Einkatímar
Einkatímar eru í boði allt árið. Í einkatíma getur þjálfari einbeitt sér alfarið að einum skautara sem getur þannig náð miklum framförum á stuttum tíma. Einkatímar eru einnig notaðir til að læra og æfa ný prógröm. Iðkendur geta bókað einkatíma allan veturinn hjá þjálfara að eigin vali.
Einkatími er ýmist 30 mínútur eða 60 mínútur.
Einkatímar eru bókaðir í gegnum tölvupóst hvers þjálfara fyrir sig. Allar upplýsingar um hvenær þjálfari er laus í einkatíma er hægt að fá frá viðkomandi þjálfara. Vinsamlegast athugið að þjálfarinn getur aflýst eða fundið annan tíma. Þú munt þá fá tilkynningu beint frá þjálfaranum um að finna annan tíma sjálfur.
Vinsamlegast lesið skilmálana varðandi aflýsingar og greiðslumáta þegar bókun er staðfest:
- Greiðsla á einkatímum fer fram áður en tími hefst. Lagt skal inn á reikning 0114-26-7013, kennitala 631288-7589 og senda staðfestingu á listgjaldkeri@fjolnir.is og netfang viðeigandi þjálfara.
- Einkatíma getur verið aflýst eða tímanum breytt allt að 24 klst. fyrir tímann, eftir það er tíminn ekki endurgreiddur.
- Ef skautari kemst ekki í tímann vegna óviðráðanlegra aðstæðna innan 24 klst., vinsamlegast hafið samband beint við þjálfarann og látið vita sem fyrst. Hafið samband við þjálfara fyrir frekari fyrirspurnir.
Benjamin Naggiar
Benjamin sérhæfir sig í stökktækni í einföldum, tvöföldum, þreföldum og fjórföldum stökkum, öllum gerðum pírúetta, grunnskautun, prógramagerð og choreography.
Verð: 4.500 kr (30 mín)
Hafið samband við Benjamin í gegnum listyfirthjalfari@fjolnir.is til þess að bóka einkatíma.
Viktória Šabová
Viktória býður upp á kennslu í grunnskautun, snúningum, tækni fyrir tvöföld stökk sem og prógramagerð.
4.000 kr (30 mín) / 7.000 kr (60 mín)
Hafið samband við Viktóriu í gegnum viktorkasabova@gmail.com til þess að bóka einkatíma.