Joana Roig Verge semur við Fjölni

Knattspyrnudeild Fjölnis hefur samið við spænska sóknarleikmanninn Joönu Roig Vergé út yfirstandandi tímabil.

Það er mikið ánægjuefni að Joana hafi gengið til liðs við Fjölni og styrki meistaraflokk kvenna fyrir seinni hluti tímabilsins. Joana er reynslumikill sóknarleikmaður sem getur leyst allar stöður framarlega á vellinum. Hún býr yfir miklum hraða, les leikinn vel og er öflugur markaskorari sem getur skapað hættu úr fjölbreyttum stöðum.

Joana kemur til Fjölnis frá spænska félaginu CD Atlético Baleares þar sem hún lék frá árinu 2021 og skoraði yfir 60 mörk fyrir félagið. Hún hefur þegar leikið sinn fyrsta leik fyrir Fjölni þegar hún kom við sögu í leik liðsins gegn Fylki.

Vesko, þjálfari meistaraflokks kvenna, lýsir yfir mikilli ánægju með komu Joönu: „Við erum mjög ánægð með að fá Joönu til liðs við okkur. Við höfum fylgst með henni síðan í janúar og teljum hana henta okkar leikstíl einstaklega vel. Hún er fljótur leikmaður með gott rýmisskyn og gott markanef sem gerir hana hættulega í og við vítateiginn. Eftir stutt aðlögunartímabil tel ég að hún muni sýna styrkleika sína og reynslu og hjálpa okkur í baráttunni um efstu sætin.“

Joana hlakkar til að takast á við nýtt verkefni í Fjölnisbúningnum: „Ég er virkilega ánægð með að vera komin til Fjölnis. Liðið lítur mjög vel út og stemningin er frábær. Ég hef mikla trú á því sem við getum áorkað saman og mun leggja mig alla fram til að styðja liðsfélaga mína og hjálpa okkur að ná markmiðum okkar á þessu tímabili.“

Við bjóðum Joönu hjartanlega velkomna í Fjölni og hlökkum til að sjá hana láta til sín taka í gulu og bláu treyjunni.

 

UNGMENNAFÉLAGIÐ FJÖLNIR

Egilshöll | Fossaleyni 1 | 112 Reykjavík | Kt. 631288-7589

Opnunartími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
09:00-12:00 og 13:00-16:00

Föstudaga
09:00-12:00

Símatími skrifstofu

Mánudaga – fimmtudaga
10:00-11:30

Sími: 578-2700

Hafðu samband

skrifstofa@fjolnir.is

Translate »