Samantekt frá ársskýrslu skákdeildar
Samantekt frá ársskýrslu skákdeildar

Reglulegar skákæfingar barna og unglinga
Skákdeild Fjölnis hélt reglulegar æfingar fyrir börn og unglinga í Rimaskóla á fimmtudögum kl. 16:30–18:30, annars vegar í janúar–maí og hins vegar í september–desember. Á hverri æfingu mættu jafnan 50–60 þátttakendur. Æfingarnar voru ókeypis, fjölbreyttar og höfðu aukist í vinsældum ár frá ári.
Skipulag æfinga og aðstaða
Æfingarnar voru skipulagðar með 2–3 hópum þar sem skipt var á milli skákþjálfunar og fimm umferða skákmóts. Veitt voru 15–25 verðlaun eða happadrættisvinningar á hverri æfingu. Í skákhléi var boðið upp á veitingar, m.a. skúffuköku og kalt vatn.
Markmið og sérstaða skákstarfsins
Æfingarnar höfða til allra aldurshópa og er áberandi hversu margir þátttakendur finna sig betur í skákinni en í hefðbundnum íþróttum. Kjörorð skákdeildar Fjölnis er: „Skák er skemmtileg“.
Kynning og sýnileiki skákdeildarinnar
Starfsemi skákdeildarinnar hefur fengið góða umfjöllun á Facebook-síðu deildarinnar, í Grafarvogsblaðinu, á vefjunum grafarvogur.net og skak.is, auk þess sem árangur á skákviðburðum innanlands hefur aukið sýnileika deildarinnar.
Umsjón og þjálfarateymi
Umsjón með skákæfingum árið 2025 hafði Helgi Árnason, formaður skákdeildarinnar, sem hefur stýrt starfinu frá stofnun deildarinnar árið 2004. Með honum störfuðu Jóhann Arnar Finnsson, Sóley Kría Helgadóttir, Ingi Rafn Ýmisson, Theodór Eiríksson og Sveinbjörn Pétur Guðmundsson.
Æfingameistarar og uppaldir Fjölnismenn
Æfingameistarar vetrarins voru Tristan Fannar Jónsson (6. bekkur) og Emilía Embla B. Berglindardóttir (7. bekkur) úr Rimaskóla. Í gegnum árin hafa margir þátttakendur verið liðsmenn Rimaskóla sem hafa náð framúrskarandi árangri á Íslands- og Reykjavíkurmótum grunnskóla.
Afrek einstaklinga – Reykjavíkurmeistari
Oliver Aron Jóhannesson varð Skákmeistari Reykjavíkur 2025 á Skákþingi Reykjavíkur og tók við titlinum af liðsfélaga sínum Degi Ragnarssyni.
Hraðskákmót taflfélaga 2025
Skákdeild Fjölnis hélt Hraðskákmót taflfélaga 2025 í Hlöðunni Gufunesbæ 19. febrúar. Alls tóku rúmlega 80 skákmenn þátt í mótinu. Taflfélag Reykjavíkur sigraði, Fjölnir A hafnaði í 2. sæti og Breiðablik í 3. sæti.
Hraðskákmót taflfélaga 2025
Skákdeild Fjölnis hélt Hraðskákmót taflfélaga 2025 í Hlöðunni Gufunesbæ 19. febrúar. Alls tóku rúmlega 80 skákmenn þátt í mótinu. Taflfélag Reykjavíkur sigraði, Fjölnir A hafnaði í 2. sæti og Breiðablik í 3. sæti.
Sveitir Fjölnis á Íslandsmótinu
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024-2025 fór fram í Rimaskóla dagana 27. febrúar – 2. mars. Fjölnir varð Íslandsmeistari annað árið í röð með fullu húsi stiga. Um 350 skákmenn tóku þátt í mótinu sem Skákdeild Fjölnis hýsti. Fjölnir sendi fjórar skáksveitir til leiks. B-sveitin náði öðru sæti í 2. deild og tryggði sér sæti í 1. deild. C- og D-sveitir stóðu sig vel í 4. deild, skipaðar að mestu ungum uppöldum Fjölnismönnum.
Styrkur og Skáksjóður Helga Árnasonar
Styrktarsjóður Hringfarans stofnaði Skáksjóð Helga Árnasonar og úthlutaði 5 milljónum króna til barna- og unglingastarfs skákinnar. Styrkurinn var tileinkaður Helga fyrir óeigingjarnt starf hans í þágu skáklistar.
Sumarskákmót Fjölnis
Sumarskákmót Fjölnis var haldið í 20. sinn 8. maí með 101 þátttakanda. Helgi Áss Grétarsson tefldi fjöltefli og Rótarý Grafarvogur gaf alla verðlaunagripi mótsins. Tefldar voru fimm umferðir og 50 verðlaun veitt.
Skákbúðir á Snæfellsnesi
Skákdeild Fjölnis hélt skákbúðir á Snæfellsnesi 17.–18. maí með þátttöku rúmlega 20 barna. Hópurinn tók þátt í Minningarmóti Ottós og Gunnars og vann til verðlauna og verðlaunafjár.
Efnilegur nýliði – Anh Hai Tran
Skákdeild Fjölnis hélt skákbúðir á Snæfellsnesi 17.–18. maí með þátttöku rúmlega 20 barna. Hópurinn tók þátt í Minningarmóti Ottós og Gunnars og vann til verðlauna og verðlaunafjár.
Alþjóðleg þátttaka – Norðurlandamót og Evrópumót
Skáksveit Rimaskóla tók þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita í Helsinki og hafnaði í 3. sæti. Skáksveit Fjölnis keppti einnig á Evrópumóti taflfélaga á Rhodos.
Amsterdam Chess Open
Skáksveit Rimaskóla tók þátt í Norðurlandamóti barnaskólasveita í Helsinki og hafnaði í 3. sæti. Skáksveit Fjölnis keppti einnig á Evrópumóti taflfélaga á Rhodos.
Íslandsmót skákfélaga 2025–2026 – fyrri hluti
Fyrri hluti mótsins fór fram í Rimaskóla í nóvember. Fjölnir sendi fjórar sveitir og er A-sveitin í 2. sæti Úrvalsdeildar eftir fyrri hlutann.
Atskákmót og ungmennamót
Fjölnir hafnaði í 3. sæti á Atskákmóti taflfélaga 2025. Á Íslandsmóti barna- og unglingasveita náðu Fjölniskrakkar fjölmörgum verðlaunum, þar á meðal Íslandsmeistaratitlum í stúlknaflokkum.
Stjórn, styrkir og þakkir
Stjórnarfundir voru fáir á árinu. Skákdeildin fékk rekstrarstyrk frá ÍTR sem er grundvallarforsenda ókeypis barna- og unglingastarfs. Sérstakar þakkir fá ÍTR, aðalstjórn UMF Fjölnis, starfsfólk Rimaskóla og eldhússtarfsfólk skólans.












Marta Björgvinsdóttir semur við Fjölni
Marta Björgvinsdóttir semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við miðjumanninn Mörtu Björgvinsdóttir til næstu tveggja ára. Marta, sem er 22 ára, er uppalin Fjölniskona og hefur leikið 108 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 11 mörk.
Marta sneri aftur til Fjölnis á síðasta ári eftir stutta dvöl hjá Álftanesi og varð fljótt mikilvægur hlekkur í liðinu. Á síðasta tímabili lék hún leik númer 100 fyrir félagið í útileik gegn Sindra, þar sem hún kryddaði tímamótin með marki.
Vesko þjálfari liðsins hafði þetta um framlenginguna að segja: „Það eru afar góðar fréttir fyrir okkur að Marta hafi skrifað undir nýjan samning. Hún er frábær leikmaður sem þekkir vel þau gildi sem félagið stendur fyrir og er tilbúin að leggja sig fram fyrir þau. Marta er sífellt að bæta sig og gefur okkur meiri stöðugleika á miðsvæðinu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar mikla reynslu af meistaraflokksfótbolta og við erum sannfærð um að hún muni spila lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu liðsins.“
Aðrar fréttir af deildinni
Úlfur framlengir við Fjölni
02/10/2024
Fjölnir – Augnablik, 0:0
30/08/2024
Tveir titlar á einum degi – Fjölnir VÍS bikarmeistari í 9. og 11. flokki karla í körfubolta
Tveir titlar á einum degi – Fjölnir VÍS bikarmeistari í 9. og 11. flokki karla í körfubolta

Fjölnir átti stóran lokadag síðasta sunnudag í VÍS bikarvikunni þegar félagið tryggði sér tvo bikarmeistaratitla í Smáranum. Fyrri leikur dagsins fór fram í 9. flokki drengja þar sem Fjölnir lagði ÍA 78–66, áður en 11. flokkurinn innsiglaði daginn með dramatískum 79–77 sigri gegn KR í lokaleik vikunnar.
Í úrslitaleik 9. flokks var leikurinn jafn framan af, en Fjölnir var skrefinu á undan allan tímann og byggði smám saman upp forskot sitt eftir hlé. Með sterkum þriðja leikhluta og yfirvegaðri lokakafla tryggðu Fjölnisdrengir sér öruggan sigur. Óttar Ingimar Davíðsson fór fyrir liðinu með stórleik, 28 stig, 12 fráköst og 9 stoðsendingar, og var valinn maður leiksins.
Síðar um daginn lauk bikarvikunni með hreinum spennuleik í 11. flokki karla þar sem Fjölnir og KR skiptust á forystu allt til loka. Þegar sex sekúndur voru til leiksloka, var staðan jöfn 77-77. Þá steig Benóný Gunnar Óskarsson fram og skoraði sigurkörfu Fjölnis um leið og lokaflautið gall. Benóný var jafnframt valinn maður leiksins með 20 stig og 11 fráköst.
Með þessum sigrum staðfesti Fjölnir öflugt starf í yngri flokkum og lauk VÍS bikarvikunni með fullkomnum hætti, tveir leikir, tveir titlar.
Patryk Hryniewicki semur við Fjölni
Patryk Hryniewicki semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur gengið frá samningi við varnarmanninn Patryk Hryniewicki sem gengur til liðs við félagið fyrir komandi keppnistímabil.
Patryk er fæddur árið 2000 og leikur sem hafsent. Hann er uppalinn hjá Leikni í Reykjavík þar sem hann hefur leikið 45 leiki í meistaraflokki og skorað 2 mörk.
Um er að ræða öflugan og hávaxinn varnarmann sem bætir styrk og festu í varnarleik liðsins. Stjórn og þjálfarateymi Fjölnis telja Patryk vera mikilvæga viðbót við leikmannahóp félagsins fyrir verkefnin fram undan. Aðspurður um félagaskiptin er Patryk ánægður með að vera kominn í Fjölni: „Ég er mjög spenntur að koma til Fjölnis. Mér finnst klúbburinn frábær og strákarnir geggjaðir. Ég hlakka til að gefa allt í þetta“.
Fjölnir býður Patryk velkominn til félagsins og hlakkar til samstarfsins á komandi tímabili. Áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Úlfur framlengir við Fjölni
02/10/2024
Fjölnir – Augnablik, 0:0
30/08/2024
Birgir Þór semur við Fjölni
Birgir Þór semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur framlengt samning sinn við varnarmanninn Birgi Þór Jóhannsson til næstu þriggja ára.
Birgir Þór, sem er fæddur árið 2007, er hraður og leikinn varnarmaður sem hefur staðið sig afar vel með liðinu á undirbúningstímabilinu í vetur. Frammistaða hans hefur vakið athygli innan félagsins og þykir ljóst að hann er einn af efnilegri leikmönnum liðsins.
Með samningnum tryggir Fjölnir sér áframhaldandi uppbyggingu á ungum og metnaðarfullum leikmanni sem félagið bindur miklar vonir við á komandi árum.
Samningsframlengingin er liður í þeirri stefnu Fjölnis að byggja sterkan kjarna fyrir framtíðina.
Aðrar fréttir af deildinni
Úlfur framlengir við Fjölni
02/10/2024
Fjölnir – Augnablik, 0:0
30/08/2024
Leynist vinningsmiði á þínu heimili?
Leynist vinningsmiði á þínu heimili?
Dregið var nýlega í happdrættum Fjölnis og nokkrir vinningar hafa enn ekki verið sóttir. Vinningsmiða má nálgast á aðalskrifstofu Fjölnis í Egilshöll á opnunartíma.
Við hvetjum alla sem keyptu miða til að yfirfara númer sín og ganga úr skugga um hvort vinningur sé á þeirra miða. Mikilvægt er að sækja vinninga innan tilgreinds frests, en að þeim tíma liðnum fyrnast ósóttir vinningar.
Hægt er að fá nánari upplýsingar með að hafa samband við skrifstofu. Hér að neðan má sjá vinningarskrár.
Skákmenn Fjölnis hljóta styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands 2026
Skákmenn Fjölnis hljóta styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands 2026
Tveir skákmenn Skákdeildar Fjölnis, stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson, eru í hópi 13 íslenskra skákmanna sem hlutu styrk úr Afrekssjóði Skáksambands Íslands fyrir árið 2026.
Við úthlutun styrkjanna var meðal annars horft til árangurs og virkni keppenda á árinu 2025, sem og áætlana þeirra um áframhaldandi þátttöku og afrek í skák á árinu 2026. Héðinn hlýtur styrk til 9 mánaða en Dagur til 3 mánaða.
Héðinn Steingrímsson hefur teflt fyrir Skákdeild Fjölnis frá árinu 2007 og oftar en ekki á fyrsta borði. Dagur Ragnarsson er uppalinn Fjölnismaður og var kjörinn Skákkarl Fjölnis tvö ár í röð, 2024 og 2025. Árið 2024 var hann jafnframt valinn Íþróttamaður Fjölnis.
Þeir Héðinn og Dagur hafa báðir teflt með A-sveit Fjölnis, sem varð Íslandsmeistari skákfélaga 2024 og 2026. Dagur hefur hafið árið 2026 af krafti en hann tryggði sér nýverið öruggan sigur á Skákþingi Reykjavíkur og hlaut með því titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026.
Gauti Þór Gíslason valinn á úrtaksæfingar U15 landsliðsins
Gauti Þór Gíslason valinn á úrtaksæfingar U15 landsliðsins

Gauti Þór Gíslason hefur verið valinn á úrtaksæfingar U15 landsliðsins í knattspyrnu. Æfingar fara fram dagana 9-11 febrúar inni í Miðgarði, en þjálfari U15 landsliðs Íslands er Ómar Ingi Guðmundsson.
Við hjá Fjölni óskum honum góðs gengis á æfingunum. Til hamingju með valið Gauti!
Arrate Juste Vidaurrazaga semur við Fjölni
Arrate Juste Vidaurrazaga semur við Fjölni

Arrate Juste Vidaurrazaga hefur skrifað undir samning við Fjölni fyrir keppnistímabilið 2026. Hin 27 ára gamla Arrate er spænska markvörður og kemur til félagsins frá Extremadura CD. Arrate er uppalin í unglingastarfi Athletic Bilbao, sem er þekkt fyrir að ala af sér markverði í hæsta gæðaflokki. Hún er reynslumikill markvörður og mun jafnframt leggja sitt af mörkum til að efla og þróa unga markverði félagsins.
Vesko, þjálfari meistaraflokks kvenna er mjög ánægður með nýjasta leikmann liðsins. „Við erum afar ánægð með að fá Arrate til liðs við okkur. Hún er reynslumikill markvörður sem eykur breiddina í þessari stöðu. Við höfum fylgst með henni undanfarið og teljum hana passa mjög vel inn í okkar leikstíl. Hún er róleg undir pressu, með góða sendingagetu bæði stuttar og langar sendingar, og les leikinn afar vel. Við erum með metnaðarfull markmið og teljum Arrate vera mjög mikilvægan hluta af púslinu fyrir næsta tímabil.“
Velkominn Arrate, áfram Fjölnir!
Aðrar fréttir af deildinni
Úlfur framlengir við Fjölni
02/10/2024
Fjölnir – Augnablik, 0:0
30/08/2024
Harpa Sól semur við Fjölni
Harpa Sól semur við Fjölni

Harpa Sól Sigurðardóttir hefur framlengt samning sinn við Fjölni til ársins 2027.
Harpa er 21 árs miðjumaður, uppalin Fjölniskona, sem sneri aftur til félagsins árið 2023 eftir þriggja ára veru frá félaginu.
Harpa hefur leikið 57 leiki fyrir meistaraflokk Fjölnis og skorað í þeim 13 mörk. Á síðasta tímabili staðfesti hún sig sem lykilleikmann í liðinu með stöðugri og kraftmikilli frammistöðu, sem endurspeglast í nýjum samningi hennar.
Vesko, þjálfari liðsins er afar ánægður með framlenginguna:
„Ég er virkilega ánægður með að Harpa hafi skrifað undir nýjan samning. Hún er mikilvægur leikmaður fyrir liðið, kemur með mikla orku og jákvæðni inn í hópinn. Harpa er spennandi ungur leikmaður og ég hlakka til að sjá hana halda áfram að þróast og leggja sitt af mörkum við að ná markmiðum okkar.“
Framlenging samningsins er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu liðsins og staðfestir traust félagsins á Hörpu til framtíðar.
Aðrar fréttir af deildinni
Úlfur framlengir við Fjölni
02/10/2024
Fjölnir – Augnablik, 0:0
30/08/2024


























