Lewis snýr aftur á gólfið með Fjölni eftir meiðsli

Það eru gleðifréttir fyrir Fjölnismenn að kanadíski miðherjinn Lewis Diankulu mætir aftur til leiks í 1. deildinni á komandi tímabili. Lewis missti af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla en fór þó hvergi, því hann færði krafta sína yfir í þjálfun og gerði m.a. 9. flokk karla að bikarmeisturum.
Lewis hefur verið mikilvægur hlekkur í Fjölnisfjölskyldunni frá árinu 2022. Tímabilið áður en hann meiddist drottnaði hann í teignum með rúmlega 20 stig og 10 fráköst að meðaltali í leik. Fjölnir fær því ekki bara öflugan leikmann til baka, heldur einnig mikinn leiðtoga.
Lewis segist spenntur fyrir því að vera kominn aftur á parketið í Fjölnistreyjunni: „Ég er mjög spenntur að vera kominn aftur á völlinn í Fjölnistreyjunni! Ég hlakka til að leggja hart að mér, eiga farsælt tímabil með liðsfélögunum og halda áfram þar sem frá var horfið. Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem Fjölnir hefur sýnt mér.“
Arnar B. Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fjölnis, segir endurkomu Lewis afar ánægjulegar fréttir fyrir félagið. „Það eru gríðarlega gleðileg tíðindi að Lewis sé mættur aftur. Hann hefur verið órjúfanlegur hluti af félaginu síðan 2022, bæði sem leikmaður og þjálfari. Lewis er mikilvægur máttarstólpi; hann kemur með dýrmæta reynslu inn í hópinn og verður yngri strákunum ómetanlegur stuðningur.“
Við hjá Fjölni hlökkum til að sjá Lewis á gólfinu í Fjölnistreyjunni á komandi tímabili.
Aðrar fréttir af deildinni
Fjölnir þiggur sæti í Bónus deild kvenna
15/07/2026
Haustskráningar í Fjölni opna 15. júlí
02/07/2026
Bílastæðamál við Egilshöll
23/06/2026








