þarf að fylgjast með í tímum, bæði er það til að tryggja öryggi skautara en einnig truflar það þjálfun iðkenda ef þjálfari þarf að taka á slíkum málum á æfingu.
- Skautara er ekki heimilt að fara af miðri æfingu nema að láta þjálfara vita.
- Foreldrar skulu ekki trufla skautara eða þjálfara meðan á æfingu stendur, hvort sem er á svelli eða afís.
Skautarar og foreldrar bera virðingu fyrir:
- Æfingaaðstöðunni okkar, s.s. skautasvellinu, búningsklefum, félagsheimili, íþróttasal og öðrum svæðum Egilshallarinnar
- Liðsfélögum
- Þjálfurum og leiðbeinendum
- Foreldrum
Framhaldshópar
- Mæting skal vera 75% á bæði svell og afís til að skautari geti tekið þátt á mótum og grunnprófum.
- Þjálfarar ákveða hvaða skautarar eru tilbúnir til að taka þátt á mótum og þreyta grunnpróf.
- Þeir sem hafa færst úr Skautaskóla og eru í framhaldshópum taka þátt á sýningum þar sem æfingar eru sýndar 2-3 á hverri önn amk. út fyrsta árið eftir flutning á milli hópa.
- Fyrsta tímabil í framhaldshóp er 100% áhersla á grunnskautun og tækni (sem er frábreytt því sem er kennt á byrjunarstigi). Skautarinn má búast við að æfa sig að skauta við tónlist sem hann sýnir á sýningum, en það verður engin formleg choreography, skylduæfingar, eða formleg prógröm samin fyrr en það er ljóst að skautarinn býr yfir æskilegri færni á þessum grunnæfingum.
- Þegar þjálfarar hafa ákveðið að skautari sé tilbúinn til að fá eigið prógram verður tónlist valin fyrir skautarann úr safni félagsins. Óski skautari sérstaklega eftir annari tónlist sem krefst vinnslu við að klippa þarf að greiða sérstaklega fyrir þá vinnu.
- Öll vinna við að semja eða breyta prógrömmum og önnur choreography fer fram í einkatímum. Þetta er vegna þess að ekki er tími til að fara í slík verkefni sem krefjast mikils tíma með einum skautara á sameiginlegum æfingum með hóp. Einkatíma má bóka hjá þjálfara að vali skautarans á tíma sem hentar báðum aðilum.
- Efnisþættir prógramma og choreography er að öllu leyti þjálfara að sinna í samvinnu við skautarann.
Afrekshópur (Hópur 1)
Boð í þennan hóp er að öllu leyti mat þjálfara. Matið byggist meðal annars á grunnprófum, árangri á mótum, skautaferli og árangri, þó það sé ekki nákvæm skilgreining fyrir aðgengi í hópinn.
Skautarar í þessum hópi skulu mæta á 80% á alla tíma á svelli og afís til að halda stöðu sinni í hópnum. Ákveðnar undantekningar eru þó í lagi t.d. yfir prófatíð í skólanum og við alvarleg meiðsli eða veikindi.
100% virk þátttaka skal vera og gert er ráð fyrir að iðkendur leggi sig alla fram, bæði á svelli og afís. Iðkendur skulu vera 100% tilbúnir að taka leiðsögn og hafa vilja til að bæta sig, bæði á svelli og afís (sjá punkta fyrir neðan).
Væntingar þjálfara til þessa hóps eru háar, í samræmi við möguleg tækifæri sem þetta stig skautaíþróttarinnar býður upp á. Alþjóðleg reynsla krefst meiri aga þar sem henni fylgir aukin ábyrgð, sem fulltrúar Íslands.
Skautarar sem eru ekki með stöðugleika í virkni á æfingum eða mætingu verða færðir í annan hóp.
Auka punktar:
Íþróttafólk sem getur tekið leiðsögn býr yfir eftirfarandi eiginleikum:
- Óska eftir endurgjöf, bæði jákvæðri og neikvæðri.
- Líta inn á við til að komast lengra. Íþróttamaðurinn býr til tækifæri til frekari árangurs.
- Hlusta og reyna að nota endurgjöf til að bæta sig.
- Taka ábyrgð á eigin ákvörðunum.
- Búa yfir “engar afsakanir” hugarfari.